Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sólveig Anna fær það óþvegið – Sögð hafa stórskaðað launabaráttu verkafólks

„Þegar stjórn Eflingar, undir forystu Sólveigar Önnu Jóns­dóttur, sagði upp öllu starfs­fólki á skrif­stofu stéttar­félagsins þá opinberaðist um leið djúp mann­fyrir­litning. Sólveig Anna og félagar kunna að skreyta sig með marxískum frösum og þykjast vera afskaplega hugsjónarík en þarna er einungis um að ræða innihalds­lausan páfagauka­lærdóm. Ef þetta fólk hefði raun­verulegan áhuga á vellíðan vinnandi fólks þá hefði það horft sér nær og lagt sitt af mörkum til að skapa aðlaðandi andrúms­loft á skrif­stofu Eflingar,“ segir Kolbrún Bergþórs­dóttir og bætir við að hluti verkalýðs­forystunnar hafi einmitt hagað sér nákvæmlega eins og „vondu kapítal­istarnir“ sem hún er stöðugt að vara við. Kolbrún fer yfir starf­mannamálin inn á skrif­stofu Eflingar að undan­förnu eftir að öllu starfs­fólki félagsins var sagt upp störfum í leiðara Frétta­blaðsins í dag. Sitt sýnist hverjum um þessa ákvörðun og hefur Sólveig Anna fengið sinn skerf af gagnrýni.

Kolbrún Bergþórs­dóttir, leiðara­höfundur, sendir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, formanni Eflingar, tóninn. Gagnrýnir hún þá einnig Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, og Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðs­félags Akraness og formann Starfs­greina­sambandsins

„Hver á framvegis að geta tekið mark á þessu fólki? Stjórn Eflingar hefur rækilega tekist að gjald­fella verkalýðs­baráttuna,“ segir Kolbrún og bætir við að Sólveigu Önnu sé fyrir­munað að koma auga á eigin sök.

Kolbrún minnir á að baráttu­dagur verka­lýðsins, 1. maí, sé framundan en þá leggi forystu­fólk verkalýðs­hreyfingarinnar áherslu á samstöðu vinnandi stétta. Á sama tíma þylur það upp misgjörðir vondu kapítal­istana í garð vinnandi fólks.

Kolbrún segir að þennan dag á þessu ári sé ómögulegt fyrir verkalýðs­forystuna að tala á þessum nótum, nema hún vilji verða að athlægi frammi fyrir alþjóð.

„Gagnrýni á uppsagnirnar og frásagnir starfs­fólks af eigin vanlíðan flokkar hún blygðunar­laust sem vanstillta umræðu. Meðvirkni ýmissa verkalýðs­forkólfa er síðan beinlínis aumkunar­verð, ef ekki fyrir­litleg. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sem vanalega forðast ekki sviðs­ljósið, fór í felur og þegar loks náðist í hann gat hann ekki tekið afstöðu með fólki sem beitt var rangindum. Viðbrögð Vilhjálms Birgis­sonar, formanns Verkalýðs­félags Akraness, voru einnig snautleg en það tók hann ansi marga daga að stynja því út úr sér að stjórn Eflingar hefði gert mistök en um leið tók hann fram að hann bæri traust til Sólveigar Önnu.“

Það er mat Kolbrúnar að Sólveig Anna og vitorðs­menn hennar hafi stór­skaðað launa­baráttu verka­fólks.

„Sú barátta grundvallast á réttlætis­kröfu og stendur á siðferði­legum grunni. Þessi framganga, gerð í nafni Sólveigar Önnu, er siðlaus og brýtur gegn réttlætis­kennd heiðar­legs fólks. Hún mun ekki gleymast á verkalýðs­daginn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá