Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hannar buxur sem móta líkamann

Burt með hlið­ar­spikið.

Hannar buxur sem móta líkamann
|
Bráðum mun Theodóra koma á markað með sínar eigin galla­buxur.

Theodóra Elísabet Smára­dóttir, hönn­uður og fram­kvæmd­ar­stjóri, byrj­aði ung að skapa og sjá tæki­færi í nán­ast öllu í umhverf­inu. Hún rekur hönn­un­ar­fyr­ir­tæki og verslun í Kópavogi ásamt eigi­manni sínum þar sem hún selur meðal ann­ars hinar vin­sælu Muffin­Top­K­iller®-buxur sem halda vel utan um miðju­svæði lík­am­ans.

„Ég hafði fengið mig fullsadda af illa sniðnum buxum með von­lausum streng í mitt­inu sem annað hvort var svo víður að bux­urnar héld­ust ekki uppi eða með alltof þröngum mjóum streng sem skarst inn í mittið og bjó til það sem oft er kallað „muffin­top“ eða hlið­ar­spik sem kemur upp úr strengnum. Ég fór af stað í þró­un­ar­vinnu til að geta hafið fram­leiðslu á MTK-efn­inu í teygj­una. Þetta efni er fram­leitt fyrir okkur erlendis og hvergi ann­ars­staðar hægt að fá. Gott aðhald og þæg­indi er helsta sér­staða buxn­anna.Teygjan mótar miðju­svæði lík­am­ans og gefur þetta góða aðhald sem konur eru sjúkar í. Þær eru þægi­legar, styðja vel við mag­ann og móta lín­urnar í stað þess að búa til muffin­top eins og margar aðrar buxur gera. Buxurnar henta öllum konum, á öllum aldri og í öllum stærðum. Það er alveg sama hvernig við erum í lag­inu, það skiptir okkur allar máli að líða vel yfir dag­inn og finna til frelsis“.

Dýrmætur lærdómur frá ömmu

Sköp­un­ar­kraft­ur­inn hefur fylgt Theodóru frá barn­æsku og sauma­á­hug­inn kvikn­aði um 4-5 ára ald­ur­inn þegar amma hennar kenndi henni á sauma­vél. „Amma mín, Theodóra Elísabet „nafna mín og vin­kona“ eins og við köll­uðum okkur, er fyr­ir­myndin mín. Strax á þessum aldri var ég með miklar hug­myndir um hvað ég vildi skapa og amma leyfði þessum sköp­un­ar­krafti að blómstra. Hún stopp­aði mig aldrei af með því að segja hvernig hlutir ættu að vera sam­kvæmt bók­inn en var alltaf tibúin á hlið­ar­lín­unni svo ég færi mér ekki að voða í sumum af þessum fram­kvæmdum. Hún var reiðu­búin að aðstoða mig um leið og ég var opin fyrir hennar ráð­legg­ingum þegar ég sá að hlut­irnir gengu ekki alveg upp eins og þeir höfðu gert í huga mér. Það dýr­mætasta sem hún kenndi mér var að láta hug­ann ráða og finna út hvernig ég gat leyst það sem ég sá fyrir mér. Stundu gengu hlut­irnir upp og stundum alls ekki og á því lærði ég einmitt mest. Ég sé í dag að það var leið ömmu til að kenna mér án þess að tak­marka hug­ann. Svona lærði ég að allt er hægt og ég trúi því enn í dag – það er bara spurn­ing hvað þú ert til­búin að leggja á þig til að fram­kvæma það. Ég reyni eftir bestu getu að kenna dætrum mínum það sama – setja sér engar hindr­anir. Ef þær mæti lok­uðum dyrum að finna þá opin glugga til að skríða inn um. Gefast ekki upp en það sé í lagi að hætta ef þær telji það rétt. Ég er enn að læra þann hluta, að það megi hætta að vel ígrund­uðu máli án þess að það kall­ist upp­gjöf.“

Mikilvægar fjölskyldustundir

Teygjan í Muffin­Top­K­iller®-bux­unum mótar miðju­svæði lík­am­ans og gefur gott aðhald.

Eign­maður Theodóru er Sigurður Jónsson og hann starfar að fullu með henni í rekstr­inum. Þau eiga þrjár dætur sem heita Viktoría Sól, 5 ára, Elísabet Sól, 2 ára, og Ísabella Sól, 5 mán­aða. „Það gengur vel að sam­tvinna þetta en getur auð­vitað verið krefj­andi suma daga ekki síst fyrir dæt­urnar sem þurfa oft að þvæl­ast með mömmu og pabba á fundi og jafn­vel á sýn­ingar erlendis. Við erum mjög með­vituð um að ofbjóða þeim ekki og pössum að hafa svo­leiðis daga líka skemmti­lega fyrir þær. Við erum vöknuð og byrjuð að vinna fyrir klukkan 6 á morgn­ana og hættum að vinna klukkan 16 þegar tvær elstu eru búnar í leik­skól­anum. Yngsta stelpan er með okkur for­eldr­unum allan dag­inn og verður heima til alla vega eins árs ald­urs þegar hún fer í dag­vistun. Við vinnum ekki um helgar heldur nýtum tím­ann saman enda er fjöl­skyldan í fyrsta sæti hjá okkur. Stelp­urnar okkar er mikil partí­dýr sem vilja helst vera í eða halda mat­ar­boð með vinum okkar og fjöl­skyldu allar helgar og njóta lífs­ins saman sem við svo sann­ar­lega gerum,“ segir Theodóra.

Þau hjónin reka verslun að Hlíð­ar­smára 4 í Kópavogi og margt áhuga­vert framundan. Auk MTK-buxn­anna eru til sölu ýmis annar fatn­aður sem Theodóra hannar. Í hinum helm­ingi versl­un­ar­innar eru barna­vörur til sölu, meðal ann­ars barna­vagn sem hún lét fram­leiða sér­stak­lega fyrir íslenskar aðstæður.

Allar nán­ari upp­lýs­ingar eru á heima­síð­unni muffin­top­k­iller.com

Texti: Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir: Aldís Páls­dóttir og Kári Sverr­is­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina