Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þungt fótatak og hrollvekja í eyðibýli á Ströndum: „Þetta er ömurlegt kvöld“

Eiríkur Guðmundsson frá Dröngum í Stranda­sýslu lenti í eftir­minnilegri lífs­reynslu þegar hann fór á tófu­veiðar 19 ára gamall. Hann og félagar hans upplifðu dulræn fyrirbæri sem enn hefur ekki fengist skýring á.

Þetta var um hávetur, í febrúar­mánuði árið 1914. Eiríkur var með tveimur öðrum mönnum við refa­veiðarnar, einkum í landareign fjögurra eyðibýla, í Barðsvík, Smiðjuvík, Bjarnarnes og Látravík.

Þegar mennirnir þrír komu að bænum Smiðjuvík hafði snjóað mikið á svæðinu og þurftu þeir að byrja á því að moka. Þegar mokstrinum var lokið fengu þeir sér heitt kaffi og bjuggu um sig í litlu, illa einangraðu herbergi. Um nóttina skall á óveður og snjóaði inn í herbergið.

Allt í einu heyrðu mennirnir undarlegan smell fyrir utan herbergið, þeir höfðu sett loku fyrir útidyra­hurðina svo þangað gat enginn verið kominn. Á svæðinu voru engar manna­ferðir, sérstak­lega um þennan tíma árs.

Á eftir smellinum heyrðist þungt fótatak inn eftir göngunum og færðist nær herberginu þar sem mennirnir voru. Þeir heyrðu allir fótatakið og brakið í gólfinu og stuttu síðar heyrðust raddir, líkt og hæðin fyrir neðan þá væri full af fólki. Mennirnir heyrðu kvenn­manns-, karlmanns og barnaraddir og hljómuðu raddirnar glaðlegar. Þeim fannst þó undarlegt að enginn þeirra gat skilið hvað fólkið var að segja, þó raddirnar væru mjög háværar. Oft var eins og einhver gengi að hurðinni hjá mönnunum og staðnæmist þar, eins og verið væri að hlusta á eftir þeim.

Þetta hélt áfram í nærrum þrjá tíma eða þangað til einn mannana sagði, „Þetta er ömurlegt kvöld.“ Þá þagnaði allt.

Mennirnir segja þessa reynslu hafa verið einstaka, þeir hafi ekki verið hræddir enda full­vopnaðir en Eiríkur játaði það, að þarna hefði hann ekki viljað vera aleinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá