Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Tengist afa og pabba í gegnum skeiðarnar“

Hanna Sigríður Magn­ús­dóttir er ham­ingju­söm með að halda gam­alli fjöl­skyldu­hefð á lofti.

„Tengist afa og pabba í gegnum skeiðarnar“
Myndin á skeið­inni er af konu sem starir út á hafið með trú og von í hjarta að bíða þess að ástin hennar skili sér heil heim. Við­fangs­efnið er vonin.

Hanna Sigríður Magn­ús­dóttir, hönn­uður og eig­andi versl­unar Guðlaugs A. Magn­ús­sonar, er þriðji ætt­lið­ur­inn sem hannar jóla­skeið­ina. Hún segir að saga föð­ur­fjöl­skyld­unnar liggi í skeið­unum og gefi þeim djúpa merk­ingu.

„Við­fangs­efni nýj­ustu skeið­ar­innar er vonin en myndin á skeið­inni er af konu sem starir út á hafið með trú og von í hjarta að bíða þess að ástin hennar skili sér heil heim,“ segir Hanna Sigríður og vitnar í Bubba Morteins: „Vonin, vonin, vonin blíð, vertu mér hjá.“

Í ár bætti hún við vöru­línu þar sem munstur­hluti skeið­ar­innar verður fáan­legur sem háls­men.

Jóla­skeiðin á sér langa sögu, Guð­laugur, afi Hönnu Sigríðar, gerði fyrstu skeið­ina árið 1946 og í ár verður gefin út sjö­tug­asta og fyrsta skeiðin frá upp­hafi. Tólf skeiðar eru í hverri hönn­un­ar­línu og árið 2013 hófst hönnun á sjö­undu lín­unni.

„Við­fangs­efni nýj­ustu skeið­ar­innar er vonin en myndin á skeið­inni er af konu sem starir út á hafið með trú og von í hjarta að bíða þess að ástin hennar skili sér heil heim.“

Hanna Sigríður er þriðji ætt­liður í verslun Guðlaugs A. Magn­ús­sonar og þrátt fyrir að hafa lagt stund á við­skipta­fræði og mannauðs­stjórnun þá heill­aði þessi sköpun hana alltaf. „Frá blautu barns­beini fylgd­ist ég með af ákafa þegar pabbi velti fyrir sér hvað ætti að vera á næstu skeið. Hann kom að hönnun skeið­anna og var mik­ill hug­mynda­smiður þegar hann rak fyr­ir­tækið frá 1963 til 2004. Eftir að teikni­vinnu var lokið, því hann teikn­aði ekki sjálfur skeið­arnar, fékk ég að fylgja honum til Kaup­manna­hafnar þar sem verk­færið var hand­grafið eftir teikn­ing­unni. Þetta fannst mér stór­merki­legt og ótrú­lega spenn­andi.

Allra fyrsta jóla­skeiðin sem Guð­laugur A. Magn­ús­son hann­aði og gerði árið 1946.

Þegar ég hand­fjatl­aði glans­andi silf­ur­skeið­arnar, sem voru svo margar og ólíkar, átt­aði ég mig á að í þeim lá saga föð­ur­fjöl­skyldu minnar. Það gefur þessum skeiðum svo djúpa merk­ingu fyrir mig að geta velt fyrir mér hug­myndum bæði afa míns, frá 1946, og síðan hug­myndum föður míns, frá 1963, mót­uðum í silf­ur­skeiðar sem munu lifa um aldur og ævi, mann fram af manni. Mér finnst þetta í raun stór­kost­legt og er mjög ham­ingju­söm að fá að halda þess­ari hefð á lofti af alúð og kær­leika. Að sitja með allar skeið­arnar fyrir framan mig snertir mig djúpt og mér finnst ég tengj­ast afa mínum sem dó 1952 og ég þekkti því aldrei en ekki síður finn ég svo sterkt teng­ing­una við föður minn sem dó 2013 eftir erf­iða bar­áttu við Alzheimer.“

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd af Hönnu / Heiða Helga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina