Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Lilja lenti í völundarhúsi Motus: „Skaðinn virðist vera skeður“

Lilja Margrét Hreiðars­dóttir segir frá hrakförum sínum í samskiptum við Motus og Lögheimtuna í nýjasta tölublaði Mannlífs. Lilja fékk senda kröfu sem hún gekkst ekki við óbreyttri og leitaðist við að fá skýringar á. Ekkert gekk í samskiptum hennar við kröfuhafa og hún endaði því á að fara með málið fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustu­kaupa.

Ekki leið á löngu þar til reikningurinn var kominn í innheimtu hjá Motus. Lilja reyndi ítrekað að koma því á framfæri við Motus að um umdeildan reikning væri að ræða og málið komið fyrir kæru­nefndina. Svör frá Motus bárust seint og illa. Fljótlega var krafan komin í löginnheimtu, þrátt fyrir skýringar og mótmæli Lilju.

Lánshæfismat hrapaði

Meðan á öllu þessu stóð var Lilja í svokallaðri vöktun hjá Motus. Það þýðir að fyrir­tækið er að fylgjast sérstak­lega með viðkomandi og auk þess að fletta honum upp hjá Creditinfo. Þetta varð til þess að á meðan Lilja var að senda ótal pósta og fyrir­spurnir, ásamt því að fylgjast með gangi mála hjá kæru­nefndinni og eiga í deilum við þann sem sendi kröfuna á hana, var lánshæfismat hennar hjá Creditinfo stöðugt að lækka. Þegar innheimtu­fyrirtæki eru með einstakling í vöktun og uppflettingu hjá Creditinfo hefur það mikil áhrif.

Það tók því einungis innan við mánuð frá því að fyrsta bréf frá Motus er dagsett, þar til krafan var komin í löginnheimtu. Fyrir­tækið sem tekur við kröfum í löginnheimtu frá Motus er Lögheimtan.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem blaða­maður fékk frá lögmanni Lögheimtunnar eru mál yfirleitt send þangað frá Motus þegar einstaklingar virðast ekki ætla að greiða reikning eða þegar stefnir í dómsmál vegna krafna.

„Ekki gera ekki neitt“

Það er þó ekki svo að Lilja hafi „gert ekki neitt“ eins og segir í slagorði Motus. Þvert á móti sendi hún ótal tölvu­pósta og gerði allt hvað hún gat til þess að útskýra sitt mál og fá á móti skýringar á stöðunni. Þau samskipti gengu brösug­lega.

Á meðan Lilja fékk engin svör lækkaði lánshæfismat hennar hjá Creditinfo úr flokki A niður í flokk C en það er umtals­verð lækkun á lánshæfis­mati. Það var ekki fyrr en þann 9. mars, þegar Arndís Sveinbjörns­dóttir frá Motus svaraði Lilju, að krafan var fryst tíma­bundið. Þannig var vöktunin tekin út – en skaðinn var skeður þegar kom að lánshæfis­mati Lilju.

„Þeir setja þetta á bið þangað til niður­staða er komin úr kærunni,“ segir hún í samtali við blaðamann. „En skaðinn virðist samt vera skeður hvað varðar lánshæfis­matið. Kannski ekki alveg eins mikið og var á meðan vöktunin var í gangi, en bara uppflettingin frá Motus hefur svo svakalega mikil áhrif.“

Lilja er því, eins og sakir standa, föst í mun lakari lánshæfis­flokki en hún var í áður. Allt vegna reiknings sem hún sem neytandi ætti að hafa fullan rétt á að andmæla og reyna að greiða úr deilum honum tengdum. Hún fékk hins vegar lítinn sem engan tíma til þess að bregðast við. Þrátt fyrir það nýtti Lilja þann stutta tíma eins vel og hægt var, en það kostaði hana tölu­verðan tíma og fyrirhöfn. Hún gerir alvarlega athugasemd við starfs­hætti innheimtu­fyrir­tækjanna og þá staðreynd að fyrir hinn almenna neytanda eða leikmann sé fyrir­komulagið bæði flókið, ruglandi og upplýsingar af skornum skammti.

Hér má lesa greinina í vefútgáfu tímarits Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá