Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Mér hefur alltaf verið svo til slétt sama um kynlíf“

Sonja Bjarna­dóttir hefur aldrei skil­greint sig út frá kyn­hneigð.

„Mér hefur alltaf verið svo til slétt sama um kynlíf“
|||||
Sonja er eikyn­hneigð en segir hug­takið vefj­ast fyrir flestum.

Sonja Bjarna­dóttir hafnar því að kyn­hvöt sé ákvörðun en seg­ist hafa lært að skil­greina sig rétt. Sonja er eikyn­hneigð en segir hug­takið vefj­ast fyrir flestum. Hún stígur því fram í opin­skáu við­tali og útskýrir sína hlið.

Sonja er 26 ára nemi í mannauðs­stjórnun við Háskóla Íslands. Ásamt því treður hún reglu­lega upp með fjöl­lista­hópnum Drag-Súgi þar sem hún fer með hlut­verk hins aumk­un­ar­verða en lífs­glaða Turner Strait. Sýn­ing­arnar fara bæði fram mán­að­ar­lega sem og á Hinsegin dögum og í kringum aðra stóra við­burði. „Turner Strait fékk að malla lengi sem hug­mynd í koll­inum áður en hann steig á svið. Í fyrstu var karakt­er­inn leið­indagaur en hefur með tím­anum þró­ast yfir í að vera hálf­elsku­legur bjálfi. Með tím­anum fór mér nefni­lega að þykja vænt um hann. Hann er ekk­ert 100% góður og sak­laus en hann vill vera elsk­aður og er að reyna sitt besta.“ Það eru þeir Sigurður Heimir og Haf­steinn Him­in­ljómi, eða Gógó Starr og Ragna Rök, sem halda utan um Drag-Súg og hefur aðsóknin verið slík að hætt er að taka nýja með­limi inn í hóp­inn í bili. „Ég komst inn í apríl í fyrra og fíla þetta list­form í tætlur, orkan innan hóps­ins er mikil og stemn­ingin góð. Það er alltaf gaman að stíga á svið en Turner Strait syngur bæði og mæmar auk þess að fram­kvæma alls­konar bjána­skap á svið­inu.“

Tvö ár eru nú síðan Sonja steig fram og til­kynnti sínum nán­ustu um eikyn­hneigð sína. En hvað þýðir það að vera eikyn­hneigður? „Í stuttu máli er eikyn­hneigð (e. asexu­ality) það að finna ekki fyrir kyn­ferð­is­legri aðlöðun (e. sexual attraction). Sumir sem kannski vita minna vilja meina að þetta þýði aðeins að vilja ekki eða nenna ekki að stunda kyn­líf, en rótin sem slík er skortur á þess­ari aðlöðun eða löngun,“ útskýrir Sonja. Ástæða þess að hún komst í kynni við fræðin var netráf. „Mér finnst alltaf svo bjána­legt að segja frá því en ég sá þetta orð og þetta hug­tak fyrst á síð­unni tumblr. Þar hafði ég líka kynnst mann­eskju sem ég var með í háskól­anum sem kenndi sig sem eikyn­hneigða og fór í kjöl­farið aðeins að grennsl­ast frekar fyrir um þetta. Bæði í gegnum þessa mann­eskju, frek­ari tumblr-skoðun og svo loks AVEN (The Asexual Visi­bility & Education Network) fór ég að sjá fleiri tengsl á milli þessa fyr­ir­bæris og minnar eigin upp­lif­unar.“

Hinsegin flóran fjölbreytt

Eikyn­hneigðir tóku í fyrsta sinn þátt í Gleði­göng­unni fyrr í sumar. Sonja segir þátt­töku þeirra hafi vakið mis­jöfn við­brögð. „Það voru ekki allir á eitt sáttir um þátt­töku okkar og margir af okkar elsku­legu virku í athuga­semdum lágu ekki á skoð­unum sínum. Spurn­ingar á borð við, „þarf að gefa öllu nafn?“ og „hvar endar þetta rugl?“ fengu að fjúka en sumir verða víst að hafa allt á hornum sér. Við­brögðin voru þó mis­jöfn og margir sem tóku okkur fagn­andi. Það er bara svo oft svona þegar fram koma ný orð, fólk þarf tíma til að aðlag­ast.“ Sonja segir að það hafi komið sér á óvart hversu margir ein­kyn­hneigðir ein­stak­lingar séu hér á landi. „Miðað við hversu fjöl­breytt hinsegin flóran getur verið ætti það kannski ekki að koma mér svo mikið á óvart en það gerði það nú samt. Við vorum að vísu frekar fámennur hópur sem tók þátt í göng­unni en eflaust eiga fleiri eftir að stíga fram. Það getur nefni­lega tekið tíma að átta sig á að skil­grein­ingin eigi við mann sjálfan og full­víst að margir þarna úti vita hrein­lega ekki um hug­takið eða hafa ekki kafað svo djúpt í sjálfs­skoð­un­inni enn þá en eiga kannski eftir að finna sig sem eikyn­hneigða síðar meir.“

„Í augna­blik­inu er ég ekki í sam­bandi og ekk­ert sér­stak­lega að leit­ast eftir því en trúðu mér ég hef verið skotin, bæði í fólki í kringum mig sem og þekktum ein­stak­lingum sem ég hef dáðst að úr fjar­lægð.“

Aðspurð seg­ist Sonja meira verða vör við að stelpur upp­lifi sig eikyn­hneigða en stráka og segir hún það að miklu leyti vera tengt við sam­fé­lags­gerð­ina. „Það eru auð­vitað alveg til eikyn­hneigðir strákar en það er minna um að þeir opni sig með það. Sam­fé­lagið okkar er svo kyn­gert og gerir þær kröfur að strákar séu enda­laust með kyn­líf á heil­anum. Umræða sem strákur myndi reyna opna sig með í þessum dúr yrði fljót­lega kæfð niður. Það er sorg­leg stað­reynd en ég trúi því að með auknu upp­lýs­inga­flæði og opinni umræðu geti þessi við­horf breyst.“

Sjálf fann Sonja hvernig hug­takið átti við hana í gegnum lestur og mikla sjálfs­skoðun. „Árið 2014 fór að miklu leyti í þetta hjá mér. Að finna út hvers vegna ég fann litla sem enga löngun í kyn­líf og að sætt­ast við þáver­andi maka, að þetta væri ekki honum að kenna heldur mér, eins mikil klisja og það kann að hljóma. Það tók tíma að sætt­ast við að ég væri ekki eikyn­hneigð vegna sam­bands­ins heldur væri það ein­fald­lega vegna þess sem ég er. Fólk á svo auð­velt með að taka slíkum upp­lýs­ingum per­sónu­lega og halda að það sé við það sjálft að sakast. Þetta var skrít­inn tíma­punktur í mínu lífi þar sem ég hafði verið kyn­ferð­is­lega virk lengi vel áður en ég gerði mér grein fyrir því að ég hafði í raun litla löngun í það. Á end­anum var ég alveg hætt að vilja neitt vita af kyn­lífi sem slíku. Það var þá sem ég fór að velta fyrir mér hvort þetta væri eitt­hvað sem ég þyrfti að laga hjá sjálfri mér því ég vissi að það væri ekki við þáver­andi maka að sakast. Það var svo í gegnum hinn og þennan lestur um hug­takið sem ég fann sam­hljómun í eigin til­finn­ingum. Hægt og bít­andi fór svo að renna upp fyrir mér að allt sem ég hafði verið að lesa mér til um ætti við um mig og ég end­aði á að geta sagst vera eikyn­hneigð. Það skref lít ég á sem ákveð­inn per­sónu­legan sigur.“

Barneignir ekki fyrir mig

Sonju seg­ist gruna að í sínu til­felli hafi eikyn­hneigðin alltaf verið til staðar enda hafi áhugi hennar á kyn­lífi aldrei verið nokkur. „Þegar ég lít til baka geta ákveðin augna­blik allt í einu orðið skilj­an­leg sem áður voru það ekki. Mér hefur alltaf verið svo til slétt sama um kyn­líf og nú þegar ég veit meira um sjálfa mig og hinseg­in­leik­ann minn hef ég fundið sátt. Lengi vel hélt ég nefni­lega bara að ég væri skrítin, sem gæti svo sem alveg verið auka­þáttur en það er annað mál,“ segir Sonja og skellir upp úr. Í dag seg­ist hún spá lítið í kyn­lífs­leysið en seg­ist þakka fyrir að „þurfa“ ekki að gera neitt lengur. „Mér finnst ég ekki vera að missa af neinu og upp­lifi því hvorki von­brigði né leiða. Það er hins vegar stór plús að vera ekki lengur í neinu ból­fé­laga­ves­eni með öllu því drama sem því kann að fylgja. Þetta eilífa nöldur um að hafa sofið hjá aðilla A og nú sé aðilli B brjál­aður. Ég myndi segja að til­finn­ingin sé í dag voða hlut­laus.“

„Mér hefur alltaf verið svo til slétt sama um kyn­líf og nú þegar ég veit meira um sjálfa mig og hinseg­in­leik­ann minn hef ég fundið sátt,“ segir Sonja

Hvað barn­eignir varðar seg­ist Sonja hafa gert upp hug sinn fyrir löngu. Sú ákvörðun sé í raun ótengd hinseg­in­leika hennar. „Börn eru ekki fyrir mig. Bara til­hugs­unin um þungun og allt það ferli finnst mér við­ur­styggi­leg. Ég fæ hreint út sagt ónot í lík­amann að leiða hug­ann að því, með fullri virð­ingu fyrir þeim sem það kjósa. Ég á líka fullt í fangi með að hugsa um sjálfa mig þótt ég fari ekki að bera ábyrgð á öðrum ein­stak­lingi. Þetta er mín ákvörðun og hefur ekk­ert að gera með eikyn­hneigð enda er fullt af eikyn­hneigðu fólki þarna úti sem þráir að eign­ast börn, hvort sem þeir hafa lík­am­legu starf­sem­ina til þess eða ekki. Ég finn samt vel fyrir pressu sam­fé­lags­ins, sér­stak­lega ver­andi á þessum aldri en ég veit að þetta er ekki fyrir mig og sú skoðun mun ekk­ert breyt­ast þótt ég eld­ist eins og svo margir vilja halda fram. Það er svo vont þegar fólk vill hugsa fyrir mann og reyna að breyta við­horfi en ég segi frá­bært fyrir þá sem vilja eiga fjöl­skyldur. „You do you and I do me.“ Eins virð­ast margir tengja hinseg­in­leik­ann við skír­lífi en það er rangt, skír­lífi er ákvörðun sem tekin er í tengslum við trú en ég er ekki trúuð svo ég get full­vissað þig um að þetta hefur ekk­ert með það að gera. Í grunn­inn snýst þetta um marg­vís­lega upp­lifun, og skort­inn þar á.“

Þar sem hug­takið er frekar nýtt á íslenskri tungu er auð­velt að gera sér rang­hug­myndir um hvað það felur í sér. Sonja segir algeng­ustu spurn­ing­arnar vera þær hvort hún hafi aldrei fengið full­næg­ingu og jafn­vel alhæf­ingar um að hún eigi bara eftir að finna rétta mak­ann. Hún vísar slíkum hug­myndum alfarið á bug en seg­ist þó lað­ast róm­an­tískt að fólki af báðum kynjum. „Eitt af því sem mér finnst svo frá­bært við að upp­götva hvað eikyn­hneigð sé er það að yfir­höfuð sé hægt að skipta aðlöðun niður í róm­an­tíska ann­ars vegar og kyn­ferð­is­lega hins vegar. Um leið og ég fatt­aði að ég upp­lifi ekki kyn­ferð­is­lega aðlöðun sá ég að öll þau skot sem ég hafði átt áður og mun eflaust eiga síðar eru róm­an­tísk skot en ekki bara aðdáun á fal­legri mann­eskju. Í augna­blik­inu er ég ekki í sam­bandi og ekk­ert sér­stak­lega að leit­ast eftir því en trúðu mér ég hef verið skotin, bæði í fólki í kringum mig sem og þekktum ein­stak­lingum sem ég hef dáðst að úr fjar­lægð. Það er svo sem góð leið til að segj­ast hafa verið skotin í frægu fólki, er það ekki ann­ars? En fólkið sem ég lað­ast að eru alls konar, karlar, konur og kynsegin fólk. Það er bara svo leið­in­legt að segja alltaf „biromantic asexual“ eða „tví­róm­an­tísk“ eikyn­hneigð og þurfa svo að útskýra hvoru tveggja þegar ég er ekki alltaf í stuði til að vera hinsegin kenn­ari dags­ins. Ég sleppi því ein­fald­lega þangað til ég er spurð, eins og núna.“

„Það eru auð­vitað alveg til eikyn­hneigðir strákar eins og í öllu öðru en það er minna um að þeir opni sig með það. Sam­fé­lagið okkar er svo kyn­gert og gerir þær kröfur á að strákar séu alltaf enda­laust með kyn­líf á heil­anum.“

Margir ímynda sér að eikyn­hneigðir ein­stak­lingar búi yfir vondri reynslu af kyn­lífi eða hafi jafn­vel lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Í til­felli Sonju var það ekki raunin. „Vissu­lega eru til ein­stak­lingar sem skil­greina sig sem eikyn­hneigða eða finna ekki fyrir kyn­ferð­is­legri aðlöðun eða löngun af því eitt­hvað hefur komið fyrir þá áður. En það á ekki við í mínu til­felli. Að því sögðu er það ekki mitt að ákveða eða segja hverjum og einum hvernig þeir eigi að skil­greina sig. Að mínu mati þarf ekki að upp­fylla þessi og þessi áföll til þess að geta sagst vera eins og maður er. Sjálf get ég ekki sagt að neitt hafi beint valdið því að ég skil­greini mig á þennan hátt. Ég ein­fald­lega sá sjálfa mig í þessu hug­taki og gat loks­ins tjáð mig um minn hinseig­in­leika.“

Örverpi á Akranesi

Sonja er alin upp á Akranesi og segir æsku sína í grunn­inn hafa verið góða það fylgi því þó bæði kostir og gallar að alast upp í litlu sveit­ar­fé­lagi þar sem allir þekki alla. „Ég vil per­sónu­lega meina að ég hafi átt góða æsku, þó auð­vitað með ein­hverjum erf­ið­leikum hér og þar. Ég er yngst þriggja systk­ina en ég fædd­ist svo löngu á eftir hinum tveimur að þau voru bæði flutt að heiman þegar ég var farin að geta munað almenni­lega eftir mér. Ég ólst því eig­in­lega upp sem einka­barn. Það gæti mögu­lega hafa skemmt eitt­hvað fyrir mér hvað fram­tíð­ina varðar en ég ætla ekki að væla yfir því alveg strax. Ég ætla alla­vega að reyna að vera full­orðin og sjálf­bjarga í ein­hvern tíma í við­bót áður en ég fer að kenna upp­eld­inu eða æsk­unni um eitt­hvað sem ég ekki kann eða veit.“

Tvö ár eru nú síðan Sonja til­kynnti vinum og fjöl­skyldu um hinseig­in­leika sinn. Til­kynn­ing­una birti hún á Facebook-vegg sínum á degi Reyka­jvík Pride árið 2015. Færslan hljóm­aði svona:

Sæl öll. fjöl­skylda, vinir, kunn­ingjar, sam­starfs­fólk og meira að segja þið ykkar sem ég kann að hafa addað á feis­búkk í ann­ar­legu ástandi og ekki haft sam­band við ykkur síðan. Mig langar aðeins að spjalla við ykkur um Asexu­ality (ísl. eikyn­hneigð (óop­in­ber þýð­ing)), þó það væri ekki nema bara til þess að fá smá fræðslu frá algjörum ama­tör svona í til­efni Hinsegin Daga í Reykja­vík.

Eins og flestir sem hafa lært grunn­at­riði í ensku ættu að vita bendir for­skeytið „a-“ yfir­leitt til þess að það sé skortur til staðar á hinum hluta orðs­ins, sbr. Amoral (sið­blindur), Apathetic (áhuga­laus), o.s.frv. Það sama á við hér. Asexual þýðir, mjög laus­lega, skortur á nokkru hvað varðar kyn­hneigð. Ég hef oft borið þetta saman við and­stæð­una, þ.e. þegar fólk, hinsegin sem og gagn­kyn­hneigt, sér mann­eskju sem því þykir aðlað­andi vilji það prófa að sofa hjá því. Það upp­lifir svo­kallað kyn­ferð­is­legt aðdrátt­ar­afl (e. Sexual Attraction), ef svo má að orði kom­ast. Asexual fólk finnur ekki fyrir þessu aðdrátt­ar­afli frá einum né neinum. Það sér ekki ann­ars aðlað­andi mann­eskjur og hugsar „vó, ég væri til í að setj­ast á/setja í þetta!“ (þetta var frekar nasty en þið fattið von­andi hvað ég á við).

Asexual er líka regn­hlíf­ar­hug­tak, eins og svo mörg hug­tök innan hinsegin sam­fé­lags­ins, þar sem ekki allir ein­stak­lingar sem skil­greina sig sem slíkt eru 100% anti-sex. Þvert á móti er vel hægt að vera Asexual en samt stunda kyn­líf, ýmist sér til skemmt­unar, til að fá ein­hvers konar útrás, eða jafn­vel bara með sam­ráði maka við­kom­andi. Einn und­ir­hópur Asexual, Dem­is­exual, er hópur sem finnur enga kyn­ferð­is­lega löngun, en gæti hugsað sér það ef það þekkir hinn aðil­ann nógu vel og gott traust sé líka með. Og jú, kyn­hvöt getur alveg verið til staðar hjá Asexual fólki. Líkamleg við­brögð við örvandi utan­að­kom­andi afli eru jú nátt­úru­leg, og alls ekk­ert að því.

Hins vegar er líka hópur Asexual fólks sem finnur hrein­lega hvorki þetta aðdrátt­ar­afl né löngun í eitt­hvað kyn­ferð­is­legt. Enginn er kyn­ferð­is­lega aðlað­andi fyrir þeim, til­hugs­unin um það að stunda kyn­líf og þá sér­stak­lega sam­farir er ógeð­felld, og löng­unin í, hvað þá hrifn­ingin af slíku athæfi er nákvæm­lega engin.

Svona eft­irá að hyggja þá hefði ég kannski bara átt að mæta á Nú Skal Hinsegja við­burð­inn síð­ast­lið­inn mánu­dag. Ekki bara vegna þess að ég er ama­tör um þetta mál­efni og gæti hugs­an­lega hafa prumpað út úr mér ein­hverjum stað­reyndum sem ég þyk­ist vita. Nema jújú, það hefði kannski verið allt í lagi hug­mynd út af fyrir sig. En nei, það er ekki ástæðan.

Ástæðan er sú að ég til­heyri þessum hópi.

Og áður en spurt er, nei, þetta kom ekki upp úr þurru. Þetta er heldur ekki eitt­hvað sem ég bara „ákvað“ núna nýlega. En það var ekki fyrr en fyrir rúmu ári síðan sem ég gat sam­ræmt sjálfa mig við þetta orð og í raun­inni þetta konsept. Ég við­ur­kenni það hér og nú að ég hef alltaf getað séð feg­urð og fundið hrifn­ingu til margra kynja, jafn­vel þó svo að ég átti að vera gagn­kyn­hneigð kona. Þegar ég hugsa til baka núna get ég klipið í nokkur augna­blik þar sem stelpur náðu athygli minni jafn mikið og strákar, og þá sér­stak­lega á kyn­þroska­skeið­inu. Þannig að að vissu leyti hefur mig alltaf grunað að ég væri alla­vega eitt­hvað hinsegin. „Bi-curious“ var orð sem ég átti til með að skjóta inní hér og þar, en það pass­aði bara ekki. Sam­kyn­hneigð/lesbía pass­aði mér ekki heldur. Tví­kyn­hneigð komst mjög nálægt, en að sama skapi fannst mér aldrei vera neitt eitt­hvað sér­stak­lega „kyn“-legt við það hvernig mér leið. Mér fannst ég samt alltaf vera að ljúga bæði að öðrum og sjálfri mér ef ég segð­ist vera Straight, og sömu­leiðis ef ég segð­ist vera Lesbía/Bi.

Það var svo í gegnum elsku bjána­lega, barna­lega tumblr sem ég sá þetta orð fyrst: Asexual. Ég furð­aði mig á þessu í fyrstu, en komst fljótt að því með smá gúggli og meira tumblr-skrolli hvað þetta þýddi. Og í gegnum vin­konu sem ein­kenndi sig sem slíkt lærði ég meira, og svo smátt og smátt um und­ir­flokk­ana og hvað þetta allt saman gæti verið. Fljót­lega small ein­hvern veg­inn allt í höfð­inu á mér. Ég var ekki bara löt í kyn­líf, það var ekki bara það að ég nennti því ekki; ég hafði bara enga löngun í það. Til­hugs­unin var á end­anum farin að gefa mér ein­hverja hroll­til­finn­ingu sem ég mundi ekki eftir að hafa upp­lifað síðan þessi eilífa pressa um að „missa mey­dóm­inn“ byrj­aði í ung­linga­deild­inni.

En sem sagt, bara til að taka þetta nokkurn veg­inn saman: Ég er Asexual. Ég er ekki Hetero þegar kemur að hugs­an­legum sam­böndum; mér finnst stelpur og NB fólk alveg jafn heill­andi og strákar. Ég er bara ekki Sexual. Til­hugs­unin um kyn­ferð­is­leg athæfi sem hafa eitt­hvað að gera með sjálfa mig hrylla mig. Ég kann ekki að horfa á mann­eskju og hugsaa „mig langar að ríða þessu“, sama hvað kynið heitir. Það er ekk­ert að mér. Það kom ekk­ert fyrir mig til að „gera mig svona“. Svona hef ég alltaf verið. Það tók bara smá tíma og auka fræðslu fyrir mig að átta mig á því. Og núna, tæpu einu og hálfu ári eftir að ég fann að ég gat sam­ræmt mig þessu hug­taki, fannst mér gott að koma því á fram­færi.

Ég heiti Sonja, og ég er Asexual. Ég er hinsegin.

„Nánustu vinir mínir vissu hvernig ég skil­greindi mig áður en ég kom út opin­ber­lega. Ég reikna ekki með öðru en að þeir hafi bara tekið frétt­unum eins og hverju öðru. Ég hefði allt eins getað sagst hafa litað á mér hárið nýlega. Fólk er vissu­lega for­vitið og spurn­ingum rignir reglu­lega yfir mig en að öðru leyti hefur ekk­ert breyst. Ég hef alltaf fengið stuðn­ing, bæði frá vinum, kunn­ingjum og ætt­ingjum. Ég var engu að síður mjög fegin að finna stuðn­ing frá pabba og systur minni um leið og þau sáu færsl­una frá mér. Síðar meir þegar ég sýndi mömmu og bróður mínum hana höfðu þau ekk­ert slæmt að segja. Mömmu fannst aðal­lega leitt að mér fynd­ist ég þurfa að koma út yfir­höfuð. Af hverju getur fólk ekki bara verið eins og það er og sam­fé­lagið sætt sig við það. Ég er í það minnsta þakk­lát mínu fólki og mjög heppin með það.“

Texti / Íris Hauks­dóttir
Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Helga Þor­kels­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina