Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Innsæið öskrar á mig að taka þetta skref“

Unnur Egg­erts­dóttir var ekki há í loft­inu þegar hún tók þá ákvörðun að verða leik- og söng­kona. Frá ung­lings­aldri hefur hún unnið hörðum höndum að því að upp­fylla þann draum, og hefur und­an­farin ár verið búsett í landi tæki­fær­anna, Banda­ríkj­unum. Á þeim tveimur árum sem liðin eru frá útskrift úr virtum leik­list­ar­skóla hafa verk­efnin verið fjöl­mörg. Unnur stendur nú á tíma­mótum eftir að hafa sagt upp hlut­verki sínu í stórum söng­leik sem settur var upp í Las Vegas.

„Innsæið öskrar á mig að taka þetta skref“

Leiðin hefur ekki alltaf verið greið síð­ustu ár í lífi Unnar, þrátt fyrir að á blaði virð­ist tæki­færin hafi hrein­lega dottið upp í hend­urnar á henni. Sjálf gefur hún lítið fyrir þá hug­mynd að hægt sé að meika það á einni nóttu. „Það er ein­hver róm­an­tík yfir þeirri hug­mynd í Hollywood sem fræga fólkið virð­ist oft vilja halda í,“ segir hún. „Það hljómar kannski betur að hafa orðið frægur á einni nóttu, því fólk vill ekki segja frá svit­anum, grát­inum og barn­ingnum sem hefur farið í þessa veg­ferð á kannski tíu árum, meðan eng­inn vissi hver þau voru. Það er kannski eitt hlut­verk sem gerir þau fræg, en öll vinnan fram að þessu hlut­verki, það tala fáir um hana. Sjálfri finnst mér skemmti­legra þegar fólk segir hvað búið er að fara í bar­átt­una, það gefur mér mik­inn inn­blástur. Það er oft talað um að gullna reglan sé tíu ár. Ef þú gefst ekki upp í ára­tug og vinnur eins mikið og þú getur, þá verð­urðu á góðum stað. Þetta er bara eins og í öðrum greinum – ef þú vilt stjórna stóru fyr­ir­tæki eða vinna þig upp sem læknir, þarftu að leggja alveg jafn­mörg ár í það eins og ef þú vilt verða virtur leik­ari. Margir líta á þetta ferli sem sprett­hlaup, og bara á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að ég útskrif­að­ist úr leik­list­ar­nám­inu hef ég sé marga gef­ast upp. Mér finnst mik­il­væg­ast að hafa þol­in­mæði og yfir­vegun, og halda í drif­kraft­inn.“

Unnur hefur síð­ustu þrjá mán­uði leikið hlut­verk Jayne Mans­fi­eld í söng­leik um líf Marilyn Monroe sem settur var upp í Las Vegas. Hlut­verkið er það stærsta sem Unnur hefur leikið hingað til, og hafa síð­ustu mán­uðir verið mikil keyrsla. „Það var mögnuð lífs­reynsla að búa og vinna í Vegas. Ég hafði fyrst ekki hug­mynd um við hverju ég ætti að búast og fannst ég svo­lítið rugluð að flytja í þessa djamm­borg. En þetta voru óend­an­lega skemmti­legir og lær­dóms­ríkir mán­uðir. Þarna var ég að vinna með marg­földum Broadway-stjörnum og fag­fólki með ára­tuga reynslu í brans­anum. Leik­hóp­ur­inn varð mjög náinn og allir sem komu að sýn­ing­unni voru með óbilandi metnað. Við vorum oft á 12 tíma æfingum marga daga í röð, að læra 18 tón­list­ar­at­riði með erf­iðum dönsum og rödd­unum. Svo tóku sýn­ingar við og þá sýndum við sex kvöld í viku, aðeins í fríi á mánu­dögum. Ég lærði svo mikið um sjálfa mig, rödd mína og lík­ama, hvað ég þurfti að gera til að halda mér í sem bestu formi til að geta sýnt svona erf­iða sýn­ingu næstum dag­lega. Í því fólst að anda að mér gufu í klukku­tíma á dag, taka milljón vítamín og drekka kín­verskt hun­ang, hvíla rödd­ina fyrir hádegi, hita hana vel upp, og kæla hana svo niður eftir sýn­ingu. Svo var ég í sjúkra­þjálfun þrisvar sinnum í viku því það var mikið álag á bak­inu í þessum dönsum sem ég var í. Þetta tók allt því­líkt á, en alveg klár­lega það lær­dóms­rík­asta sem ég hef gert.“

Til stóð að sýn­ingar á söng­leiknum stæðu yfir í sex mán­uði til að byrja með, en fyrir mán­uði tóku fram­leið­endur sýn­ing­ar­innar ákvörðun um að skipta um leik­hús og gera breyt­ingar á rekstr­ar­um­hverf­inu. „Vegna þess­ara breyt­inga var ákveðið að senda leik­ar­ana í sum­ar­frí, sem mér fannst æðis­legt. Ég fór í tvær vikur til New York að leika mér og hitta gamla vini, og er svo búin að eiga tvær dásam­legar vikur hér á Íslandi,“ segir Unnur, en vegna alls þessa þarf að end­ur­nýja samn­inga við leik­ar­ana eftir sum­ar­fríið. Hún hefur hins vegar tekið ákvörðun um að end­ur­nýja ekki sinn samn­ing.

„Í stærra sam­heng­inu held ég að það sé betra fyrir mig og minn feril að end­ur­nýja hann ekki, heldur fara aftur til Los Angeles og ein­beita mér að því að finna ný verk­efni. Nú þegar þetta er komið í fer­il­skrána og reynslu­bank­ann finnst mér það rétta í stöð­unni að skoða ný tæki­færi og hlut­verk, í stað­inn fyrir að vera þarna í ár í við­bót, eins ótrú­lega gaman og það samt er. Þetta er auð­vitað meiri áhætta, en ég finn innra með mér að þetta er rétt ákvörðun. Á svona stundum þarf að hlusta á inn­sæið – og það öskrar á mig að ég verði að taka þetta skref, eins hrædd og ég er við það.“

Þetta er aðeins brot út ítar­legu við­tali við Unni. Viðtalið í heild má finna í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Myndir: Aldís Páls­dóttir / Aðstoð­ar­ljós­mynd­arar: Unnur Magna og Jökull Sindra­son
/Förðun: Björg Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina