Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Samfélagið logar vegna kaupendalistans: „Það er stéttastríð á Íslandi og hin ríku eru að sigra“

Mynd / Hákon Davíð|Íslandsbanki
Mynd / Hákon Davíð|Íslands­banki

Samfélagið logar stafna á milli, eftir að listi yfir kaupendur í Íslands­banka var birtur í gær. Ef samfélags­miðlar á borð við Twitter og Facebook eru skoðaðir má sjá að mikil reiði ríki í samfélaginu en á listanum var bæði að finna föður Bjarna Benedikts­sonar, fjármála og efnahags­ráðherra og ýmis nöfn sem tengjast banka­hruninu 2008, nöfn eins og Þor­steinn Már Bald­vins­son, Jón Ás­geir Jó­hann­es­son og Guð­björg Matth­ías­dótt­ir. Þá er andrúms­loftið innan Alþingis einnig rafmagnað en stjórnar­andstaðan krefst þess að sérstök rann­sóknarnefnd verði látin rannsaka söluna.

Mannlíf leitaði viðbragða hjá nokkrum þjóð­þekktum einstaklingum sem hafa verið duglegir að gagnrýna hina ýmsu vankanta á íslensku samfélagi.

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks sagði að listinn hefði ekki komið sér á óvart. „Ég verð nú að viðurkenna að ég hef verið með hausinn í öðrum verkefnum og í útlöndum þannig að ég hef ekkert kafar djúpt í listann. En það kemur ekkert á óvart þarna af því sem ég hef séð, bara stað­festing á þeim oligarkisma sem er ríkjandi á Íslandi. Í sýndar­lýðræðinu.“

Logi Már Einarsson formaður Samfylkingarinnar er afar ósáttur við listann. „Traust er mikil­vægasta eign hvers banka. Banki verður að vera umlukinn trausti. Og ef meiningin var að skapa traust í þessu ferli hefur það mistekist. Það kom fram hjá fulltrúum Banka­sýslunnar á fundi með Efnahags og viðskipta­nefnd  að með  fyrstu sölunni hafi tekist að tryggja dreift eignahald og þess vegna hafi verið ákveðið að nýta lokað tilboðs­ferli nú til að tryggja stóra trausta langtíma­fjárfesta.  Niður­staðan varð öll önnur. Manni fallast hendur gagnvart þessum lista. Þarna eru meðal annars erlendir fjár­festar sem keypu í fyrstu umferð og seldu sig strax út með umtals­verðan gróða. Á listanum eru líka aðrir sem hafa ekki beinlínis farsælan feril i bankarreksti, að minnsta kosti ekki út frá sjónar­horni almennings, kunnugleg andlit úr aðdrag­anda Hrunsins. Það er beinlínis ein skilgreiningin á spillingu, að almanna­gæðum sé úthlutað til útvalinna á ógagnsæjan hátt. Þannig háttaði svo sannarlega með þessa sölu.“

Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Sósíalista­flokks Íslands segir að um stéttar­stríð sé að ræða á Íslandi og að hinir ríku sé að sigra.

„Ef fólki blöskrar listinn yfir fólkið sem fékk að kaupa hlut ríkisins í Íslands­banka er það vegna þess að því blöskrar íslenska auðvaldið. Svona er það fyrir­brigði, samansafn af fólki sem hefur auðgast á því að sölsa undir sig auðlindir almennings, fólk sem hefur brotið lög til að koma fé undan skatti, fólk sem hefur skrælt fyrirtæki að innan og eyðilagt bara til að auka við auð sinn og hefur við það notið blessunar og verndar stjórn­valda þrátt fyrir að hafa sýnt það og sannað að það tekur ætíð eigin hagsmuni fram yfir almannahags­muni. Og það er einmitt vegna þess innrætis sem fjármála­ráðherra og banka­sýslan sem þjónar honum vill koma eignum almennings til þessa fólks. Ráðherrann og fylgis­menn hans trúa því að það sé betra að völdin og auðurinn í samfélaginu séu í höndum þeirra sem aðeins hugsa um eigin hag, helst þeirra sem eru svo rík að þau þurfa ekkert á grunn­kerfum samfélagsins að halda og vilja því nýta auð sinn og völd til að brjóta niður velferðar­kerfin og þær varnir sem almenningur hefur bygt upp gegn ægivaldi hinna ríku.

Planið með sölunni er að ríkið sé minnihluta­eigandi og beiti sér ekki við stjórn bankans en styðji þá einka­aðila til valda sem eiga mest. Sama á við um lífeyris­sjóðina, sem er að mestu stjórnað af fulltrúum Samtaka atvinnu­lífsins, hagsmuna­samtaka hinna fáu ríku. Erlendir brask­sjóðir hafa safnað saman blautum til að selja til innlendra einka­aðila. Lítill hópur einka­aðila mun í fram­haldinu ná að stjórna bankanum eins og hann eigi hann allan í skjóli ríkis og lífeyris­sjóða. Þannig hefur Kolkrabbinn alltaf unnið, magnað upp völd sín og áhrif með því að tryggja að ríki og lífeyris­sjóðir vinni alltaf með auðvaldinu og gegn almenningi. Kolkrabbinn er fólk sem varð ríkt eftir að það náði völdum innan ríkis­valdsins og í lífeyris­sjóðunum. Það er einkenni óligarka. Það er fólk sem auðgast í gegnum spillingu.

Það er stétta­stríð á Íslandi og hin ríku eru að sigra. Þau hafa náð undir sig land­helginni og fiskveiði­auðlindinni og þau stefna á að ná undir sig orkunni. Ríkis­stjórnin er með stórfelld áform um einka­væðingu, markmiðið er að koma fjármála­kerfinu til hinna ríku, vega­kerfinu, heil­brigðis- og mennta­kerfinu. Það er í gangi skipulögð yfirtaka á samfélaginu, verið að færa öll verðmæti þess til fólks sem almenningi hryllir við að horfa á, vitandi að þarna fer versta fólkið á Íslandi.“

Mannlíf mun á morgun birta viðbrögð fleiri aðila varðandi málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá