Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Helmer hjónin hittast aftur

Brúðu­heim­ili Hendriks Ibsen hefur lengi verið talið eitt af umdeild­ustu raun­sæ­is­verkum síð­ari ára. Í verk­inu Dúkku­heim­ilið, annar hluti, hitta áhorf­endur fyrir sömu per­sónur, fimmtán árum síðar, en verkið er sýnt um þessar mundir í Borg­ar­leik­hús­inu.

Helmer hjónin hittast aftur

Ibsen skrif­aði leik­ritið um Helmer-hjónin (e. A Doll´s House) árið 1897 en endir verks­ins var bylt­ing­ar­kenndur, svo ekki sé meira sagt. Eftir sat spurn­ingin, hvað varð um Nóru eftir að hafa yfir­gefið mann sinn og börn með þekktasta hurða­skelli bók­mennta­sög­unnar.

Í nýju höf­und­ar­verki Lucas Hnath, Dúkku­heim­ilið, annar hluti, ber Nóra að sömu dyrum, fimmtán árum síðar, og það sem áhorf­endur fá fljótt að vita er að hjónin eru enn gift.
Ár er síðan verkið var frum­sýnt á Broadway og það var strax til­nefnt besta leik­ritið á Tony-verð­launa­há­tíð­inni, enda er það skemmti­lega skrifað, í anda Ibsens þar sem kjarna­stefið um kraft kon­unnar er haft að leið­ar­ljósi. Leik­hús­gestir þurfa ekki að hafa lesið Ibsen eða séð Brúðu­heim­ilið því for­sagan kemst vel til skila í þýð­ingu Sölku Guð­munds­dóttur.

Fjöl­breytt list­form héldu sýn­ing­unni á lofti en bún­ingar Stefaníu Adolfs­dóttur voru ákveð­inn senu­þjófur. Nóra sveifl­að­ist um sviðið líkt og nauta­bani og ögrar bæði eig­in­mann­inum og úreltum við­horfum.

Lita­valið var jafn­framt áhuga­vert og aug­ljóst að gæði ríktu innan fjöl­skyld­unnar sem þar til nú hafði sóp­aði vanda­málum undir flauelsteppið.
Tón­listin átti sinn þátt í að skapa magn­þrungna stemn­ingu Nýja sviðs­ins þar sem Una Svein­bjarg­ar­dóttir á heiður skil­inn. Leikmynd Barkar Jóns­sonar birti ískalt og per­sónu­leika­laust heim­ili sem minnti frekar á graf­hýsi en glæsi­höll. Lýsing Björns Berg­steins Guð­munds­sonar jók jafn­framt dramat­ísk áhrif tón­listar og dans­at­riða sem römm­uðu verkið listi­lega inn undir leik­stjórn Unu Þor­leifs­dóttur.
Dans­at­riðin áttu stóran þátt í upp­færsl­unni undir stjórn Svein­bjargar Þór­halls­dóttur. Verkið hefst með dans­hreyf­ingum sem verða að við­loð­andi stefi. Dans­hreyf­ing­arnar hefði á köflum mátt stytta þó að til­komu­mik­ill tangó hjón­anna síðar í verk­inu hafi verið tákn­rænn þar sem Nóra kvaddi end­an­lega þá und­ir­gefnu konu sem hún eitt sinn var.

Í upp­gjöri hjón­anna var jafn­framt bráð­snjallt að sjá Nóru spegla lík­ams­stöðu Þor­valdar og beina sjónum að karllægum stell­ingum þegar kemur að yfir­ráða­orð­ræðu.

Margrét Helga Jóhanns­dóttir fer með hlut­verk barn­fóstr­unnar Önnu Maríu en við­horf hennar kall­að­ist á við hjónin hvort um sig. Lágróma rödd Emmu, dóttur hjón­anna, í með­förum Ebbu Katrínar Jóns­dóttur, spegl­aði svo unga Nóru með við­horf feðra­veld­is­ins að leið­ar­ljósi. Textinn hefur nefni­lega tvær hliðar svo áhorf­endur halda á ein­hvern hátt með öllum karakt­er­unum fjórum. Ólíkar hug­myndir um ást­ina, skuld­bind­ingu hjóna­bands­ins, sam­skipti kynj­anna og stöðu kon­unnar á sann­ar­lega við í sam­tíma leik­húsi.
Þótt umfjöll­un­ar­efnið sé þungt er alltaf stutt í húmor­inn, þökk sé Hilmi Snæ Guðn­a­syni sem líf­gerir hér kunn­ug­legan karakter. Þau Hilmir og Unnur Ösp Stef­áns­dóttir eru óum­deil­an­lega miklir þunga­vigta­leik­arar. Ástríðan á milli Nóru og Þor­valdar er enn til staðar og á ein­hverjum tíma­punkti glitti í von um að hjóna­band þeirra hlyti far­sælan endi. Lok verks­ins eru þó sterk því Nóra er hvergi nærri hætt í bar­áttu sinni fyrir frelsi kon­unnar. Það er vel hægt að mæla með Dúkku­heim­ili, öðrum hluta, fyrir alla sem vilja kom­ast nær því að skilja hvað það felur í sér að vera mann­eskja.

Umfjöll­un­ina má finna í 39 tbl. Vikunnar.

Texti/ Íris Hauks­dóttir.

Mynd / Grímur Bjarna­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina