Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kanye kominn í bann á Instagram: Áreitni, einelti og rasísk ummæli

Kanye West
Kanye West

Instagram hefur sett rapparann Kanye West í sólarhrings­bann frá miðlinum, vegna brots á reglum miðilsins um haturs­orðræðu, einelti og áreitni. Talsmaður Meta, móður­fyrirtækis Instagram, staðfesti þetta í samtali við miðilinn E! News. Rapparinn getur því ekki birt færslur, skrifað athuga­semdir eða sent einka­skilaboð innan þess tímaramma.

Eins og flestum sem fylgjast með Kanye er kunnugt um, hefur rapparinn farið mikinn á samfélags­miðlum síðustu misseri. Hann hefur meðal annars notað samfélags­miðla til að bera út róg um Kim Kardashian, fyrrum eiginkonu sína, og Pete Davidson, kærasta hennar. Hann hefur gengið svo langt að segja Kim banna sér að hitta börnin þeirra og lýsir Pete hér um bil sem djöflinum holdi klæddum. Nýverið gaf hann til að mynda út tónlistar­myndband þar sem hann grefur leir­eftir­líkingu af Pete lifandi.

Pete Davidson

Talsmaður Meta segir að oft sé gripið til stig­vaxandi aðgerða gagnvart Instagam-reikningum sem ítrekað brjóta reglur miðilsins. Hann bætir því við að gripið verði til frekari refsiaðgerða gagnvart Kanye, haldi hann áfram á sömu braut.

Rasísk ummæli

Ekki er vitað nákvæmlega hvaða færsla það var sem olli þeim viðurlögum sem Kanye er nú látinn sæta af hálfu miðilsins, enda úr mörgu að moða. Hann tók til að mynda þátta­stjórnanda The Daily Show, Trevor Noah, fyrir á dögunum og lét rasísk ummæli falla í tengslum við hann. Í færslunni skipti hann orðinu „Kumbaya“ fyrir rasískt orð.

Í færslunni birti hann skjáskot af Google-leit um Trevor og skrifaði með:

„All in together now… K–n baya my lord k–n baya K–n baya my lord K–n baya Oooo’ lord K–n baya.“

Frétta­miðlar vestanhafs á borð við CNN og Independent hafa fullyrt að téð færsla um Trevor Noah hafi verið sú sem gerði útslagið. Færsluna birti Kanye eftir að þátta­stjórn­andinn hafði gert hegðun Kanye gagnvart fyrr­verandi konu sinni að umfjöllunar­efni í The Daily Show. Í þættinum sagði Trevor að eitthvað sem hefði byrjað sem skilnaðar­skandall fræga fólksins hefði umbreyst í stærri umræðu um áreiti sem margar konur þurfi að þola þegar þær reyni að slíta samböndum.

„Vinsamlegast hættu þessari söguskýringu“

Á dögunum birti Kanye einnig færslu með mynd af bakpoka North, dóttur þeirra Kim, með orðunum: „Þetta var á bakpoka dóttur minnar þegar mér var „leyft“ að hitta hana í síðustu viku. Þetta er ástæðan fyrir því að ég legg svona mikið á mig fyrir fjöl­skyldu mína. Ég er víraður til að vernda fjöl­skylduna mína, hvað sem það kostar.“

Kim Kar­dashian.

Kim, sem hefur annars reynt að tjá sig sem minnst um hegðun fyrr­verandi eigin­manns síns, gat ekki orða bundist við þetta tilefni og skrifaði athugasemd við færsluna. „Vinsamlegast hættu þessari sögu­skýringu, þú varst hérna síðast í morgun að sækja krakkana til þess að fara með þau í skólann.“

Í röð skjáskota sem vinur Pete Davidson birti á dögunum af skila­boðum milli þeirra Pete og Kanye, virðist Pete endanlega hafa fengið nóg af hegðun og áreiti rapparans. „Ég hef ákveðið að ég ætla ekki að leyfa þér að koma svona fram við okkur lengur og ég ætla ekki að þegja. Þroskastu,“ segir í skila­boðum Pete til Kanye.

Innslag Trevor Noah:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt