Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Fjallganga er gríðarlega góð alhliða hreyfing“

Anna Bryndís Skúla­dóttir er mikil fjalla­geit og gefur ráð varð­andi búnað.

„Fjallganga er gríðarlega góð alhliða hreyfing“

Anna Bryndís Skúla­dóttir er mikil fjalla­geit og hefur ásamt félögum sínum í Fjall­göngu­klúbbnum Fjall­hress gengið á marga flotta aust­firska tinda. Við fengum hana til að segja okkur fá eft­ir­minni­leg­ustu göng­unum og gefa okkur nokkur góð ráð um búnað.

Á toppi Hvanna­dals­hnjúks.

„Falleg nátt­úra og að kljást við fjöl­breytt lands­lag og ögrandi fjöll er það skemmti­leg­asta við fjalla­mennsk­una. Ég fer mikið ein á fjöll og finnst það frá­bært en það er líka mjög gef­andi að ganga með vinum mínum í Fjall­göngu­klúbbnum Fjall­hress og um leið eykur það öryggi á fjöllum,“ segir Bryndís. Hún er deild­ar­stjóri í Seyð­is­fjarð­ar­skóla á leik­skóla­deild og starfar einnig sem fjalla­leið­sögu­maður og land­vörður á sumrin. Í frí­tíma sínum stundar hún fjall­göngur og kajakróður.

„Súla, hæsti tindur Dyr­fjalla, er í upp­á­haldi vegna þess hve mikil fjöl­breytni er í göngu­leið­inni og ein­stök inn­koma á þetta mikla kletta­fjall, sem er blómi skrýdd klettarák. Útsýnið af toppnum er magnað. Eft­ir­minni­leg­ast er þó lík­lega þegar dóttir mín hringdi í mig þar sem ég var að koma niður af Hvanna­dals­hnjúk og sagði að það væri farið að gjósa á jökl­inum. Nei, ég hélt nú ekki. ,,Jú mamma, þetta er bæði í fréttum í útvarpi og sér­út­send­ing í sjón­varp­inu sagði hún mjög ang­istar­full.“ Þá sneri ég mér við og sá þá goss­trók­inn stíga upp til him­ins. Þetta var Grím­s­vatna­gosið í maí 2011.“

Mikilvægt að láta vita af sér

Hvað þurfa byrj­endur í fjalla­mennsku að hafa í huga og hvaða bún­aður er nauð­syn­legur? „Það þarf að huga að veð­ur­spá og láta aðra vita hvert halda skal og hvenær þú áætlar að koma til baka. Góður bak­poki undir skjólfatnað og nesti er mik­il­vægt. Ólíkan búnað þarf í vetr­ar­fjalla­mennsku og sum­ar­fjall­göngum. Létt föt, sól­gler­augu og sól­ar­vörn í sól­inni á sumrin. Muna líka að hafa sól­gler­augu og sól­ar­vörn í vetr­ar­sól í snjó og á jökli, ull­ar­fatnað innst og góðar ull­ar­peysur undir skjól­góðri skel er mjög gott. Göngustafir koma sér vel við ýmsar aðstæður og að vetri eru broddar og ísaxir oft nauð­syn­leg. Sími, átta­viti eða GSP-tæki eru allt góð örygg­is­tæki. Ekki gleyma vatni á brúsa í allar lengri göngur.“

Hvaða nesti finnst þér best að hafa? „Það fer eftir árs­tíðum og erf­ið­leika­stigi. Léttari sam­lokur og ávaxta­safa á sumrin en á vet­urna kæfu­sam­loku, lifr­ar­pylsu og egg. Svo er ég alltaf með svart te á brúsa. Snickers er ómissandi og reyndu ekki að koma með súkkulað­irús­ínur þar sem ég er,“ segir hún hlæj­andi.

Hún hvetur fólk hik­laust til að stunda fjalla­mennsku. „Fjall­ganga er gríð­ar­lega góð alhliða hreyf­ing og gott sport bæði fyrir sál og lík­ama. Náttúran er enda­laus upp­spretta feg­urðar og fjöl­breyti­leika en það er ekki síður magnað að upp­lifa nátt­úr­una í ham þar sem mann­skepnan fær ekki beislað hana, s.s. í jarð­skjálftum, gosum, flóðum og skriðu­föllum.“

Og það er skemmti­legt göngu­sumar fram undan hjá Bryndísi en hún ætlar meðal ann­ars að ganga á Búlandstind, Grjót­fjall og Þriggja­kirkna­fell, einnig Kverk­fjöll og í Hveradal, á Jóns­fjall og í Mínu­skörð í botni Borg­ar­fjarðar eystra og loka þar með fjalla­hringnum í firð­inum. Þá mun hún fara í fimm daga ferð um Víkna­slóðir sem leið­sögu­maður, ganga Fimm­vörðu­háls og fara í kjak­ferðir í fjall­vötn­unum á hálend­inu.

Aðalmynd: Bryndís ásamt Skúla Júl­í­us­syni á Stöng í Berufirði.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina