Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Gíslína segir Epstein hafa eyðilagt líf hennar: „Ég vildi að ég hefði verið áfram í Englandi“

Maxwell og Epstein á meðan allt lék í lyndi.
Maxwell og Epstein á meðan allt lék í lyndi. Mynd: Joe Schildhorn / Patrick McMullan via Getty Images

Gíslína (Ghislaine) Maxwell segist ekki trúa því að Jeffrey Epstein hafi framið sjálfs­morð, í glænýju viðtali úr fangelsinu. Hún segir ennfremur að hann hafi eyðilagt líf hennar.

Hin forsmáða Gíslína (Ghislaine) Maxwell, sem dæmd var í 20 ára fangelsi í fyrra, fyrir aðild sína í mannsals­hring Jeffrey Epstein en þau voru bæði sek um barnaníð og önnur kynferðis­brot gegn fjöldi ungra kvenna. Áður voru þau bæði vel þekkt innan elítunnar vestanhafs sem og í Bretlandi en Andrés prins var kær vinur Epstein sem og Bill Clinton fyrrum bandaríkja­forseti og Bill Gates, einn ríkasti maður heims, svo einungis örfáir eru nefndir. Þau Maxwell og Epstein byrjuðu sem par en síðustu árin vann hún hjá honum við að lokka til þeirra fórnar­lömb.

Jeffrey Epstein er sagður hafa framið sjálfs­morð í fanga­klefa sínum árið 2019 er hann beið réttar­halda. Fæstir trúa reyndar þeirri útskýringu á dauða hans enda aðstæðurnar all furðulegar en ekki verður farið nánar í það í þessari frétt. Hin 61 árs gamla Maxwell segir í glænýju viðtali úr fangelsinu, að hún trúi ekki að Epstein hefði framið sjálfsvíg.

Viðtalið er úr heimildar­mynd á TalkTV, sem kom út í síðustu viku og fjallar um Maxwell en myndinar gerði Daphne Barak. Í viðtalinu segir Maxwell um andlát Epstein:

„Nei, ég trúi ekki að hann hafi gert það. Ég held að hann hafi verið eh … myrtur.“

Þá spurði Barak hana einnig út í hennar eigið mál en hún var nýverið dæmd í 20 ára fangelsi fyrir brot hennar gegn ungum stúlkum og konum. Spurði Barak hana hvað hún myndi vilja segja við þær konur sem hún og Epstein brutu á, svaraði hún:

„Ég myndi segja að Epstein er dáinn og að þær ættu að beina vonbrigðum sínum og vanlíðan að yfir­völdum, sem leyfði þessu að gerast. Og eins og ég sagði, þá vona ég að þær finni einhverja huggun í niður­stöðu réttar­haldanna yfir mér. “

Þá viðurkenndi Maxwell í viðtalinu að kynni hennar af Epstein hafi „eyðilagt“ líf hennar og „sært marga“. Segist hún þó ekki hafa grunað að í honum væri að finna illsku en skautar svolítið framhjá hennar eigin brotum:

„Samband mitt við hann og sú staðreynd að ég vann fyrir hann og eyddi með honum tíma og þekkti hann, hefur augljós­lega eyðilagt líf mitt og sært margt fólk í kringum mig, sem ég elskaði og held nálægt hjarta mínu. Hreinskilnis­lega óska ég þess að hafa aldrei hitt hann. Ég vildi … að ég hefði verið áfram í Englandi. Ég væri þá banka­starfsmaður, þannig að ég hefði átt að flytja frá honum. Ég vissi ekki að hann væri svona skelfi­legur. Ég meina, jú, augljósa veit ég það núna, svona eftir á. En á þeim tíma, ég meina, hann átti ógrynni af vinum. Hann þekkti nánast alla sem þú getur ímyndað þér. Það var engin ástæða að ímynda sér að hann væri einhver sem gæti framið slík illverk.“

Þótt ótrúlegt sé, er fréttin unnin úr frétt Perez Hilton.

Hér er hægt að sjá brot úr viðtalinu við Maxwell:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs