Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gagnleg ráð fyrir húðina í kuldanum

Mik­il­vægt er að hugsa vel um húð­ina á vet­urna.

Gagnleg ráð fyrir húðina í kuldanum

Hjá mörgum fram­kalla kaldir vetr­ar­dagar meira en rós­rauðan roða í kinnar, þeir gera húð­ina líka mjög þurra, ekki síst í and­liti, á höndum og fótum. Hjá sumum verður þetta mun meira en til­finn­ingin ein, þessi þurrk­til­finn­ing, þurrk­ur­inn getur orðið til þess að húðin flagnar, springur og stuðlað að exemi. Hér eru nokkur góð ráð til að und­ir­búa húð­ina fyrir vet­ur­inn.

Veldu raka­krem sem eru með olíu sem und­ir­stöðu frekar en vatn en olían myndar vernd­andi hjúp á húð­ina og heldur eftir meiri raka en kremin sem byggja á vatni.

Leitaðu ráða hjá sér­fræð­ingi
Skelltu þér í næstu lyfja­verslun eða snyrti­vöru­búð og fáðu álit hjá sér­fræð­ingi í kremum. Hann getur sagt þér hvaða teg­und af húð þú ert með, greint vanda­málin sem eru kannski í gangi þessa stund­ina og ráð­lagt þér hvaða vörur er best að nota. Það þýðir samt ekki að þú þurfir að kaupa allt það dýrasta sem versl­unin hefur upp á að bjóða því vör­urnar sem henta þér gætu verið þessar  allra ódýr­ustu. Það sem mestu máli skiptir er hvernig húðin bregst við vör­unum og hvernig þér líður með að bera þær á þig – ekki hversu mikið þú borg­aðir fyrir þær.

Gefðu húð­inni meiri raka
Þú átt kannski raka­krem sem hentar þér full­kom­lega á vorin og sumrin. En á haustin og á vetrum þarf oft að breyta um vörur í takt við veðra­breyt­ing­arnar. Veldu raka­krem sem eru með olíu sem und­ir­stöðu frekar en vatn en olían myndar vernd­andi hjúp á húð­ina og heldur eftir meiri raka en kremin sem byggja á vatni. Vandaðu samt valið því sum olíu­kennt krem henta ekki fyrir and­lit; veldu til dæmis krem með avóka­dóolíu, mineral-olíu, prim­rose-olíu eða almond-olíu. Sjáv­ar­ol­íur og „butter“ er meira bara fyrir lík­ama. Þess má geta að mörg krem sem merkt eru sem næt­ur­krem eru olíu­kennd.

Sól­ar­vörn er ekki bara til notk­unar á sumrin. Vetr­ar­sólin í bland við glampann af snjónum getur líka haft slæm áhrif á húð­ina. Ekki hika við að bera sól­ar­vörn á and­lit og hendur … áður en þú ferð út í vetr­ar­sól­ina.

Notaðu sól­ar­vörn
Sól­ar­vörn er ekki bara til notk­unar á sumrin. Vetr­ar­sólin í bland við glampann af snjónum getur líka haft slæm áhrif á húð­ina. Ekki hika við að bera sól­ar­vörn á and­lit og hendur, ef þær eru berar, áður en þú ferð út í vetr­ar­sól­ina. Gott er að vera búinn að bera hana á sig um þrjá­tíu mín­útum áður en farið er út og bera svo á sig reglu­lega ef maður er lengi úti.

Passaðu upp á hend­urnar
Húðin á hönd­unum er þynnri en á flestum öðrum lík­ams­hlutum og að auki með færri olíu­kirtla. Þess vegna er erf­ið­ara að halda réttu raka­stigi á hönd­unum, ekki síst í köldu og þurru veðri sem getur fram­kallað kláða og sprungur. Vertu því sem mest með hanska og vett­linga þegar þú ferð út, ekki síst úr ull.

Forðastu blauta sokka og hanska
Ef þú blotnar í fæt­urna eða hend­urnar blotna þá skaltu reyna að skipta um sokka eða hanska eins fljótt og mögu­legt er, ann­ars getur þú fengið kláða, sprungur, sár og jafn­vel exem.

Vertu þér úti um raka­tæki
Ofnar og það sem notað er til upp­hit­unar eykur oft þurrt loft á heim­ilum og vinnu­stöðum. Rakatæki dreifa raka út í and­rúms­loftið og hjálpa til við að koma í veg fyrir að húðin þurrk­ist upp. Vertu því með raka­tæki á nokkrum stöðum á heim­ili þínu og í vinn­unni.

Gefðu fót­unum extra mikið af raka
Fótakremin með mintu­lykt­inni eru indæl yfir sum­ar­mán­uð­ina en á vet­urna þarftu eitt­hvað miklu áhrifa­rík­ara. Reyndu að finna lotion sem inni­heldur jarð­ol­íu­hlaup eða glyserín. Svo er gott að nota and­lits- og lík­ams­skrúbb reglu­lega til að losna við dauðar húð­frumur en með því hefur raka­kremið líka greið­ari aðgang að húð­inni.

Vatns­drykkja er mjög góð fyrir heils­una almennt og húðin nýtur sann­ar­lega góðs af þótt vatns­drykkjan

Drekktu nóg af vatni
Þú hefur lík­lega heyrt þetta margoft en góð vísa er aldrei of oft kveðin. Vatns­drykkja er mjög góð fyrir heils­una almennt og húðin nýtur sann­ar­lega góðs af þótt vatns­drykkjan ein og sér sé ekki nóg til að koma í veg fyrir mesta húð­þurrkinn.

Hvíldu kornamask­ann
Ef húðin í and­lit­inu er mjög þurr þá skaltu forð­ast að nota grófa kornamaska, leirmaska eða and­lits­vatn með alkó­hóli því þetta þurrkar húð­ina.
Í stað­inn getur þú notað hreinsi­mjólk eða mildan froðu­hreinsi, and­lits­vatn án alkó­hóls eða maska með djúpnær­ingu.

Forðast skal mjög heitt bað
Þótt unaðs­legt sé að skella sér í heitt bað, sturtu eða heitan pott á köldum vetr­ar­dögum þá getur það haft þau áhrif að húðin missi raka. Þið eruð betur sett í volgu vatni og passa þarf að dvelja ekki of lengi. Volgt bað með hafra­mjöli eða bök­un­ar­sóda getur linað kláða á þurri húð.

Ef þessi atriði virka ekki þá skaltu ekki hika við að fara til húð­sjúk­dóma­fræð­ings.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina