Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lögreglan tók sextán ára dreng í tvígang í misgripum fyrir strokufangann – Myndband í dreifingu

Sérsveit ríkislögreglustjóra. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd / Stundin.
Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Stundin.

Sextán ára drengur hefur í tvígang lent í því síðustu tvo daga að lögreglan hefur afskipti af honum en hann er með sama litarhaft og stroku­fanginn Gabríel Douane Boama. Í gær var hann í sakleysi sínu í strætis­vagni er tveir lögreglu­bílar og sérsveitin réðist inn og tóku drenginn til að ganga úr skugga um að hann væri sá sem þeir leituðu að. Í morgun gerðist það svo aftur að lögreglan hafði aftur afskipti af honum þegar hann var staddur í bakaríi ásamt móður sinni. Myndband náðist af atburðinum.

Móðirin er afar ósátt við málið en hún hefur skrifað tvær færslur á samfélags­miðlum um málið en ekki gefið fjöl­miðlum leyfi til að vitna beint í orð sín. Mannlíf virðir það. Telur móðirin þetta ekki vera lögreglu­vandamál, heldur samfélagslegt vandamál.

Það lítur út fyrir að vegfarandi hafi hringt í lögregluna í morgun og tilkynnt að stroku­fanginn væri í bakaríinu. Í gær var lögreglan harðlega gagnrýnd á samfélags­miðlunum í gær eftir að drengurinn var tekinn í strætis­vagninum af lögreglunni. Samkvæmt DV var vagninn stoppaður af vopnuðum sérsveitar­mönnum eftir að ábending hafði borist um að stroku­fangann væri þar að finna.

Móðir drengsins, sem er lögmaður, fór á fund lögreglu í gær og krafðist afsökunar en
lögreglan gaf frá sér yfir­lýsingu vegna málsins í gær:

„Lögregla leitar nú ungs manns sem tilheyrir minnihluta­hópi á Íslandi, en hann strauk frá lögreglu og er talinn hættu­legur. Í dag var sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra kölluð til aðstoðar við lögregluna á höfuð­borgar­svæðinu þar sem ábending hafði borist um að sá eftir­lýsti væri í strætis­vagni í Reykjavík. För vagnsins var stöðvuð en þegar sérsveitar­menn fóru inn í vagninn þá sáu þeir strax að ekki var um að ræða einstaklinginn sem var verið að leita að og yfirgáfu þeir því vagninn.

Móðir drengsins hafði samband við ríkis­lögreglu­stjóra í kjölfarið og lýsti áhyggjum af þeirri stöðu sem komin væri upp, þar sem ungmenni í minnihluta­hópi óttist að vera tekin í misgripum vegna útlits. Í samtalinu komu fram mikil­vægar áherslur sem ríkis­lögreglu­stjóri ætlar að bregðast við, þ.m.t. samtal við samfélagið um fordóma.

Ríkis­lögreglu­stjóra þykir leitt að drengurinn hafi í dag orðið hluti af þessum aðgerðum lögreglu en ábending barst um að hann væri sá sem var lýst eftir, sjálfur hafði drengurinn ekkert unnið sér til sakar.

Þá hvetur embættið til varkárni í samskiptum um þetta mál og önnur mál sem tengjast minnihluta­hópum. Fordómar eiga aldrei rétt á sér. Leit að hættulegu fólki má ekki verða til þess að minnihluta­hópar í okkar samfélagi upplifi óöryggi eða ótta við að samferða­fólk þeirra tilkynni það til lögreglu án tilefnis.

Fordóma­fullar athuga­semdir verða áfram fjar­lægðar af miðlum lögreglunnar um málið og lokað verður fyrir frekari athuga­semdir. Ábendingum sem tengjast málinu skulu eftir sem áður berast Lögreglunni í síma 112.“

Myndband er nú í dreifingu á samfélags­miðlunum en Mannlíf hefur séð það. Þar sést móðirin standa við hlið sonar síns sem situr í bakaríinu og tveir lögreglu­menn fyrir framan þau. Móðirin, sem er skiljanlega í uppnámi, segir: „Þetta er ekki hann! Þetta er barnið mitt!“ Hún bætir svo við að hún viti hver hafi hringt í lögregluna. „Ég sá manninn í Teslunni, ég veit að það var hann sem hringdi í ykkur.“ Hún bæti svo við að hún hafi komið úr vinnunni til að róa strákinn sinn niður eftir atvikið í stætisvagninum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá