Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Steingrímur Helgu Jóhannesson: „Ég gjörsamlega gargaði á hafið og kallaði nafn hans“

Steingrímur Helgu Jóhannesson
Stein­grímur Helgu Jóhann­es­son

„Ég stoppaði í fjörum hér og þar og gjör­samlega gargaði á hafið og kallaði nafn hans,“ segir Stein­grímur Helgu Jóhannesson í viðtali við Reyni Traustason. Stein­grímur var á sjónum um árabil og í hittifyrra var hann í túr á skut­togaranum Tómasi Þorvalds­syni. Þetta átti að vera 40 daga túr á grálúðu. „Á 37. degi kom atvik upp,“ segir Stein­grímur, en í kaffi­tímanum snemma morguns sá hann SMS frá föður sínum sem bað hann um að hringja í sig sem allra fyrst; þetta tengdist bróður Steingríms.

„Hann hafði átt erfitt og honum leið ekki vel,“ segir Stein­grímur um bróður sinn, „þannig að mig grunaði hvað væri á bak við þessi skilaboð. Við Hörður bróðir vorum bara tveir og við misstum móður okkar ungir. Þetta hefur allt verið erfitt fyrir okkur öll þessi ár; við vorum bara tveir og vorum nánir. Það tók mig 10 mínútur að taka upp tólið og hringja í pabba. Ég vissi nákvæmlega  hvað þetta var þegar hann svaraði. Hann sagði „Hörður, bróðir þinn, er dáinn.“ Þegar svona gerist og að vera úti á sjó; það bara hrundi allt einhvern veginn. Ég hrundi sjálfur. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Ég settist niður og fór að gráta.

Ég fór til stýri­mannsins og sagði hvað hefði gerst og spurði hvort ég gæti fengið eitthvað róandi. Svo fór ég niður í klefa og ég mætti ekkert niður á vakt eftir kaffi. Svo kom Bessi skip­stjóri og talaði við mig og sagði að hann ætlaði að skutla mér í land. Þarna vorum við úti á Hala. Hann skutlaði mér upp á grunn og þar var fullt af snurvoða­bátum og það átti að henda mér í bát sem var fyrstur til að fylla og svo átti ég að fara með honum í land sem var gert. Ég kom í land í Bolungarvík,“ segir Stein­grímur sem leigði bíla­leigubíl og segist hafa ekið áleiðis suður með augun stútfull af tárum og reiði. „Ég vissi ekki almennilega hvað hafði gerst hjá honum,“ segir hann og á við látinn bróður sinn. Í þessari ferð suður stoppaði hann svo í fjörum hér og þar og gjör­samlega gargaði á hafið og kallaði nafn látins bróður síns.

Hörður.

Eiginkona Steingríms ók á móti honum og hittust þau í Bjarkar­lundi og það hjálpaði mikið. „Hún stóð mikið við bakið á mér. Ég þakka áhöfninni fyrir en þeir voru mikið að aðstoða mig.“

Ég var ekki til­bú­inn til að gera neitt.

Stein­grímur ákvað eftir þetta að koma sér í land. „Ég var ekki tilbúinn til að gera neitt. Ég var heima í um fjóra mánuði og fór að vinna í landi sem vinnslu­tæknir. Ég held ég hafi verið þar í mánuð og svo gafst ég upp. Ég var ekki með hausinn í takt við lífið.“

Stein­grímur, sem segir að Hörður hafi látist af völdum hjarta­áfalls, segir að það hafi verið búið að reyna að hjálpa honum mikið. „Sumt fólk er þannig að það vill ekki láta hjálpa sér. Ég reyndi eins og ég gat.“

Hörður hafði búið á Spáni og segir Stein­grímur að það hafi tekið um sex vikur að koma líki hans til Íslands.

3.600 tonna togari

Stein­grímur fæddist í Vestmanna­eyjum. Svo flutti fjöl­skyldan norður og árið 2004 flutti Stein­grímur svo í Eyjar til að fara á sjóinn. Faðir hans var sjómaður og var þá á Snorra Sturlu­syni og hringdi Stein­grímur í föður sinn og bað um að fá pláss. „Ég fékk þetta „ætlar þú á sjóinn?“. Stein­grímur segir að það séu margir sjómenn í ættinni. „Bróðir minn, Hörður heitinn, var sjómaður.

Ég var á Snorra Sturlu­syni þangað til hann var seldur. Mér gekk mjög vel þarna um borð og hafði aldrei unnið þessa vinnu áður og fékk fast pláss bara strax. Svo var Snorrinn seldur og þá fór ég á Þór í Hafnar­firði hjá Guðrúnu og Gústa og var þar í þrjú ár. Flott áhöfn. Topppláss og allt magnað þarna um borð.“

Hafið lokkar og laðar en það gera líka útlönd stundum og Stein­grímur vildi út. Út til Noregs. Hann vildi fara á sjóinn með frændum vorum Norð­mönnum. Hörður bjó þá í Haugesund.

„Ég sagði upp á Þór, fór út og var kominn með vinnu innan tveggja vikna á einum stærsta togara í Noregi. Tvö millidekk og hvað eina. 3.600 tonna togari.“ Stein­grímur varð vinnslu­stjóri; fékk þá stöðu í þriðja túr.

„Það er gríðarleg ábyrgð að vera vinnslu­stjóri á svona stórum togara og úti í Noregi. Þetta er svolítið svart og hvítt að vera í þessari stöðu hérna heima og úti því þarna úti ertu með alla ábyrgð undir skip­stjóranum. Ábyrgðin var mín að skila góðum afurðum og bera ábyrgð á báðum vöktum.“ Hann segir að þarna hafi hann fílað sig í tætlur. Þarna var hann í þrjú ár og svo var skipið selt.

Á reki í fárviðri

Stein­grímur segir frá minnis­stæðum túr á þessum norska togara. Þeir voru í Flæmska hattinum í janúar. Kvöldið áður en togarinn átti að láta frá höfn kíkti Stein­grímur á pöbb og hitti þar gamlan, norskan sjómann. Síðhærðan og tann­lausan.

„Hann spurði mig hvað ég væri að gera og ég sagði það og að ég væri að fara í Flæmska hattinn og myndi leggja af stað morguninn eftir. Þá reif hann í öxlina á mér: „Ekki fara. Ég er búinn að fara þangað og ég ætla aldrei aftur þangað.“ Hvaða bull var þetta? Ég vissi að þetta væri slæmt hafsvæði en við fórum þangað á versta tíma ársins og það er enginn þarna í janúar­mánuði.“

Svo lagði togarinn frá bryggju.

Ég man að það var kolniða­myrkur, snjó­hríð, 20 stiga frost.

„Þetta var níu daga sigling og þegar við mættum út þá var veður eins og ég hafði aldrei séð áður. Ölduhæðin var svo mikil. Ég man að það var kolniðamyrkur, snjóhríð, 20 stiga frost og bara klikkað veður. Kallinn ákvað að láta þá fara. Það hristu allir hausinn. En eftir um hálftíma til klukku­tíma kallaði hann niður: „Það verður að hífa þetta; það er eitthvað að.“ Svo var byrjað að hífa og hlerarnir komu upp. Ég var á dekki þarna og þá var annar grand­arinn slitinn þannig að það var híft upp á öðrum og reynt að koma þessu inn og granda­spilin voru ekki að hafa þetta. Lengjan var svo komin inn og það var ákveðið að hjálpa þessu að komast inn með gilsum og öðru.“

Svo drapst á skipinu. Í þessu fárviðri.

„Meira að segja neyðar­ljósin kviknuðu ekki og á sama tíma fengum við brot á okkur. Ég og Otto Svalbard, Færeyingur, vorum stjórnborðsmegin og fundum að það flaug einhver andskotinn yfir okkur. Við vorum heppnir að vera lifandi eftir þetta því þegar ljósið var komið á þá var þetta grandari sem hafði flogið úr stæði hinum megin og skór sem eru notaðir á hlerana. Þetta flaug yfir. Skórnir smölluðust, grand­arinn nátt­úrlega losnaði allur en við sluppum furðu vel.

Það sem gerðist þarna er að við fengum í skrúfuna.“

Stein­grímur segir að hann hafi hugsað í þessum aðstæðum að þetta yrði sitt síðasta. Tilfinningin var þannig.

„Svo ákvað kallinn að reyna að slaka krananum aftur niður og reyna að húkka í eitthvað í skrúfunni þannig að hann festist líka og kraninn var pikk­fastur. Við vorum bara vélarvana úti. Og stopp. Bara á reki. Svo var færeyskur togari á leiðinni út og það voru tveir sólar­hringar í hann. Það var fljótara að bíða eftir honum heldur en að fá skip úr landi. Við biðum og þegar þeir komu var skotið úr línu og það tók heilan dag að ná línunni yfir; það var svo vont veður. Loksins heppnaðist það og við vorum drengir í land og vorum í St. Jones í fjóra daga.

Við vorum uppi í bæ að fá okkur og menn að taka úr skrúfunni. Það fór allt í skrúfuna.

Svo fórum við aftur út á sjó og kláruðum túrinn og náðum að fylla togarann af þorski. Þetta var einn stærsti túr sem ég hef farið í.“

Svo kom að því að togarinn var seldur til Rússlands.

Stein­grímur fór á annað skip hjá stærsta útgerðar­fyrirtæki Noregs og var þar vinnslu­stjóri í þrjú ár en svo flutti hann til Íslands og fór að vinna hjá Samherja.

Maður er búinn að heyra margar sögur af þeim.

Var ekki gott að vinna hjá þeim?

„Jú, jú. Maður er búinn að heyra margar sögur af þeim hvað þetta sé mikið skíta­batterí og hitt og þetta. Maður heyrði sögur af því að það var hringt frá útgerðinni og sagt „þú ert að fara þangað“ og ef þú sagðir „nei“ þá varstu rekinn. En ég lenti aldrei í svoleiðis þannig að ég hef ekkert út á það að setja. Ég hef ekkert út á þessa útgerð að setja þannig. Ég fór á Oddeyrina.“

Allt í brúnum reyk

Oddeyrin var einu sinni á Barentshafi á leið til Íslands. „Þetta var desembertúr. Jólatúr. Það var búið að þrífa allt og græja allt. Það voru flest allir sofandi þessa nóttu en ég var uppi í setustofu að horfa á bíó. Ég var að horfa á Suður­landið. Myndina. Ég hafði ekki séð þessa mynd áður og vissi lítið um þetta slys. Þarna komst ég að því að þeir höfðu verið að sigla sömu siglinga­leið og við til Íslands. Og þarna vorum við um 100 mílur frá Langanesi. Ég var nýbúinn að klára að horfa á myndina og kominn í koju og það liðu svona 10 mínútur þangað til alarmið um borð fór í gangi; bruna­varnar­kerfið. Það kom óhugur í mann; ennþá með þessa mynd í huga. Ég henti mér í fötin og fór beint upp í brú og þá var manni tilkynnt að það hefði kviknað í. Það var allt í brúnum reyk. Það hafði kviknað í niðri í vél; í rafalnum. Við náðum að slökkva í þessu sem betur fer. Það var magnað hvernig þetta hitti í mark; á sama tíma. Svolítið sérstakt.“

Þetta er eins og ein fjöl­skylda.

Stein­grímur var á Oddeyrinni þangað til hún var seld til Noregs. „Mér var boðið að fara með skipinu og ég gerði það. Við fórum þrír út með skipinu; ég átti að sjá um vinnsluna, svo var það vélstjóri og stýri­maður. Og svo einn á dekki. Við áttum að koma nýrri áhöfn af stað. Ég var þarna í þrjá túra og svo fór ég aftur heim. Ég fór svo á Björk hjá Samherja. Ég fór þaðan 2019 og fór svo að vinna hjá Brim; var á Helgu Maríu.“ Hann segir að þar sé toppáhöfn frá brú og niður í vél. „Þarna leið mér best af öllum skipum sem ég hef verið á. Þetta er eins og ein fjöl­skylda. Heil­steypt fjöl­skylda.“

Svo segist hann hafa verið á flakki; nefnir Hrafn Svein­bjarnarson.

Hættur á sjónum

Stein­grímur sá um tíma um hlaðvarps­þætti, Sjóarann, þar sem hann tók viðtöl við sjómenn en hann er hættur því. Hann segist hafa tekið viðtöl við um 40 sjómenn sem muna tímana tvenna frá því jafnvel fyrir áratugum síðan. „Þetta er tími sem maður þekkti ekki áður og að heyra þessar minningar og um þessa háska; það er magnað að heyra þetta frá þessum mönnum.“

Hann er ekki bara að hætta með þættina heldur er hann líka að hætta á sjónum. „Ég ætla að fara að gera eitthvað annað. Ég ætla að vera meira með fjöl­skyldunni,“ segir Stein­grímur sem á tvo syni og tvö stjúpbörn. „Ég er búinn að vera á sjónum í 18 ár. Þetta er ekkert ægileg saga miðað við þessa kalla sem ég hef talað við en mér finnst það slatti fyrir mig og ég ætla að prófa eitthvað nýtt.“

Hann skráði sig í nám. „Það heitir gæða­stjórnun og ég er búinn með hluta af því, diplóma, í Noregi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Fólk

Viðtal

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið