Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þekki málefnið af eigin reynslu“

Kolbrún Bald­urs­dóttir sál­fræð­ingur heldur fyr­ir­lestra og nám­skeið um ein­elti fyrir fólk á öllum aldri.

„Þekki málefnið af eigin reynslu“

Kolbrún Bald­urs­dóttir hefur starfað sem sál­fræð­ingur í 25 ár. Hún rekur eigin sál­fræði­stofu ásamt því að vera í hluta­starfi á heilsu­gæslu og sinna sál­fræði­þjón­ustu fyrir hæl­is­leit­endur. Hún heldur einnig fyr­ir­lestra og nám­skeið um ein­elti fyrir fólk á öllum aldri og ekki síst for­eldra bæði fórn­ar­lamba og ger­enda. Við fengum hana til að gefa okkur inn­sýn í við­fangs­efnið.

Kolbrún Bald­urs­dóttir hefur starfað sem sál­fræð­ingur í 25 ár. Mynd/ Hákon Davíð Björns­son

„Snemma á ferli mínum tóku ein­elt­is­málin hug minn,“ segir Kolbrún. „Mér fannst alltaf svo inni­lega sárt að hitta ein­stak­linga, börn og full­orðna sem voru nið­ur­brotin vegna þess að ein­hver einn eða fleiri höfðu verið að níð­ast á þeim leynt og ljóst. Skaðsemi lang­vinns ein­eltis getur verið mann­skemm­andi og dæmi eru um að and­leg líðan þol­anda er rústir einar eftir ein­elti. Afleið­ingar lifa stundum með mann­eskj­unni alla ævi þótt margir finni leið með eða án aðstoðar til að milda og lifa með sárs­auk­anum, brot­inni sjálfs­mynd og við­loð­andi höfn­un­ar­til­finn­ingu. Þeir sem koma úr erf­iðum upp­eld­is­að­stæðum, eiga erfitt félags­lega eða glíma við annan vanda fyrir ná sér jafn­vel ekki á strik eftir að ein­elti hefur bæst við. Þá er eins og mælir­inn fyllist end­an­lega. Dæmi eru um að fólk verði öryrkjar og ein­staka sjá enga von­ar­glætu og hafa svipt sig lífi.

Mér hefur alltaf fund­ist að við, ein­stak­lingar, hópar og sam­fé­lagið allt, ættum að geta gert eitt­hvað veru­lega raun­hæft í þessum málum, ekki bara til skemmri tíma heldur til fram­tíðar. Ein­elt­is­hegðun mun koma upp endrum og sinnum en með skil­virkum for­vörnum, virkri við­bragðs­á­ætlun og fag­legri vinnslu mála sem koma upp getur veru­lega dregið úr ein­elt­istil­burðum og ef mál kemur upp skiptir öllu að gripið sé strax inn í og ein­elti stoppað nán­ast í fæð­ingu.“

Kolbrún hefur skrifað fjölda greina og pistla um hug­myndir í þessu sam­bandi ásamt því að þekkja málið af eigin raun. „Ég hef komið að vinnslu þess­ara mála í mörg ár bæði í málum þar sem aðilar eru börn, ung­lingar og full­orðið fólk. Ég held að ég hefði aldrei getað rætt af neinu alvöru öryggi um þessi mál nema af því að ég hef sjálf fengið að snerta á þeim með beinum hætti. Með hverju máli sem ég hef komið að sem sál­fræð­ingur hef ég sjálf lært eitt­hvað nýtt og þróað þannig hug­mynda­fræð­ina og betrumbætt verk­lagið.“

Breytt viðhorf og úrlausnir

Auk fræðslu­fyr­ir­lestra og greina­skrifa var Kolbrún með sál­fræði­þætti, Í nær­veru sálar, á ÍNN meðal ann­ars um ein­elt­is­mál. „Það var um það leyti sem Skóla­vef­ur­inn bað mig að skrifa leið­bein­inga­bók um ein­elti. Bókin EKKI MEIR kom út 2012 og strax í kjöl­farið fór ég í sam­starf við Æsku­lýðs­vett­vang­inn og nokkur sveit­ar­fé­lög og fékk enn frek­ari tæki­færi til að fara um allt land og miðla því hvernig fyr­ir­byggj­andi vinna gæti litið út með við­bragðs­á­ætlun, til­kynn­ing­ar­eyðu­blaði, verk­ferlum og verk­lagi. Þessum hug­myndum mínum um for­varnir og úrvinnslu ein­elt­is­mála var hvar­vetna vel tekið. Margir tóku þessar leið­bein­ingar upp strax í kjöl­farið og til­eink­uðu sér verk­færi sem mér fannst hafa gagn­ast mér í þessum málum. Það gaf mér enn meiri kraft til að halda áfram þessu verk­efni. EKKI MEIR ævin­týrið er enn í gangi og lifir góðu lífi og ég mun sinna þeirri fræðslu áfram næstu árin.“

Kolbrún segir að sam­fé­lagið við­ur­kenni nú ein­elti og skað­semi þess sé flestum orðin kunn. Einnig sé nán­ast horfið að fólk full­yrði að ein­elti sé ekki til á þeirra vinnu­stað eða skóla. „Allt hefur gerst með meiri hraða eftir til­komu sam­fé­lags­miðl­anna. Nú tjáir sig hver sem vill um sína reynslu til dæmis á Facebook og við­brögðin láta ekki á sér standa. Sam­fé­lags­miðlar koma málum sann­ar­lega hratt upp á borð. Eðli þess­ara mála er svipað í dag og áður að mörgu leyti nema við hefur bæst net­ein­elti með til­komu Netsins og sam­fé­lags­miðl­anna. Þau mál eru afar erfið vegna þess að net­níð eða myndir sem ætlað er að skaða og meiða breið­ast út af ógn­ar­hraða svo engin bönd ná utan um. Á Netinu geta ger­endur blómstrað þar sem þeir hafa falið sig í lok­uðum grúppum, þykj­ast vera aðrir en þeir eru eða eru undir fölskum nöfnum.

„Ég man þegar dætur mínar voru litlar þá spurði ég þær af og til eft­ir­far­andi spurn­inga: Ert þú ekki örugg­leg góð við alla í bekknum? Eru krakk­arnir góðir við þig? Heldur þú að ein­hverjum í þínum bekk líði illa vegna ein­hvers í bekknum? Ef kom svar sem hringdi bjöllum var síðan brugð­ist við því eftir atvikum.“

Við erum farin að hjálpa þeim sem stríða og meiða önnur börn. Börnum sem þetta gera þarf að hjálpa. Þetta eru börn sem oft líður illa með sjálf sig og eiga erfitt í skóla-, félags- eða fjöl­skyldu­að­stæðum. Sum eru reið inni í sér, önnur hafa ein­fald­lega ekki fengið við­eig­andi leið­bein­ingar um sam­skipti og stundum má tengja orsakir við per­sónu­ein­kenni eða röskun sem barn kann að glíma við. Við þolendur reynum við að ítreka að þetta er ekki þeim að kenna. Þeim er ekki strítt vegna þess að þau eru svo ómögu­leg. En þótt sá sem verður fyrir ein­elti viti vel að þetta er vandi þess sem sýnir hina vondu hegðun þá líður honum oft engu að síður ömur­lega og spyr sig: „Af hverju ég?“ Og for­eldrar spyrja: „Af hverju barnið mitt?“ Full­orðnum þol­anda tekst iðu­lega betur að „skila skömminni“ en ung­lingum sem eru enn að móta og þroska sína sjálfs­mynd.

Nú höfum við verk­færi til að taka á þessum málum og gerð er krafa um að for­varn­ar­starfi sé sinnt. Á heima­síðu minni kol­brun­bald­urs.is má finna allan fróð­leik um for­varnir og úrvinnslu ein­elt­is­mála sem ég hef fram að færa. Barna­heill er einnig með frá­bært verk­efni, Vinátta – for­varn­ar­verk­efni gegn ein­elti, sem komið er í tugi leik­skóla um land allt og er nú á haustönn verið að bjóða upp á það fyrir fyrstu bekki grunn­skóla, sjá nánar um það á barna­heill.is.“

Samstarf við foreldra mikilvægt

Kolbrún segir að hlut­verk for­eldra sé stórt í ein­elt­is­málum eins og öðrum sem varða börn þeirra. „Þá gildir einu hvort um er að ræða for­eldra barna sem sjaldan eða aldrei hafa orðið fyrir stríðni eða ein­elti sem og for­eldra barna sem eru þolendur nú eða barna sem kvartað hefur verið út af vegna ein­elt­is­hegð­unar. Reynsla for­eldra barna í þessum málum er iðu­lega erfið og sárs­auka­full. For­eldrar þolenda finna oft til mik­ils van­máttar, kvíða, reiði og sorgar, ótta og óvissu um hvernig tekið verði á mál­inu og hvort tak­ist að stöðva ein­eltið. For­eldrar barna sem kvartað er yfir líður einnig oft mjög illa. Stundum trúa þau því ekki að barn þeirra hafi sýnt við­líka hegðun, aðrir for­eldrar segj­ast ekk­ert endi­lega hissa t.d. ef barn þeirra á sögu um að hafa sýnt af sér slæma fram­komu. Flestir for­eldrar finna til sterkrar vernd­ar­til­finn­ingar þegar barn þeirra er ásakað um að leggja í ein­elti og þá án til­lits til hvort for­eldrar trúi ásök­un­unum eða ekki. Það er ekk­ert nema eðli­legt. Aðal­at­riðið er að vinna með skól­anum eða félaga­sam­tök­unum að fá málið upp á borð þannig að hægt sé að skoða það og ljúka því. Stundum er svona mál byggt á mis­skiln­ingi sem leys­ist auð­veld­lega þegar farið er að skoða málið nánar. Þá kemur jafn­vel í ljós að ekki var um að ræða ein­elti heldur ein­hvern mis­skiln­ing jafn­vel, stundum hefur verið um að ræða valda­bar­áttu og stundum er um flokka­drætti að ræða. Þessi mál geta verið gríð­ar­lega flókin og marg­slungin eins og oft þegar kemur að mann­legum sam­skiptum.

Kolbrún segir að sam­fé­lagið við­ur­kenni nú ein­elti og skað­semi þess sé flestum orðin kunn.

Samvinna for­eldra við skóla og aðrar stofn­anir sem barnið er hjá skiptir öllu þegar erfið mál koma upp. Þá reynir á að aðilar treysti hver öðrum og sjái að hags­munir barn­anna er það sem skiptir öllu og þá er átt við hags­munir allra barn­anna sem að mál­inu koma. For­eldrar eru lyk­il­að­ilar þegar graf­ast á fyrir um orsakir og stöðva óheilla­þróun máls­ins. For­eldrar eru einnig áhrifa­mestu fyr­ir­myndir barna sinna. For­eldrar sem horfast ekki í augu við mein­tan hlut barna sinna í kvört­un­ar­máli eru að senda þeim „vond skila­boð“ sem koma þeim ekki til góða hvorki nú né síðar. Í þeim til­fellum sem for­eldrar eru e.t.v. óánægðir með skól­ann má sú óánægja aldrei verða til að hindra sam­vinnu þegar greiða á úr erf­iðum málum.

Enginn stendur eins nærri börn­unum og for­eldrar þeirra. Hvað varðar fræðslu og þjálfun barna í sam­skiptum skiptir máli að byrja um leið og þroski leyfir að kenna þeim að koma vel fram við alla, líka þá sem eru ekki endi­lega vinir eða bestu vinir. Kenna þeim að setja sig í spor ann­arra, að láta vita ef þeir sjá stríðni eða ein­elti og ekki megi skilja út undan. Ég man þegar dætur mínar voru litlar þá spurði ég þær af og til eft­ir­far­andi spurn­inga: Ert þú ekki örugg­leg góð við alla í bekknum? Eru krakk­arnir góðir við þig? Heldur þú að ein­hverjum í þínum bekk líði illa vegna ein­hvers í bekknum? Ef kom svar sem hringdi bjöllum var síðan brugð­ist við því eftir atvikum. Með ein­földum spurn­ingum er hægt að fylgj­ast með gangi mála í skólum barna sinna og ef barnið sýnir van­líð­un­ar­einn­kenni eða upp­lýsir um ofbeld­is­at­vik af ein­hverju tagi er mik­il­vægt að hafa strax sam­band við skól­ann eða íþrótta- eða æsku­lýðs­fé­lagið. Öllu skiptir að hafa sam­band og sé nið­ur­staðan að til­kynna ein­elti að koma þá kvörtun­inni á fram­færi með skrif­legum hætti. Ef kvörtunin er ein­ungis munn­leg er alltaf meiri hætta á að upp­lýs­ingar skili sér ekki nægj­an­lega vel og meiri hætta er á mis­skiln­ingi. Hlutverk for­eldra er líka að taka virkan þátt í að gera kannski gott kerfi betra og koma með góðar ábend­ingar og til­lögur sem geta bætt verk­ferla skóla í þessum málum.“

„For­eldrar sem horfast ekki í augu við mein­tan hlut barna sinna í kvört­un­ar­máli eru að senda þeim „vond skila­boð“ sem koma þeim ekki til góða hvorki nú né síðar.“

Kolbrún býður meðal ann­ars upp á pró­gramm fyrir for­eldra barna sem tengj­ast ein­elt­is­málum. „Í þeim fyr­ir­lestri sem ég hef sniðið með for­eldra í huga í þessum málum fer ég í gegnum þessa þætti. Ég byrja á að ræða birt­inga­myndir ein­eltis, algengar orsakir og ástæður stríðni og ein­eltis. Einnig tengsl ADHD og ein­eltis og hvernig það geti mögu­lega verið áhættu­þáttur bæði fyrir að stríða og vera strítt/lagður í ein­elti. Áherslan er síðan á hlut­verk og aðkomu for­eldra að þessum málum, reynslu þeirra og með hvaða hætti þeir geta komið sterkar inn í for­varn­ar­starf og úrvinnslu­starf. Loks fer ég lið fyri lið yfir hvernig ferli frá til­kynn­ingu til mála­loka lítur út frá sjón­ar­horni for­eldra.“

Hún ætlar að miðla því sem hún kann í þessum mála­flokki eins lengi og óskað er eftir. Ég mæti á eins marga staði og ég get, nota heima­síð­una og bíð upp á hand­leiðslu og ráð­gjöf á stofu. Þetta er ekki lengur bara ein­hver vinna hjá mér heldur löngu orðið hug­sjón og áhuga­mál vegna þess að ég veit og skynja að þessum málum er hægt að þoka til enn betri vegar.“

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir/ www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina