Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Framúrskarandi matur og frábært viðmót

Montréal er ein af fal­leg­ustu borgum Kanada og býður upp á fjöl­breytta mögu­leika fyrir ferða­menn.

Framúrskarandi matur og frábært viðmót

Borgin er fræg fyrir frá­bæran mat og það sama á við um þjón­ust­una. Borgin er frönsku­mæl­andi en lang­flestir tala þó ensku líka.

Jacques Cartier-brúin liggur yfir á eyj­una Sainte-Hélène og þar er meðal ann­ars skemmti­garð­ur­inn Le Ronde. Hvers kyns tívolítæki fyrir unga sem aldna eru í garð­inum og þar eru oft haldnir alls konar við­burðir og tón­leikar.

Gamli bær­inn í Montréal er heill­andi og þar er ynd­is­legt að labba um stein­lagðar göt­urnar og virða fyrir sér fal­legan arki­tekt­úr­inn og mann­lífið. Þar er fjöld­inn allur af veit­inga­stöðum og kaffi­húsum sem mörg hver skora hátt á TripA­dvisor. Lista­gall­erí eru víða sem og svo­kall­aðar „lunda­búðir“ en stærri versl­un­ar­keðjur eru ann­ars staðar. Notre Dame-kirkjan trónir yfir torgið d‘Armes. Óhætt er að mæla með því að borga sann­gjarnt gjaldið við inn­gang­inn og skoða þessa stór­kost­legu bygg­ingu.

Skammt frá gamla bænum er Kína­hverfið. Þar eru ótal asískir veit­inga­staðir, mat­ar­mark­aðir og versl­anir. Úr hverri höf­uð­átt inn í hverfið eru fjögur hefð­bundin kín­versk hlið (pai­fang) sem gefin voru af Shanghai árið 1999. Einni götu fyrir ofan Kína­hverfið er Rue Sainte-Catherine sem er aðal­versl­un­ar­gata borg­ar­innar og mjög löng. Þar er að finna allar helstu versl­un­ar­keðj­urnar, eins og H&M, Apple, Sport Experts, Zöru, North Face og svona mætti lengi telja.

Gamli bær­inn og hinar ýmsu versl­un­ar­mið­stöðvar Rue Sainte Catherine tengj­ast í gegnum The Underground City sem er nokk­urs konar versl­un­ar­borg undir mið­borg­inni. Fyrir þá sem koma þangað í fyrsta sinn getur reynst all­flókið að rata því rang­hal­arnir virð­ast enda­lausir.

Neð­an­jarð­ar­borgin teng­ist einnig neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerf­inu og hentar vel að nota hvort tveggja yfir hávet­ur­inn þegar frost­hörkur eru sem mestar og yfir sum­arið þegar hit­inn er hvað mestur. Þarna má labba langar leiðir milli staða án þess að koma nokkru sinni upp á yfir­borðið.

Gamli bær­inn í Montréal er heill­andi og þar er ynd­is­legt að labba um stein­lagðar göt­urnar og virða fyrir sér fal­legan arki­tekt­úr­inn og mann­lífið. Þar er fjöld­inn allur af veit­inga­stöðum og kaffi­húsum sem mörg hver skora hátt á TripA­dvisor.

Fyrir austan miðbæ Montréal er hverfið Gay Village. Á hverju sumri lok­ast sá hluti Sainte-Catherine Street sem til­heyrir Gay Village fyrir akandi umferð og lista­verkið Pink Ball eftir lands­lags­arki­tekt­inn Claude Cormier er hengt yfir göt­una á eins kíló­metra kafla. Í ár lét hann verkið hins vegar mynda regn­boga­lit­ina í stað bleikra tóna. U.þ.b. 200 þús­und kúlur eru í verk­inu. Hverfið á sér ára­tuga langa sögu og byrj­aði fyrir alvöru að mynd­ast um og eftir Expo 67.

Gamli bær­inn í Montréal er heill­andi og þar er ynd­is­legt að labba um stein­lagðar göt­urnar og virða fyrir sér fal­legan arki­tekt­úr­inn og mann­lífið.

Expo og manngerðar eyjar

Í Montréal er margt að skoða. Fjallið, eða kannski rétt­ara sagt hæðin, Mont Royal sem borgin heitir eftir trónir fyrir ofan bæinn. All­margar göngu­leiðir eru á topp­inn bæði á mal­bik­uðum stígum og troðn­ingum í gegnum skóg­inn. Til dæmis er hægt að hefja göng­una við Sir George Etienni Cartier-minn­is­merkið. Aðal­út­sýn­is­stað­ur­inn af hæð­inni er við Chalet du Mont-Royal og þar er magnað að horfa yfir borg­ina.

Jacques Cartier-brúin liggur yfir á eyj­una Sainte-Hélène og þar er meðal ann­ars skemmti­garð­ur­inn Le Ronde. Hvers kyns tívolítæki fyrir unga sem aldna eru í garð­inum og þar eru oft haldnir alls konar við­burðir og tón­leikar.

Heims­sýn­ingin Expo 67 var haldin á eyj­unni árið 1967 sem og á eyj­unni Notre Dame sem var mann­gerð árið 1965 fyrir sýn­ing­una, meðal ann­ars úr efni frá gerð neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerf­is­ins. Sainte-Hélène var stækkuð af sama til­efni. The Biosphere-hvelf­ingin er meðal þess sem enn stendur eftir sýn­ing­una.

Árið 1999 var eyj­unum gefið sam­eig­in­lega nafnið Parc Jean-Drapeau til minn­ingar um bog­ar­stjór­ann sem hjálp­aði til við að fá Expo 67 til eyj­anna á sínum tíma og lét byggja neð­an­jarð­ar­lest­ina.

haust var par­ís­ar­hjól tekið í notkun á bökkum St. Lawrence-árinnar fyrir neðan gamla bæinn. Þar er ljúft að taka sér far og fá útsýni yfir ána, eyj­arnar og skýja­kljúf­ana.

Ljúffengur matur

Borgin er þekkt fyrir ríka mat­ar­menn­ingu og hver veit­inga­stað­ur­inn á fætur öðrum býður upp á ein­stak­lega góðan mat og fram­úr­skar­andi þjón­ustu. Morg­un­matur er sjaldan inni­fal­inn í hót­el­verði og þá er um að gera að kíkja á einn af mörgum morg­un­verð­ar­stöðum borg­ar­innar. Eggspectation býður upp á frá­bært úrval og ljúf­fenga safa. La Finsa Coffee and Office hefur heima­til­bú­inn mat á boðstólum og besta kaffið að margra mati. Einnig má mæla

Pítsu­stað­ur­inn Pizzeria Bros lætur lítið yfir sér en þar fást virki­lega góðar pít­sur sem pant­aðar eru yfir afgreiðslu­borð líkt og á Subway.

með Brass­erie 701 sem er virki­lega flottur staður rétt hjá Notra Dame-kirkj­unni. Montréal er þekkt fyrir beygl­urnar sínar og einn þekkt­asti beyglu­stað­ur­inn er lík­lega Fairmount Bagel.

Pítsu­stað­ur­inn Pizzeria Bros lætur lítið yfir sér en þar fást virki­lega góðar pít­sur sem pant­aðar eru yfir afgreiðslu­borð líkt og á Subway. Nokkur borð eru á staðnum til að sitja við en það er líka til­valið að sækja þangað pítsu til að fara með upp á hótel að borða.

Einnig er óhætt að mæla með Piazza del Sogno sem er aðeins fínni pítsu­staður með ekta ítölskum pít­sum og ef þið viljið steikur þá býður keðjan The Keg Steakhouse upp á ljúf­fengar nauta­steikur. Veit­inga­stað­ur­inn Terrasse William Gray er stað­settur á ver­önd efstu hæðar sam­nefnds hót­els og þar eru fram­reiddir virki­lega flottir smá­réttir og kok­teilar. Það sem er alveg extra þægi­legt við veit­inga­staði og kaffi­hús í Montréal er að þar er ekk­ert mál að fá sund­ur­lið­aðan reikn­ing þegar hópur fólks er saman úti að borða og það sem meira er að þjón­arnir gera það með bros á vör.

Annars er gagn­legt að fara inn á TripA­dvisor og skoða umsagnir stað­anna áður en haldið er af stað og oft er betra að vera búinn að panta á vin­sælli stöðum.

Höfundur og ljós­mynd­ari / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina