Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Vetrargöngur á fjöll eru ekki síðri að fegurð“

Anna Bryndís Skúla­dóttir á margar upp­á­halds­göngu­leiðir á Aust­ur­landi.

„Vetrargöngur á fjöll eru ekki síðri að fegurð“
Fyrir sjö árum stofn­uðu nokkrar fjalla­geitur Fjall­göngu­klúbb­inn Fjall­hress og síðan þá hafa með­limir hans gengið á eitt alvöru­fjall í mán­uði, farið í ótal létt­ari göngur en einnig krefj­andi ferðir utan fjórð­ungs.

„Ég er fædd og upp­aldin á Borg­ar­firði eystra en bjó á Egils­stöðum í um 30 ár,“ segir Anna Bryndís eða Bryndís eins og hún er kölluð. „Ég er mik­ill nátt­úru­unn­andi og fjalla­geit og hef notið ríku­lega þess mikla fjöl­breyti­leika sem Borg­ar­fjörður og Fljóts­dals­hérað bjóða upp á til nátt­úru­skoð­unar og göngu­ferða. Borg­ar­fjörður er þekktur fyrir sinn form­fagra og lit­skrúð­uga fjalla­hring og er þar meðal ann­ars að finna annað stærsta líp­ar­ít­svæði lands­ins. Víkurnar sunnan Borg­ar­fjarðar eru löngu orðið þekkt göngu­svæði með mikla sögu og merka jarð­fræði. Fljóts­dals­hérað er hins vegar víð­feðm­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins með gríð­ar­legan fjöl­breyti­leika í lands­lagi. Fjöl­breyti­leiki flóru, gróð­urs og dýra­lífs er að sama skapi mik­ill og má þar nefna heima­haga hrein­dýra við Snæfell og varp­land heiða­gæsa á Eyja­bökkum sem er fögur gróð­ur­vin á hálend­inu austan Snæfells.“

Fyrir sjö árum stofn­uðu nokkrar fjalla­geitur Fjall­göngu­klúbb­inn Fjall­hress og síðan þá hafa með­limir hans gengið á eitt alvöru­fjall í mán­uði, farið í ótal létt­ari göngur en einnig krefj­andi ferðir utan fjórð­ungs. „Vetr­ar­göngur á fjöll eru ekki síðri að feg­urð en á sumrin og er birtan oft ómót­stæði­leg á þessum tíma. Aust­ur­land er algjör fjall­göngupara­dís og sækjum við heim fjöll til okkar góðu nágranna um allt Aust­ur­land. Á fimm árum hafa Fjall­hressir gengið á yfir sex­tíu 1000 m háa tinda og er hæð­ar­tala sam­tals orðin um 36.000 m. Wildboys.is skipu­leggja, reka og sjá um leið­sögn Fjall­hressra.

Dyrfjöll – Súla (1136 m)

Krefj­andi ganga, óstikuð. Gengið frá Brands­bala­rétt upp fagran Jök­ul­dal­inn sem er mikil hvilft austan Dyr­fjalla og ein­kenn­ist af þursa­bergi af öllum stærðum og gerðum og áin bugð­ast fag­ur­lega um slétta gras­bala. Ævin­týra­legt er að nálg­ast síðan þver­hnípt kletta­stál Dyr­fjalla þar sem gengið er inn á jök­ul­fönn við rætur þess. Gengið er inn á blómi skrýdda rák í fjall­inu þar sem fara þarf með gát við gjá sem oft er milli jök­uls og kletta­stáls. Fjallið er bratt en stór­feng­legt útsýni í stór­brotnu lands­lagi. Göngu­vega­lengd er 18 km. Mæli með leið­sögu­manni.

Fljótsdalur – Laugarfell á Fljótsdalshéraði

Mjög fal­leg stikuð göngu­leið frá Kleif í Norð­ur­dal í Fljóts­dal upp í Lauga­fell um 12 km leið. Gengið er upp með Jök­ulsánni sem er þekkt fyrir marga fagra fossa, stóra sem smáa. Gengið er um þétt­vax­inn Kleif­ar­skóg og skal var­ast að láta villt jarð­ar­ber sem mikið er af ginna sig um of, því skóg­ur­inn er þéttur á köflum og mik­il­vægt að hóp­ur­inn haldi saman. Í Lauga­felli er mynd­ar­legt hostel með veit­inga­sölu og dásam­legum nátt­úru­laugum. Góður vegur er úr Fljóts­dal í Lauga­fell til að kom­ast til baka. Einnig er hægt að ganga frá Kleif allt að Eyja­bakka­fossi, 20 km leið, og láta sækja sig þangað.

Skælingur (832 m) á Borgarfirði eystra

Skæl­ingur er skemmti­legt göngu­fjall með stór­kost­legu útsýni yfir Loð­mund­ar­fjörð, Seyð­is­fjörð og til Víkur en einnig er ein­stak­lega fal­legt útsýni á hinn fagra Hvítserk. Skæl­ingur er stundum kall­aður Kín­verska must­erið vegna ein­stæðrar lög­unar sinnar. Gengið er á fjallið frá akveg­inum upp á Neshálsi milli Húsa­víkur og Loð­mund­ar­fjarðar eftir ómerktri leið á tind­inn og ágætt er að ganga upp inn­ar­lega á fjall­inu, vest­ar­lega. Leiðin er brött en stutt þar sem byrjað er í mik­illi hæð.

Snæfell (1833 m) á Fljótsdalshéraði

Auðvitað valdi ég Snæfell ,,kon­ung íslenskra fjalla“ á upp­á­halds­list­ann en fjallið er hæsta fjall lands­ins utan jökla og liggur skammt norðan Vatna­jök­uls. Fjallið er innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs og er stikuð leið skammt frá Snæ­fells­skála á fjallið úr suð­vestri allt að jökli, gott er að fá upp­lýs­ingar hjá land­verði um leið­ina. Ráðlegt að hafa göngustafi og keðju­brodda með­ferðis. Í góðu skyggni er mikið og gríð­ar­fal­legt útsýni af fjall­inu meðal ann­ars yfir Eyja­bakka. Úrval göngu­leiða er í nágrenni Snæfells og til­valið að dvelja á svæð­inu nokkra daga og ganga, má nefna Þjófa­dali, hring um Snæfell og Vatnsdal.

Stórurð á Fljótsdalshéraði

Fáséð furðu­ver­öld sem eng­inn ætti að láta fram hjá sér fara. Þar ægir saman þursa­bergs­björgum á stærð við blokkir innan um sléttar grundir og túrk­is­bláar tjarnir. Dyrfjöll gnæfa yfir í botni dals­ins og flikru­berg skreytir fjalls­hlíðar. Hægt er að velja um nokkrar stik­aðar göngu­leiðir til og frá Stórurð og til­valið að velja aðra leið til baka en komið var, algeng­ustu leiðir eru um 15 km sam­tals en einnig er hægt að velja lengri leiðir sem liggja til Borg­ar­fjarðar. Mæli ég þó með upp­hafi göngu af bíla­stæði á Vatns­skarði þar sem aðkoman að Stórurð er skemmti­leg­ust og fólk grípur and­ann á lofti af hrifn­ingu.

Þerribjörg á Fljótsdalshéraði

Nokkuð krefj­andi ganga. Ekið frá Hell­is­heiði eystri og þaðan eftir veg­slóða (ekki fólks­bílar) að Katt­ár­dals­drögum, bílum lagt þar við skilti. Stikað er frá skilt­inu fram á brún beint ofan við Múlahöfn. Kinda­gata er frá brún niður um 400 m brattan skriðu­hrygg. Frá Múlahöfn er gengið í norður, þar blasir við Þerri­bjarg og Langisandur. Einstök nátt­úruperla þar sem fögur og afar lit­skrúðug líp­ar­ít­björg með dökkum berg­göngum skreyta svæðið. Leiðin er ekki fyrir loft­hrædda og mæli ég með leið­sögu­manni.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una