Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stundum er gott að sitja í sandinum og íhuga

Kristín Þor­steins­dóttir segir auð­velt að ferð­ast frá Singapúr um alla Asíu.

Stundum er gott að sitja í sandinum og íhuga

Kristín Þor­steins­dóttir hefur búið ásamt sam­býl­is­manni og dóttur í Singapúr og er „stækk­un­ar­stjóri“ (e. Develop­ment Director) hjá alþjóð­legri hót­el­keðju. Hún segir að helstu kostir stað­ar­ins séu gott skipu­lag, engir glæpir og þarna búi allra þjóða kvik­indi í sátt og sam­lyndi sama hverrar þjóðar og trúar þeir eru. Aðal­kost­ur­inn sé þó hversu auð­velt sé að ferð­ast þaðan hingað og þangað um Asíu.

Vestur-Ástralía
Af öllum stöðum sem ég hef ferð­ast til síðan ég kom til Asíu held ég að þetta svæði sé í upp­á­haldi. Borgin Perth í Ástralíu er ekki í nema rúm­lega fjög­urra tíma flug­fjar­lægð frá Singapúr. Þaðan er hægt að keyra með fram strönd­inni að smá­bænum Margaret River sem er frægur fyrir vín­gerð og góðan mat. Svo er hægt að verja heilu dög­unum við strend­urnar þar sem eng­inn er yfir­leitt sjá­an­legur nema kannski háhyrn­ingar að busla í flæð­ar­mál­inu. Ég er nú lítið fyrir að liggja í sól­baði en stundum er gott að sitja bara í sand­inum og íhuga, eða horfa á brim­bretta­strák­ana.

Balí, Indónesíu
Eyjan Balí er skammt frá okkur og þangað er vin­sælt að fara yfir helgi til að hvíla sig í hinni loft­kældu ver­öld versl­un­ar­mið­stöðv­anna sem eru á hverju götu­horni í Singapúr. Indónesía er fjöl­menn­asta ríki heims þar sem múhammeðstrú er iðkuð en Balí er eini stað­ur­inn þar sem hindúar eru í meiri­hluta. Það setur sterkan svip á dag­legt líf á eyj­unni og skapar nokkuð sér­stakt and­rúms­loft sem mér finnst vera helsta aðdrátt­ar­afl Balí. Því miður er nokkur mengun við margar strendur á Balí og þær því ekki fýsi­legur bað­staður. Þá er ráð að halda til bæj­ar­ins Ubud sem segja má að sé hið list­ræna hjarta Balí þar sem hægt er að stunda jóga og sötra líf­rænan engi­fer­safa. Já eða sleppa jóg­anu og fá sér bara bjór, eins og ég geri yfir­leitt.

Kristín Þor­steins­dóttir hefur búið ásamt sam­býl­is­manni og dóttur í Singapúr.

Japan
Ef tæki­færi gefst ein­hvern tíma á lífs­leið­inni til að fara til Japans þá ætti helst eng­inn að láta það úr greipum ganga. Japan var svo gott sem ein­angrað frá umheim­inum í tvær og hálfa öld, allt til um 1850 og það útskýrir margt í menn­ingu og háttum Japana þar sem ýmis­legt kemur spánskt fyrir sjónir. Tókýó er við fyrstu sýn brjál­æð­is­leg stór­borg þar sem er auð­velt að týn­ast, enda engin furða því fæstar götur þar bera nöfn. En þegar betur að er gáð er borgin und­ar­lega hljóð­lát og íbú­arnir ávallt boðnir og búnir að hjálpa týndum aðkomu­mönnum, jafn­vel þótt ensku­kunn­áttan hrökkvi skammt. Maturinn í Japan er líka kap­ít­uli út af fyrir sig, kjúklinga-sas­himi, fiski­augu og jap­anskt majónes var meðal þess sem ég smakk­aði í síð­ustu ferð og þótti gott.

Seoul í Kóreu
Kannski er ekki hægt að segja að þetta sé fal­leg borg enda var hún svo gott sem jöfnuð við jörðu í seinna stríð­inu. Þó er búið að end­ur­byggja mikið af sögu­legum bygg­ingum og gaman að ganga um þar sem búdda­hof og ofur­ný­tísku­legar skrif­stofu­bygg­ingar standa hlið við hlið. Í Seoul er líka Gangnam-hverfið sem Psy nokkur gerði heims­frægt í sam­nefndu lagi en þaðan koma margir af helstu tísku­straumum í tón­list og klæða­burði sem ungt fólk í Asíu til­einkar sér. Lýta­læknar í Seoul þykja líka ansi lúnknir og eru dæmi um að dömur fái ekki að snúa til síns heima því þær líkj­ast ekki lengur mynd­inni í vega­bréf­inu eftir heim­sókn til eins þeirra.

Sri Lanka
Eftir að borg­ara­stríð­inu lauk á þess­ari eyju við Indland hefur ferða­manna­straum­ur­inn auk­ist jafnt og þétt og skal engan undra því þetta er fal­leg eyja, íbú­arnir indælir og margt að sjá og skoða. Þarna fórum við í safa­ríferð í Yala-þjóð­garð­inum þar sem fíll stal nest­inu, lærðum ýmis­legt um tedrykkju (Sri Lanka er einn helsti tefram­leið­andi í heimi) og skoð­uðum Tann­hofið í borg­inni Kandí þar sem sagt er að tönn úr sjálfum Búddah sé varð­veitt. Eyjan er heil­agt vé meðal þeirra sem aðhyll­ast búdd­isma.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina