Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Fátt eins dásamlegt og að leggjast í dúnmjúkan mosabing“

Ingunn Anna Þrá­ins­dóttir fram­leiðir alls­konar vörur undir merkjum Mosa.

Ingunn Anna Þrá­ins­dóttir, graf­ískur hönn­uður hjá Hér­aðs­prenti á Egils­stöðum, rekur einnig fyr­ir­tækið Mosa kósímosa. Vörurnar eru allar hand­unnar og hand­þrykktar, öll hrá­efni eru nátt­úru­leg og allar vör­urnar hafa nota­gildi.

Ingunn Anna Þrá­ins­dóttir, graf­ískur hönn­uður hjá Hér­aðs­prenti á Egils­stöðum, rekur einnig fyr­ir­tækið Mosa kósímosa.

„Árið 2010 byrj­aði ég með litla hug­mynd sem hét Flóra Icelandic Design. Sú hug­mynd kvikn­aði eftir lista­manna­dvöl sem ég fór í til Vesterå­len í Norður-Noregi. Í þeirri dvöl vann ég gríð­ar­legt magn plöntu­teikn­inga og mig lang­aði til að þróa ein­hvers­konar vöru­línu upp úr því, ann­að­hvort úr pappír eða textíl. Þannig þró­að­ist Flóra í að verða lítið hönn­un­ar­stúdíó sem fram­leiddi og seldi vörur.

Núna sjö árum síðar lang­aði mig að „re-branda“ Flóru, það er að segja að end­ur­mark­aðs­setja Flóru undir nýju nafni og með ferskum and­blæ. Flóra kemur úr nátt­úr­unni. Eftir miklar vanga­veltur um nýtt nafn ákvað ég að Mosi kósí­mosi yrði það rétta.

Ég hef áður sagt að það sé fátt eins dásam­legt og að leggj­ast í dún­mjúkan mosa­bing, eitt­hvað sem flestir Íslend­ingar þekkja. Mosi er harð­ger, vex hægt en pjakk­ast áfram, svona eins og ferlið er stundum þegar maður reynir að vinna áfram góða hug­mynd en hefur ekki allan sól­ar­hring­inn til þess.

Ég þarf að deila tíma mínum milli átta klukku­stunda dag­vinnu í Hér­aðs­prenti, hugsa um heim­ili, sinna áhuga­málum og sinna Mosa. Þetta getur stundum orðið snúið en með íslenska hark­inu tekst það.

„Mosi er harð­ger, vex hægt en pjakk­ast áfram, svona eins og ferlið er stundum þegar maður reynir að vinna áfram góða hug­mynd en hefur ekki allan sól­ar­hring­inn til þess.“

Maðurinn minn, hann Steini Palli, er mér stoð og stytta í þessu öllu, hann er mjög hvetj­andi og hrósar mér oft þegar ég er þreytt,“ segir Ingunn en eig­in­maður hennar heitir fullu nafni Stein­grímur Páll Hreið­ars­son og sam­eig­in­lega eiga þau fjögur börn og einn hund og búa á Egils­stöðum.

Ingunn fram­leiðir alls­konar vörur undir merkjum Mosa og má þar nefna gjafa­kort, gjafa­pappír og textíl­vörur svo sem serví­ettur, viska­stykki, dúka og svuntur. „Svo dettur stundum eitt og annað inn á borð hjá mér sem er sér­pantað. Ég held að teikn­ing­arnar mínar geri vör­urnar mínar sér­stakar. Vörurnar eru allar hand­unnar, hand­þrykktar og mitt fingrafar

Ingunn fram­leiðir alls­konar vörur undir merkjum Mosa og má þar nefna gjafa­kort, gjafa­pappír og textíl­vörur svo sem serví­ettur, viska­stykki, dúka og svuntur.

er á þeim öllum á ein­hvern hátt. Allt hrá­efni er nátt­úru­legt og allar vör­urnar hafa nota­gildi. Ég er trú mínu skap­andi sjálfi, þ.e. ég teikna, þróa og fram­leiði bara það sem höfðar til mín og losar um mína þörf til að skapa. Ég elti ekki bara tísk­una, mínar vörur eru ekki eins í útliti og neitt annað.“

Foreldrarnir fyrirmynd

Ingunn ólst upp á Egils­stöðum og segir að nálægðin við nátt­úr­una, fjöl­skyldu og vini sé dýr­mæt minn­ing. Sem barn fékk Ingunn strax áhuga á öllu skap­andi. For­eldrar hennar byrj­uðu með Hér­aðs­prent þegar hún var eins árs og hún ólst upp í kringum það.

„Pabbi smíð­aði og mál­aði margs konar hluti og það hefur örugg­lega kveikt áhuga minn. Ég fór í Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð strax eftir grunn­skóla. Þaðan flækt­ist ég í frönsku­nám upp í HÍ en hætti eftir 1 ár og fór að vinna. Mig lang­aði gríð­ar­lega í hönn­un­ar­nám og haustið 1999 fór ég til Halifax í Kanada í fjög­urra ára háskóla­nám í Communication Design, útleggst lík­lega sem sam­skipta­hönnun á íslensku en ég kalla það nú bara graf­íska hönnun.

Fram undan er svo að þróa nýjar vörur, teikna og grúska í pappír og textíl. Hægt er að kaupa vör­urnar í Húsi hand­anna á Egils­stöðum og í vef­verslun www.mosi.shop.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir og úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina