Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Réðust á dyraverði og ökumaður hársbreidd frá því að keyra á lögreglu

Myndin tengist pistlinum ekki beint
Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í nógu að snúast síðastliðna nótt.

Rétt eftir klukkan hálf tíu í gærkvöld var lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu tilkynnt um ofurölvi mann sem var að reyna að komast inn í bifreiðar í austurbæ Reykja­víkur. Í ljós kom að maðurinn var ekki að gera tilraunir til innbrots heldur var hann einungis of drukkinn til þess að komast heim. Lögregla kom honum því til síns heima.

Töluvert var um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna á höfuð­borgar­svæðinu í gærkvöld og nótt. Einn þeirra ökumanna sem var stöðvaður í nótt, þegar klukkan var að nálgast tvö, var í svo annarlegu ástandi að hann ók á röngum vegar­helmingi og var við það að lenda á lögreglu­bifreiðinni. Ökumaðurinn var hand­tekinn og fluttur á lögreglustöð.

Lögregla hafði eftirlit með skemmtana­haldi í miðbæ Reykja­víkur í gærkvöld og nótt. Lögregla kannaði rekstrar­leyfi ákveðins skemmtistaðar, sem kom í ljós að var útrunnið. Staðnum var því lokað. Á öðrum skemmtistað þurfti lögregla að hafa afskipti af dyra­vörðum. Í ljós kom að þeir voru ekki með tilskilin réttindi til starfsins.

Ráðist var á dyraverði á skemmtistað í miðbænum um klukkan hálf þrjú í nótt. Tveir gerendur voru hand­teknir og vistaðir í fanga­geymslu lögreglu. Málið er í rannsókn samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Ofurölvi maður gekk berserks­gang í miðbænum og braut bílrauðu. Lögreglu reyndist ómögulegt að ræða við manninn á vitrænan hátt og var því ekki annað í stöðunni en að handtaka hann og vista í fanga­geymslu.

Um klukkan hálf þrjú í nótt bárust þónokkrar tilkynningar um mann sem var að veitast að fólki, skammt frá miðbænum. Lögregla handtók manninn þegar hún kom á staðinn og vistaði hann í fanga­geymslu. Maðurinn er grunaður um gripdeild, eigna­spjöll og brot á lögreglu­samþykkt fyrir Reykja­víkurborg.

Fleiri réðust á dyraverði í nótt og var lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu kölluð til vegna slíks atviks. Þegar hún kom á staðinn neitaði gerandinn að segja til nafns og gat, samkvæmt lögreglu, ekki tjáð sig vits­munalega. Því var ekki annað í stöðunni en að vista viðkomandi í fanga­klefa og láta renna af honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá