Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Huldumenn með kylfur og ölvaður maður í klessubílaleik

Myndin tengist pistlinum ekki beint
Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Huldumenn með kylfur, ofurölvi berserkir og slagsmál. Þetta er meðal þess sem lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu þurfti að fást við í gærkvöld og nótt.

Það er af sem áður var þegar föstu­dagurinn langi var bæði lengsti og leiðinlegasti dagur ársins, í augum margra að minnsta kosti. Núorðið – reyndar ekki síðustu tvö ár, af augljósum ástæðum – eru meira að segja skemmistaðir opnir fram á rauðanótt. Það leyndi sér ekki við skoðun dagbókar lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu í morguns­árið.

Í miðborg Reykja­víkur var nokkuð um slagsmál og ólæti, sem lögregla sinnti ásamt öðrum málum sem töldust minni­háttar. Það er augljós­lega ekki lengur bannað að skemmta sér á föstu­daginn langa – þótt það megi vissulega deila um skemmtana­gildi ofur­ölvunar og slagsmála.

Um miðnætti í gærkvöldi var tilkynnt um tvo dular­fulla menn á gangi með kylfur. Lögregla mætti á svæðið og leitaði að mönnunum, án árangurs. Aðeins ein tilkynning barst um mennina þetta kvöld.

Um svipað leyti, upp úr klukkan hálf 12, höfðu starfs­menn hótels miðsvæðis í Reykjavík kallað á lögreglu vegna ofurölvi manns sem neitaði að greiða fyrir vín sem hann var þó sannarlega búinn að drekka. Ekki reyndist unnt að leysa málið farsæl­lega og svo fór að lögregla fjarlægði manninn af staðnum og hann var látinn gista fanga­geymslur.

Um klukkan 1 í nótt varð umferðar­óhapp í vesturbæ Reykja­víkur. Annar bíllinn reyndist óökufær eftir áreksturinn en engin slys urðu þó á fólki.

Laust fyrir klukkan hálf 2 í nótt var lögregla kölluð til vegna manns sem hafði ekið á bíla í miðborginni. Maðurinn reyndist ölvaður og var hand­tekinn á vettvangi. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu er málið í rannsókn, en minni­háttar tjón varð á bílum.

Umferðar­óhapp varð á Reykja­nesbraut eftir miðnætti. Engin slys urðu þó á fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá