Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Mótlætið styrkti baráttuviljann“

„Fannst ég mik­ill aum­ingi að svara aldrei fyrir mig“

„Mótlætið styrkti baráttuviljann“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, hefur vakið athygli fyrir vask­lega fram­göngu í stjórn­málum, skarpa sýn og rétt­læt­is­kennd. Okkur lék for­vitni á að vita hver bak­grunnur hennar væri og komumst fljótt að því að þarna fer kona sem fékk snemma á lífs­leið­inni að kenna á mót­læti á eigin skinni.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir alþing­is­kona segir sögu sína í 14. tölu­blaði Vikunnar.

„Við flutt­umst til Mos­fells­bæjar þegar ég var í sjö­unda bekk og þar skán­aði ástandið ekk­ert. Ég var vinafá og átti erfitt upp­dráttar í gagn­fræða­skóla Mos­fells­bæjar. Mér var mikið strítt og sumir léku sér að því að þykj­ast vera vinir mínir til þess eins að geta nið­ur­lægt mig á einn eða annan hátt. Sumarið fyrir níunda bekk tók ég svo þá glæfra­legu ákvörðun að lita á mér hárið svart. Það var engin sér­stök hug­mynda­fræði á bak við þetta hjá mér, Sunna vin­kona mín mætti í „goth“-lúkk­inu í heim­sókn til mín einn dag­inn og mér fannst þetta bara rosa­lega töff. En þetta lita­val var greini­lega kornið sem fyllti mæl­inn hjá skóla­fé­lögum mínum sem virt­ust sam­ein­ast um að fyr­ir­líta mig og vilja gera mér lífið leitt. Fyrri önnin í níunda bekk fannst mér hel­víti á jörðu, mér leið rosa­lega illa og fram­koman við mig skildi eftir sig stór sár á sjálfs­mynd­inni,“ segir Þór­hildur Sunna.

„Ég man eftir að hafa reglu­lega verið kölluð man­son­isti, man­son­ari, djöfla­dýrk­andi, dópisti og ýmis­legt annað verra eins og tussa, hóra og tík. Ég man eftir við­stöðu­lausu áreiti og til­raunum til þess að plata mig til að segja eða gera eitt­hvað heimsku­legt. Ég man að skóla­fé­lagar mínir áttu það til að henda í mig mat­ar­af­göngum í mat­salnum. Þau voru mörg sem gerðu sér það að leik að reyna að fella mig á göng­unum á efri hæð­inni og ég man hvað ég var alltaf hrædd að ganga fram hjá þeim. Ég man sér­stak­lega vel eftir van­mætt­inum sem ég upp­lifði á hverjum ein­asta degi og hvað mér fannst ég mik­ill aum­ingi að svara aldrei fyrir mig.“

Ítarlegt við­tal er við Þórhildi Sunnu í 14. tölu­blaði Vikunnar, 2018, þar sem hún ræðir meðal ann­ars um ein­eltið, áreitið og gamla lög­manna­hrúta á Alþingi.  

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina