FólkSmáforrit sem koma þér í hlaupaform Smáforrit, eða svokölluð öpp eru til margs nýtileg. Meðal annars er hægt að ná sér í ýmiskonar öpp sem hjálpa til við að koma upp hlauparútínu, halda utan um árangurinn og spila tónlist eftir þínum hlaupahraða.
FólkSysturmissir kveikjan að tónlistarferlinum Margrét Kristín Sigurðardóttir prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Vikunnar. Margrét Kristín, sem er betur þekkt undir listamannsnafninu Fabúla, lét gamlan draum rætast og skellti sér í leiklistarnám í London þegar hún var fimmtug. Hún hafði verið í slíku námi í Noregi þegar hún var ung en hætt þegar áfall í fjölskyldunni varð til þess að tónlistar- og textasköpun hennar tók yfirhöndina.
FólkGat ekki sest niður í lífstykkinu Kim Kardashian klæddist hönnun Thierry Mugler á Met Gala. Flíkin sjálf var afar þröng og gerð úr latexi og þurfti Kim að klæðast lífstykki til að komast í flíkina.
FólkLeyniíbúðin hans pabba Lífsreynslusaga úr Vikunni Við systkinin ólumst upp hjá ástríkum foreldrum. Ég var komin á fimmtugsaldurinn þegar ég komst að leyndarmáli sem faðir minn hafði búið yfir í áratugi. Ég er næstelst í hópi fjögurra systkina. Mamma vann úti hálfan daginn eftir að við vorum öll komin í skóla en pabbi gegndi ábyrgðarmiklu starfi og var nokkuð þekktur, að minnsta kosti...
FólkSvakalegir kjólar á rauða dreglinum á Met Gala Einn stærsti tískuviðburður ársins, The Met Gala, er hafinn og fer fram í nótt í New York. Tískuunnendur bíða alltaf spenntir eftir þessum viðburði enda er tískan á rauða dreglinum alltaf veisla. Hér kemur lítið brot af því besta og áhugaverðasta sem hefur sést á rauða dreglinum í kvöld.
FólkHeillast af glamúr og glitri Móeiður Svala Magnúsdóttir segist klæða sig mest í dragtir, samfestinga og hælaskó en að hennar áliti eiga allar stelpur að eiga glæsilega kjóla sem lætur þeim líða eins og prinsessum.
FólkÚtrunnið eða ónýtt? Góð ástæða til að hreinsa til í baðskápnum og snyrtibuddunni er að skapa meira pláss og skipulag. Önnur, og mögulega betri ástæða, er sú að eftir að vara hefur verið opnuð kemst súrefni að henni sem gerir það að verkum að hún fer að skemmast, innihaldsefnin tapa virkni sinni auk þess sem að bakteríur og örverur af fingrum okkar og úr umhverfinu komast í vöruna. Allt þetta getur valdið ertingu eða jafnvel sýkingu í húð okkar. Þess vegna er mikilvægt að gera reglulega rassíu og henda útrunnum snyrtivörum.
FólkGlæsilegur tískuþáttur í brúðkaupsblaði Vikunnar Brúðkaupsblað Vikunnar kom út í mars en blaðið verður í verslunum út sumarið.
FólkDásamlegt að klæðast silkináttkjól eftir langan dag Sara Sólrún Aðalsteinsdóttir verslar mest í second hand-búðum en skemmtilegast finnst henni að finna flíkur sem eru ekki endilega í tísku og gera þær að sínum eigin. Við fengum að skyggnast inn í fataskáp Söru.
FólkVinkona mín gerir lítið úr mér Lífsreynslusaga úr Vikunni: Ég tilheyri stórum vinahópi sem hefur haldið saman lengi. Fimm okkar kynntust fyrst í barnaskóla en svo bættust við kærastar, kærustur og vinir vina þar til hópurinn þéttist og varð að þeim kjarna sem nú myndar hópinn. Mér hefur alltaf liðið vel með þessu fólki eða þar til síðastliðið ár. Þá byrjaði ein úr hópnum að gera...
FólkNíu leiðir til að minnka plastnotkun Plast eyðist ekki auðveldlega náttúrunni heldur safnast upp, mengar höf og lönd og hefur stórfelld áhrif á lífríki jarðarinnar. Þess vegna er nauðsynlegt að endurvinna plast í stað þess að henda því í almennt rusl.
Fólk„Í eldhúsinu mínu fá allir að spreyta sig og skapa alls konar listaverk“ Sævar Lárusson er yfirkokkur á Kol Restaurant og gerðist þar að auki meðeigandi að staðnum nýlega. Hann hefur, að eigin sögn, haft áhuga á matreiðslu síðan hann man eftir sér og er jafnduglegur að elda heima hjá sér og í vinnunni.