Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Sveinn gagnrýnir samning við Arion banka: Mosfellsbær „skipulags- og byggingadeild í Arion banka“

Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ,
Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ,

Í dag var undir­ritaður samningur milli Mosfells­bæjar og Arion banka um uppbyggingu á Blika­staðalandi, sem bankinn eignaðist í kjölfar skulda­uppgjörs eftir hrunið árið 2008. Mun Mosfellsbær stækka um 70% þegar uppbyggingunni líkur. Sveinn Óskar Sigurðsson bæjar­fulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ er afar ósáttur við saminginn.

Að hans sögn er Mosfellsbær eitt af skuld­settustu sveitar­félögum landsins. Segir hann við Mannlíf að skulda­hlutfall bæjar­félagsins sé komið í 134% af árstekjum bæjarins og skuldir nemi um 1,5 milljón króna á hvern íbúa, þrátt fyrir eina mestu fjölgun íbúa á síðustu árum. Gagnrýnir Sveinn seinagang Arion banka við að koma Blika­staðalandi á markað. „Í stað þess að koma landinu á markað hélt bankinn þessu landi um árabil þar til húsnæðis­verð á Íslandi varð hæst. Þetta er ekki kjarna­starfsemi banka og á ekki að hvera. Hvers vegna þá heimila stjórn­völd að fjármála­stofnanir geta legið lengi á húseignum almennings og verðmætu byggingar­landi svo árum skipti?“ spyr Sveinn. Ennfremur segir hann að „löggjöf um fjármála­stofnanir og kröfur gagnvart þeim er mikið til sú sama og var við einka­væðingu bankanna á sínum tíma, þ.e. gamla ríkisbanka­löggjöfin. Alþingis­menn, borgar- og bæjar­fulltrúar hafa ekki staðið sig í því að krefjast þess að fjármála­stofnanir stýri ekki húsnæðis­markaðnum með því að liggja á landi og þróa löggjöf sem krefur þá um að koma eignum úr eigna­safni sínu á markað a.m.k. innan árs eftir að það hefur ratað í bækur þeirra að hluta til eða heild.“

Undirlægjuháttur stjórnmálastéttarinnar

Sveinn Óskar segir að það megi skrifa „þennan undirlægju­hátt á stjórnmála­stétt sem að miklu leiti stendur ekki með almenningi í landinu.“ Vill hann meina að víða erlendis sé þetta ekki látið viðgangast og bönkum sé gert að losa sig sem allra fyrst við eignir, fyrirtæki og annað sem er ekki hluti af kjarna­starfsemi þeirra. Gagnrýnir hann að þetta sé heimilað því það valdi því að ungt fólk í dag hafi ekki nokkurn kost á að eignast þak yfir höfuðið, „og eldri borgarar, t.a.m. í Mosfellsbæ, þurfa nú að borga langt yfir 300 þúsund á mánuði í leigu fyrir öryggis­íbúðir sínar.“

Þróun þessi segir Sveinn, er afrakstur af löggjöf til handa banka­stofnunum sem hafa önnur sjónarmið en samfélag eins og Mosfellsbæ. „Með þessu fyrir­komulagi og samningi af þessum toga hafa Sjálfstæðis­menn í Mosfellsbæ og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs gert Mosfellsbæ að skipulags- og bygginga­deild í Arion banka,“ sagði Sveinn að lokum við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá