Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Níu leiðir til að minnka plastnotkun

Plast eyð­ist ekki auð­veld­lega nátt­úr­unni heldur safn­ast upp, mengar höf og lönd og hefur stór­felld áhrif á líf­ríki jarð­ar­innar. Þess vegna er nauð­syn­legt að end­ur­vinna plast í stað þess að henda því í almennt rusl.

Níu leiðir til að minnka plastnotkun

Einnig er vert að skoða leiðir til að minnka plast­notkun almennt í okkar dag­lega lífi. Með breyttum neyslu­venjum getum við aukið fram­boð af umbúða­lausri mat­vöru og jafn­vel dregið úr fram­leiðslu á plasti, eða að minnsta kosti dregið úr óþarfa plast­um­búðum.

1. Fjölnota innkaupapokar

Við vitum flest að við eigum að nota fjöl­nota inn­kaupa­poka og þess vegna er merki­legt hversu margir reiða sig enn á plast­pok­ana í mat­vöru­versl­unum. Hægt er að fá fjöl­nota poka sem pakk­ast saman í mjög litla ein­ingu og snið­ugt er að vera með þá á nokkrum stöðum; til dæmis í tösk­unni, hanska­hólf­inu í bílnum og úlpu­vas­anum.

Mik­il­væg­ast er þó að muna eftir að ganga frá pok­anum og setja hann strax á sinn stað því ann­ars er hætta á að þú gleymir honum.

2. Umbúðalaus matvæli

Eitt versta dæmi um ofnotkun á plasti er umbúðir utan um græn­meti, jafn­vel það sem er í lausa­sölu. Margar búðir bjóða þó upp á gott úrval af umbúða­lausum ávöxtum og græn­meti sem eru einnig líf­ræn í þokka­bót.

Hægt er að kaupa sér­staka fjöl­nota grisju­poka undir ávexti og græn­meti sem er lítið mál að taka með sér í búð­ina. Sumar versl­anir hafa þá selt hnetur, fræ, þurrk­aða ávexti, olíur, krydd og fleira í lausu þannig að þú mætir með eigið ílát sem þú fyllir á. Ef slíkt hentar þér ekki er gott ráð að velja frekar vörur í papp­írs- eða gler­pakkn­ingu.

Eitt versta dæmi um ofnotkun á plasti er umbúðir utan um græn­meti.

3. Taubleyjur á börnin

Talið er að hvert barn noti ríf­lega fimm þús­und bréf­bl­eyjur á fyrstu árunum. Þessar einnota bleyjur fara svo í ruslið og enda á haug­unum, en milli 5 og 10% sorps sem er urðað eru bréf­bl­eyjur. Þó að þær kall­ist bréf­bl­eyjur, inni­halda þær plast­efni og fleiri ónátt­úru­leg efni.

Það er því mun umhverf­is­vænna að nota svo­kall­aðar taubl­eyjur og vin­sældir þeirra hafa auk­ist til muna á síð­ustu árum. Upp­hafs­kostn­aður þeirra er vissu­lega meiri en við hefð­bundnar bréf­bl­eyjur en þær er hægt að nota aftur og aftur – jafn­vel fyrir fleiri en eitt barn.

4. Eldaðu frá grunni

Tilbúinn matur er yfir­leitt í plast­um­búðum og oft­ast eru þær umbúðir ekki end­ur­nýt­an­legar. Lang­besta lausnin á þeim vanda að elda heima mat frá grunni, hvort sem það er í nesti eða kvöld­mat­inn.

Síðan er miklu betra fyrir heils­una að borða mat sem hefur verið eld­aður frá grunni því hann inni­heldur engin rot­varn­ar­efni eða slíkt. Gott er að fjár­festa í umhverf­is­vænu og eit­ur­efna­lausu nest­is­boxi til að nota ekki sam­loku­poka eða slíkt.

5. Drykkir á ferðinni

Það er mik­il­vægt að svala þorst­anum reglu­lega. Við á Íslandi búum svo vel að geta fengið tand­ur­hreint vatn beint úr kran­anum. Góð regla er að hafa alltaf fjöl­nota vatns­flösku við hönd­ina, til dæmis á skrif­borð­inu í vinn­unni og í bílnum, þá þarftu ekki að kaupa þér vatn eða gos í hvert skipti og þú finnur fyrir þorsta.

Kaffi­drykkju­fólk ætti einnig að fjár­festa í fjöl­nota kaffi­máli því öll helstu kaffi­hús lands­ins afgreiða kaffi­pöntun þína beint í málið þitt og sum gefa meira að segja afslátt út á það.

6. Engin plaströr

Nú eru fjöl­margar versl­anir farnar að selja drykkj­ar­rör úr pappír sem geta auð­veld­lega komið í stað­inn fyrir þau úr plasti. Í nokkrum Evr­ópu­borgum er nú hafði átak þar sem veit­inga- og skemmti­staðir eru hvattir til að skipta plast­rör­unum út fyrir pappír. Einnig er hægt er að kaupa fjöl­nota stál­rör til að nota heima­fyrir.

7. Pakkaðu inn í pappír

Smám saman getur þú skipt út mat­ar­filmu og pokum fyrir vax­pappír. Á Netinu er hægt að panta fjöl­nota vax­pappír, ýmist úr býflugna- eða soja­bauna­vaxi. Hægt er að pakka slíkum pappír utan um sam­lokur og mat­ar­af­ganga sem þú ætlar að geyma í kæl­inum – papp­ír­inn nýt­ist einnig fyrir mat sem á að fara í fryst­inn. Annað gott ráð er að setja mat­ar­af­ganga í fernur eftir að þú hefur skolað úr þeim.

8. Endurnýttu ílát

Hægt er að end­ur­nýta ýmis plast­í­lát sem mat­væli koma í, til dæmis plast­box utan af sósum eða sal­ati. Hreins­aðu ílátin þegar að þú klárar úr þeim og geymdu þau. Hægt er að nota þau til að geyma mat­ar­af­ganga eða undir nesti.

Víða erlendis er einnig hægt að nota slík ílát til að sækja mat í búðir, til dæmis kjöt eða fisk úr borði eða til­búna rétti. Enn sem komið er leyfir heil­brigð­is­eft­ir­litið það ekki hér á landi en það mun von­andi breyt­ast í fram­tíð­inni.

9. Dagleg umhirða

Það er einnig fullt af plast­hlutum sem við notum í okkar dag­legu umhirðu sem við gætum hæg­lega skipt út fyrir aðra umhverf­is­vænni kosti. Til dæmis eru einnota rak­vélar og rak­vél­ar­hausar úr plasti og í þeim felst mikil sóun.

Lítið mál er að kaupa góða, gam­al­dags rak­vél sem tekur ein­föld rak­vél­ar­blöð, en þau blöð end­ast ekki bara lengur heldur eru mun ódýr­ari. Einnig er meiri­hluti tann­bursa úr plasti og mælt er með að við skiptum um þá ekki sjaldnar en á þriggja mán­aða fresti – það gerir alla­vega fjóra tann­bursta á ári.

Nú eru fáan­legir tann­burstar úr bambus sem brotnar auð­veld­lega niður í nátt­úr­unni, ólíkt plasti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina