Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Hótelstarfsmaður á Kanarí gripinn við að stela skartgripum gesta

Rann­sóknin hefur jafn­framt tengt kon­una við þrjú önnur sam­bæri­leg mál

Höfnin í Mogán
Höfnin í Mogán Mynd: Guido Haeger/Wikipedia

Lög­reglan á Kanarí hefur hand­tekið starfs­mann hót­els í ferða­manna­bænum Mogán sem grun­aður er um að hafa stolið skart­gripum að verð­mæti þús­unda evra úr her­bergjum gesta.

Málið kom upp þegar ferða­maður til­kynnti um þjófnað á nokkrum gull­gripum, þar á meðal hringum og háls­menum, úr hót­el­her­bergi sínu. Verðmæti grip­anna var metið á um 15 þús­und evrur, jafn­virði rúm­lega tveggja millj­óna íslenskra króna.

Rannsókn spænsku lög­regl­unnar leiddi í ljós að engin merki voru um inn­brot í her­bergið eða örygg­is­hólfið. Grunur vakn­aði því um að raf­rænn aðgangs­lyk­ill hefði verið not­aður til að kom­ast inn í her­bergið.

Við skoðun á gögnum úr raf­rænu kerfi hót­els­ins kom í ljós að starfs­manna­lyk­ill, sem hafði verið skráður týndur nokkrum mán­uðum áður, hafði verið not­aður á þeim tíma sem talið er að þjófn­að­ur­inn hafi átt sér stað.

Lögregla bar saman upp­lýs­ingar úr kerf­inu við ferðir starfs­fólks innan hót­els­ins. Nið­ur­stöð­urnar sýndu að grun­aði starfs­mað­ur­inn hafði farið inn í nær­liggj­andi her­bergi aðeins einni mín­útu eftir að týndi lyk­ill­inn var not­aður til að opna her­bergi brota­þol­ans.

Í kjöl­farið var starfs­mað­ur­inn yfir­heyrður og eigur hennar rann­sak­aðar á vinnu­staðnum. Að sögn lög­reglu sýndi hún merki um tauga­veiklun og reyndi að fela veski sitt meðal vinnu­fatn­aðar.

Við leit­ina fannst að sögn lög­reglu hinn týndi raf­ræni lyk­ill í veski hennar, fal­inn meðal per­sónu­legra skjala.

Rann­sóknin hefur jafn­framt tengt kon­una við þrjú önnur sam­bæri­leg mál á sama hót­eli þar sem gestir til­kynntu um þjófnað á pen­ingum og skart­gripum úr her­bergjum sínum.

Konan, sem sam­kvæmt lög­reglu hefur áður komið við sögu vegna þjófn­aðar- og inn­brota­mála, hefur verið leidd fyrir dóm­ara. Rannsókn máls­ins stendur enn yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Umræða um ökumann dökkrar BMW-bifreiðar hefur blossað upp á ný
Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram