Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Þýskur togarasjómaður misþyrmdi Íslendingi: „Virtist fá útrás fyrir ofbeldishneigð sína“

Reykjavík.
Reykja­vík. Mynd: Pavel Danilyuk – Pexels.com

Íslend­ingur nokkur sat á kaffi­húsi í mið­borg Reykja­víkur, á spjalli við tvær íslenskar stúlkur og þrjá þýska tog­ara­sjó­menn en í fyrstu virt­ist sem vel færi á með fólk­inu. Það breytt­ist þó á auga­bragði er tog­ara­sjó­mað­ur­inn stökk upp úr þurru upp og mis­þyrmdi Íslend­ingnum.

Bak­sýn­is­speg­ill kvölds­ins fjallar um leið­ind­ar­at­vik sem varð í maí árið 1971 þegar þýskur tog­ara­sjó­maður réð­ist, að því er virt­ist að ástæða­lausu á Íslend­ing sem sat honum til sam­læt­ist á kaffi­húsi í mið­borg Reykja­víkur en áður en fólk vissi af var sá þýski far­inn að láta hnefa­höggin dynja á Íslend­ingnum. Samkvæmt Alþýðu­blað­inu, sem fjall­aði um lík­ams­árás­ina var ekki um að ræða „heið­ar­leg slags­mál“ heldur hafi virst sem sjó­ar­inn hafi verið að fá „útrás fyrir ofbeld­is­hneigð sína“.

Eftir árás­ina flúði Þjóð­verj­inn ásamt þremur félögum sínum, en í ljós kom að þeir áttu enn eftir að greiða fyrir gos sem þeir höfðu pantað sér til að blanda í áfengi. Voru fjórir sterk­legir lög­reglu­menn sendir á eftir þeim og náð­ust þjófarnir en árás­armað­ur­inn ekki.

Hér má sjá grein Alþýðu­blaðs­ins um málið á sínum tíma:

Íslend­ingi mis­þyrmt

Í einu kaffi­hús­anna í mið­borg­inni gerð­ist það í gær, að ölv­aður þýzkur tog­ara­sjó­maður réðst á Íslend­ing, sem þar var, og mis­þyrmdi honum. Allt gerð­ist þetta mjög snöggt, en tog­ara­sjó­mað­ur­inn þýzki hafði þó nægan tíma til að láta hnefa­högg dynja á Íslend­ingnum. Á kaffi­hús­inu var nokkur fjöldi manna og þar af um tíu þýzkir tog­ara­sjó­menn. Þeir sátu við tvö borð, en tveir eða þrír úr hópi þeirra sátu við borð með tveimur íslenzkum stúlkum og íslend­ingnum. Það virt­ist sem vel færi á með þessu fólki, þar til einn Þjóð­verj­inn stekkur á fætur og ræðst á Íslend­ing­inn með hnefa höggum. En það var ekk­ert líkt því, sem oft er kallað „heið­ar­leg“ slags­mál heldur virt­ist þessi þýzki sjó­maður fá útrás fyrir ofbeld­is­hneigð sína. Og hann var ekki fyrr búinn að svala ofbeld­is­þrá sinni, en hann hypjaði sig í burtu af kaffi­hús­inu og þrír félagar hans með honum. Þá kom hins vegar í ljós, að þeir áttu eftir að borga gos- drykki, sem þeir höfðu keypt, og notað til að blanda áfengi, þvert ofan í reglur, sem þeim höfðu verið gerðar ljósar. Lög­reglan var síðan kölluð til, og áður en langt um leið voru fjórir fílefldir lög­reglu­þjónar komnir’ á stað­inn. Höfðu þeir hendur í hári þriggja þeirra sem læðst höfðu út, en árás­armað­ur­inn sást hvergi. Voru þeir síðan látnir borga gos­drykk­ina og þar við sat. En Íslend­ing­ur­inn, sem fyrir bar­smíð­inni varð, á eflaust eftir að finna lengi til eymsla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Starfsmaðurinn var látinn skrifa undir íslenskt skjal sem hann skildi ekki
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni