Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lítil kríli með viðkvæma húð

Góð ráð fyrir húð­um­hirðu barna.

Lítil kríli með viðkvæma húð

Það er fátt ynd­is­legra en silki­mjúk og ilm­andi húð ung­barna. Hún er samt miklu þynnri og við­kvæm­ari en húð okkar full­orðna fólks­ins. Þess vegna þarfn­ast hún góðrar umhirðu og verndar fyrsta árið. Hér eru nokkur góð ráð fyrir húð­um­hirðu barna.

Bleyju­bossar
Þrífa þarf boss­ann á bleyju­börnum reglu­lega því það eru efni í þvagi sem geta brennt við­kvæma rassa, rétt eins og kúkur. Sumir kjósa að nota þartil­gerða blaut­klúta en það er nóg að nota bara rakan þvotta­poka eða svamp­klút. Ef bleyju­út­brot fara að láta á sér kræla er mik­il­vægt að þrífa svæðið við hver bleyju­skipti, þerra það vel og bera síðan Zink-krem á rauða rassa til að koma í veg fyrir frek­ari útbrot. Einnig er gott að viðra boss­ann eins oft og mögu­legt er.

Þvottur, þvottur og meiri þvottur
Það er ekki síður nauð­syn­legt að hugsa út í hvernig við þvoum föt barna. Fötin liggja á við­kvæmri húð barns­ins allan dag­inn og því er mik­il­vægt velja þvotta­efni sem eru mild og örugg. Margir mæla með að sleppa mýk­ing­ar­efnum alveg því þau inni­halda oft mikið magn ilm­efna sem eru ofnæm­is­vald­andi.

Margir for­eldrar hafa áhyggjur af því að þeir þurfi að þvo barna­fötin sér. Vissu­lega er þess þörf ef þú notar sterk­ari þvotta­efni og mýk­ing­ar­efni á annan þvott heim­il­is­ins. Hví ekki nota tæki­færið og byrja að nota mild­ari, sem og umhverf­is­vænni, þvotta­efni fyrir allan þvott? Afrakst­ur­inn gæti komið þér á óvart.

Lítil, skrítin skán
Algengt er að það mynd­ist skán í hár­sverði ung­barna sem er gul­brúnt fitu­kennt hrúður. Þessi skán er algeng­ust ofan á hvirfli en getur einnig verið á öðrum afmörk­uðum blettum eða um allan hár­svörð­inn. Skánin er hættu­laust ástand sem varir yfir­leitt ekki lengi. Þetta veldur barn­inu ekki óþæg­indum og verður minna áber­andi eftir því sem meira hár vex á höfði barns­ins.

Alls ekki reyna að kroppa skán­ina í burtu án þess að mýkja hana upp áður, þá gæti farið að blæða úr hár­sverð­inum og mynd­ast sýk­ing. Best er að bera góða jurta­olíu, svo sem möndlu-, jarð­hnetu- eða ólífu­olíu, í hár­svörð­inn áður en barnið fer að sofa. Þá mýk­ist skánin yfir nótt og morg­un­inn eftir er notuð fín­gerð greiða eða bursti til að bursta skán­ina var­lega, ekki fara of nærri hár­sverð­inum þannig að höf­uð­leðrið ert­ist. Að lokum þarf að þvo höf­uðið og þá skol­ast hrúðrið að mestu leyti burtu. Þetta gæti þó þurft að end­ur­taka nokkrum sinnum.

Vanda valið á kremum
Það er mjög mik­il­vægt að velja vand­lega það sem borið er á húð ungra barna. Það er stað­reynd að mörg efni geta valdið ofnæmi eða aukið hættu á húð­vanda­málum síðar á ævinni. Yfir­leitt þarf ekki að bera neitt sér­stak­lega á húð barns en stundum fá börn exem eða mik­inn þurrk, sér­stak­lega yfir vetr­ar­tím­ann. Þá er mik­il­vægt að nota krem sem hafa verið ofnæm­is­prófuð í þaula og inni­halda hvorki ilm­efni né önnur skað­leg efni. Fyr­ir­tæki eins og Eucerin, Neutral og Weleda fram­leiða mjög góðar vörur sem eru sér­stak­lega ætl­aðar fyrir ung­börn. Einnig geta börn fengið svo­kall­aðar horm­óna­bólur á and­litið vegna horm­óna í móð­ur­mjólk­inni. Þessar bólur eru full­kom­lega eðli­legar og hverfa af sjálfu sér á nokkrum vikum svo best er að láta þær alveg í friði. Þær ná oft hámarki um sex vikna aldur en fara svo að hverfa.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina