Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íris þótti óþekk í skóla – Var lögð í einelti og leið bölvanlega í mörg ár

Íris Hólm Jóns­dóttir þótti vera óþekk í skóla, hún var lögð í einelti þar sem hún var bráð­þroska og henni leið bölvan­lega í mörg ár og sinnti ekki náminu sem skyldi og skrópaði oft í skóla. Hún fór út á vinnu­markaðinn eftir skylduna, flosnaði reglulega upp úr vinnu þar sem hún mættti stundum illa eða ekki neitt vegna þess hve henni leið illa, hún fékk loks aðstoð og var greind með jaðar­persónu­leika­röskun og svo ADHD. Íris Hólm Jóns­dóttir lærði síðar leiklist í New York og leið henni betur í stóra eplinu en eftir að heim kom helltist vanlíðanin aftur yfir hana og hún fékk tauga­áfall. Íris var svo greind með geðhvörf í fyrra og hún leggur áherslu á að fólk ræði um geðræn vandamál.

Upplifði sig sem aðhlátursefni

Um eineltið segir hún meðal annars: „Þetta tengdist því að ég var mjög bráð­þroska og ég er ekkert feimin að tala um það af því að mér finnst slíkt líka vera eitthvað sem fólk þarf að ræða um. Ég var átta ára þegar ég byrjaði á blæðingum. Ég byrjaði að fá hár undir höndum og hár á lappir og víðar fljótlega eftir það og það voru athuga­semdir í sundi og í leikfimi. Bendingar og hlátur til dæmis þegar maður var að leika sér og lyfta bolta eða henda bolta; það var alltaf verið að benda manni á þessa hluti og hlæja að manni og þá upplifði maður sig asnalegan; maður upplifði sig sem aðhláturs­efni sem er bara skömm í grunninn.

Ég var höfðinu hærri en allir í árganginum og jafnvel hærri en krakkar sem voru tveimur árum eldri og það var endalaust verið að benda mér á það á göngum skólans,“ segir Íris Hólm Jóns­dóttir sem í dag er 1.68 m.

„Það var verið að labba utan í mig og krakkarnir báðust afsökunar og sögðu að þetta væri óvart en þetta var svo sannarlega ekki óvart. Það var verið að labba á mig þannig að ég kannski hentist utan í vegg. Svo var ég með rosalega mikið af unglinga­bólum mjög snemma; ætli ég hafi ekki verið í 5. bekk – 10 til 11 ára gömul – þegar ég var komin með mikið af bólum á enninu og niður kinnarnar. Það var sagt að ég væri ljót og ég var kölluð „ljóti andar­unginn“ og „skrímsli“. Ég ætlaði einu sinni að leita mér aðstoðar og fór til læknis en ég var þá farin að fela þetta með miklu meiki. Læknirinn hló framan í mig 10 ára gamla og sagði að ég liti út eins og nætur­drottningin þar sem ég notaði svo mikið meik.“

Sjálfskaðandi hegðun

Hún talar um sjálf­skaða á sínum tíma. „Í mínu tilfelli var þetta meira sjálf­skaðandi hegðun; djamm og drykkja og jafnvel eitthvað meira en það. Ég gat stoppað það af áður en það fór út í eitthvað meira. Maður var farinn að djamma um hverja einustu helgi og maður var kannski kominn í partí þar sem maður vissi alveg að þetta væri nú kannski ekkert sniðugt. Það var kannski verið að neyta efna en innsæi mitt sagði mér að þetta væri ekki eitthvað sem ég vildi í mínu lífi.

Það var samt erfitt að koma sér út úr þessum aðstæðum af óttanum við höfnun eða einhvers konar viðmót af því að á þessum tíma var ég nátt­úrlega bara að leitast eftir samþykki alls staðar þar sem ég fór; að ég yrði samþykkt. Ég ímyndaði mér að ef ég færi eða mótmælti þá yrði ég ekki samþykkt þannig að ég lét mig stundum hafa það að vera í aðstæðum sem ég vildi ekki vera í. Svo voru það skaðleg sambönd við karlmenn. Síðan átti ég það til að klóra mig; ég klóraði mig á hand­leggjunum þannig að það sá stundum á en ég klóraði mig ekki til blóðs.

Þetta gerði ég af og til frá því seint á unglings­árunum þangað til ég var 21 árs. Ég gróf nöglunum ofan í hand­leggina þannig að ég fyndi fyrir nöglunum en ég gerði þetta til að leiða athyglina frá sárs­aukanum í huganum. Þetta er leiðin til að ná athyglinni á það sem verið er að gera þá stundina þannnig að hugurinn hættir að snúast eða hamsturinn í hamstra­hjólinu hættir að hlaupa.“

Greindist með geðhvörf

Svo var það greiningin í fyrra: Geðhvörf. „Þetta var sjokk að því leytinu til að það eru ákveðnir fordómar gagnvart geðhvörfum. Ég var líka reið. Ég var aðallega reið eða frekar sár, leið og sorgmædd yfir því hversu mikil þöggun er varðandi geðhvörf. Ef það væri talað jafn­opinskátt um geðhvörf og aðra sjúkdóma – líkamlega eða andlega – þá velti ég því fyrir mér hvort það hefði verið hægt að spotta einkenni hjá mér fyrr.“

Hræðir það hana að vita að hún sé með geðhvörf? „Ég veit ekki hvort það valdi mér beint hræðslu. Mér finnst það vera ákveðin frelsun að vera komin með þessa greiningu. Nú fer ég að pæla í ýmsu og geri mér grein fyrir hvers vegna ég gerði ýmislegt hérna áður fyrr. Áður skildi ég ekki af hverju ég var ekki eins og venjulegt fólk. Núna veit ég að ég hef ekki stjórn á þessu. En það hræðir mig ekki.“

Lesið meira hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá