FólkElskar að sjá fólk uppgvöta lífsgæði sín Vignir Þór Bollason er 27 ára gamall Hafnfirðingur. Hann hefur getið sér gott orðspor sem kírópraktor en hann starfar á Kírópraktorstöð Reykjavíkur. Vignir er sá eini á landinu sem hefur lokið þjálfun í svokallaðari Webster-tækni, sem er sérhæfð meðferð fyrir óléttar konur. Viðskiptavinir hans hafa náð undraverðum árangri, en sjálfur segir Vignir starf sitt fyrst og fremst felast í því að hjálpa öðrum að öðlast aukin lífsgæði.
FólkFótunum kippt undan fjölskyldunni Valgerður Sigurðardóttir skipar þriðja sætið á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hún hefur ekki tekið beinan þátt í stjórnmálum áður og því er þessi vettvangur nýr fyrir henni. Síðustu vikur og mánuðir hjá Valgerði hafa einkennst af pólitík, veikindum og aðlögun að breyttum starfsvettvangi, en daginn eftir að hún þáði sæti á framboðslistanum fékk maðurinn hennar alvarlega heilablæðingu.
FólkLíkaminn er gerður til þess að hreyfa sig Hreiðar Júlíusson á að eigin sögn tvö sjálf, annars vegar sem kvikmyndaframleiðandi en hins vegar sem hlaupaþjálfari. Sjálfin tvö lenda þó sjaldnast í útistöðum en áhugi Hreiðars á útihlaupum kviknaði fyrir fimm árum þegar hann gekk til liðs við Skokkhóp Hauka.
FólkMissti 20 kíló með smávægilegum breytingum Anna Þorsteinsdóttir er 28 ára gömul sveitastelpa frá Grundarfirði. Hún er að eigin sögn sjálfstæð móðir en sonur hennar, Bergþór, er þriggja ára gamall. Anna starfar sem íþróttakennari í augnablikinu en samhliða því býður hún upp á ráðgjöf og fjarþjálfun auk þess að halda úti snapchat-aðganginum Engar öfgar.
FólkJóga sem bætir samskipti kynjanna Guðrún Darshan hefur kennt jóga í mörg ár og segir meðal annars að Kundalini-jóga geti verið hjálplegt í samskiptum kynjanna.
FólkGóðar fyrir húðina Olíur hafa notið aukinna vinsælda síðastliðin ár og fjöldi snyrtivörufyrirtækja keppist við að setja á markað vörur sem innihalda náttúrulegar plöntu- og ilmolíur.
Fólk„Allt breyttist þegar ég fór að vera ég sjálf“ Fanney Dóra Veigarsdóttir er ein af stærstu samfélagsmiðlastjörnum Íslands. Þrátt fyrir að glansmyndin á Instagram sýni hana sem brosandi, hamingjusama unga konu á Fanney Dóra margra ára baráttu við kvíða og þunglyndi að baki. Hún hefur notað hreyfingu og heilbrigðan lífstíl sem verkfæri til að takast á við erfiða daga og hefur náð frábærum árangri.
FólkFullkomna allar hreyfingar Íslenski dansflokkurinn frumsýndi nýverið dansverkið Hin lánsömu eftir Anton Lachky. Sýning er bæði kraftmikil og kómísk en hún segir frá hópi yfirstétta systkina í sjálfsskipaðri útlegð.
FólkBreytir tárum í orð Sara Mansour er á forsíðu Vikunnar að þessu sinni, en hún hefur þrátt fyrir ungan aldur skipað sér í raðir okkar helstu aðgerðasinna. Sara er drifin áfram af sterkri réttlætiskennd og segir samvisku sína stjórna öllu sem hún geri. Þrátt fyrir háværar og oft óvægnar gagnrýnisraddir ætlar hún alls ekki að leggja árar í bát og segir jákvæðu viðbrögðin sem hún fær gera allt þess virði. Sara er ótrúleg fyrirmynd og þegar litið er yfir afrek hennar er erfitt að trúa því að hún sé aðeins 21 árs.
FólkMest í því að vera þreyttar og svangar saman Vinkonurnar Þórunn Ívarsdóttir og Alexsandra Bernharð Guðmundsdóttir eiga ýmislegt sameiginlegt. Þær eru báðar flugfreyjur, háskólanemar og samfélagsmiðlastjörnur, svo fátt eitt sé nefnt. Örlögin réðu því að þær eru nú báðar óléttar af sínu fyrsta barni, en þær segja ótrúlega skemmtilegt að vera samferða í þessu ferli.
FólkHreyfing er heilsubót Fólki reynist oft erfitt að sinna daglegri hreyfingu og nefnir þá helst tímaskort, þreytu, áhugaleysi og óöryggi sem ástæður. Mikilvægt er að gefa sér tíma til þess að hreyfa sig, þótt það sé ekki nema í hálftíma á dag, því hreyfing eykur líkamshreysti, vellíðan og lífsgæði almennt. Hægt er að hreyfa sig hvar og hvenær sem er og oft án lítils kostnaðar – engar afsakanir.
FólkOfurfínt hús skapar ekki hamingjusamt heimili Eva Laufey Hermannsdóttir Kjaran er fyrir löngu orðin þjóðþekkt en hún haslaði sér fyrst völl sem ástríðubakari.