Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fjórir létu lífið í krapaflóðunum á Patreksfirði: „Eins og mórautt jökulhlaup félli úr gilinu“

Laugar­dagurinn 22 janúar 1983 var örlaga­ríkur dagur fyrir íbúa Patreks­fjarðar. Dagurinn var ekki frábrugðinn öðrum laugar­dögum nema að því leyti að halda átti þorrablót um kvöldið, margir voru því spenntir.

Nóg var að gera hjá björgunar­sveitinni á svæðinu en fjöldi tilkynninga hafði borist vegna úrhellis­rigningar sem fallið hafði um nóttina. Moka þurfti snjó af þökum, dæla vatni úr kjöllurum og ryðja frá niður­föllum.

Upp úr klukkan tíu um morguninn hringdi Guðjón Petersen, framkvæmda­stjóri Almanna­varna, í Stefán Skarp­héðinsson, sýslumann á Patreks­firði og tilkynnti honum að Veður­stofa Íslands hafi gefið út tilkynningu um snjó­flóðahættu. Hættan var mikil á Patreks­firði og því þótti nauðsyn að fylgjast þar vel með.

Um hálftíma eftir símtalið var búið að senda tilkynningu á Ríkis­útvarpið og hún lesin þar; íbúar á Patreskfirði voru sérstak­lega beðnir um að fara varlega vegna snjó­flóðahættu.

Seinni­part laugar­dagsins voru heimamenn farnir að veita Geirs­eyrargili sérstaka athygli, ekki var þó talin hætta á flóði úr gilinu. Starfs­menn Patreks­hrepps unnu hörðum höndum við að halda farvegi gilsins greiðum.

Þrátt fyrir aðgerðir var vatn farið að flæða í miklu mæli inn í bæinn og um íbúagötur og var þá lögð áhersla á að halda ræsum opnum til að forða frá eigna­tjóni.

Nokkur börn söfnuðust saman nálægt gilinu þar sem þau renndu sér í snjónum. Þegar Pétur Sveinsson, lögreglu­varðstjóri, tók eftir undarlegu ástandi í gilinu fór hann beinustu leið og sótti börnin, eitt barnanna var sonur hans. Börnin fóru öll til síns heima nema eitt, sem fór heim með Pétri og syni hans. Þessi ákvörðun reyndist örlagarík þar sem drengurinn átti heima í einu húsanna sem varð undir flóðinu. Stuttu eftir að Pétur kom heim með drengina tvo, heyrðu þeir háan hvell. Þegar þeir litu út um stofu­gluggann sáu þeir um 15 metra háa flóð­bylgju skella á tveimur húsum og æða síðan áfram.

Stuttu síðar þeyttust ógnarháar vatns­súlur upp í loftið í gilmunanum, hljóp þá fram stórt krapaflóð sem sagt er hafa líkst vegg sem óx því nær sem hann kom bænum. Annað flóð lenti á bænum stuttu síðar en 20 hús skemmdust í flóðunum, fjórir létu lífið.

„Ég sá flóðið vaða niður úr gilinu og húsin tætast upp. Eftir það hugsaði ég aðeins um að komast inn í húsið til unnustu minnar,“ sagði Helgi Páll Pálmason, í samtali við Morgun­blaðið á sínum tíma.

„Ég get ekki á nokkurn hátt lýst því hvernig mér var innanbrjósts, þegar ég sá flóðið falla, né heldur hve langan tíma það tók. Mér virtist það vera allt að fjögurra metra hátt en get þó ekki sagt um það með nokkurri vissu. Hér hefur vissulega orðið ómetanlegt tjón. Þó verald­legir hlutir hafi ekki verið metnir enn, verða mannslíf aldrei metin til fjár. Ég vil svo koma miklu þakklæti á framfæri til allra þeirra, sem aðstoðuðu okkur við björgunarstörfin. Án hjálpar þeirra hefðu þau ekki gengið eins vel og raun bar vitni,“ sagði Úlfar Thoroddsen, sem bjargaði sér með því að hlaupa frá flóðinu.

„Þegar fyrra flóðið féll var ég staddur í húsinu Bræðra­borg við Litladalsá að dæla vatni úr kjallara. Þá kölluðu menn, sem stóðu hjá, að gilið væri hlaupið. Þegar ég leit upp var að sjá, niður eftir hlíðinni og skylli á húsunum,“ sagði Haraldur Karlsson, formaður björgunarsveitar Slysavarnafélags Íslands, en hann var einn af þeim fyrstu á slys­staðinn.

Nöfn þeirra sem létust voru Marteinn Ólafur Pétursson, Aðal­stræti 79, fæddur 9. desember 1941, 42 ára; Sigrún Guðbrandsdóttir, fædd 3. desember 1976, 6 ára, dóttir hjónanna Vigdísar Helgadóttur og Guðbrands Haralds­sonar, Hjöllum 2; Sigurbjörg Sigurðardóttir, Brunnum 13, fædd 13. ágúst 1924, 58 ára, og Valgerður Jónsdóttir, Aðal­stræti 79, fædd 23. janúar 1906, 77 ára.

Heimildir: Morgun­blaðið, 1983 og Krapa­flóðin á Patreks­firði eftir Egil St. Fjeldsted

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá