Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Trúir ekki á neitt yfirnáttúrulegt

Malene Sölvsten sló í gegn í Danmörku með fyrstu bók sinni um Hvísl hrafn­anna og nú er þriðja bókin komin. Hún seg­ist ekki trúa á neitt yfir­nátt­úr­legt þótt slíkt leiki stórt hlut­verk í sögum hennar.

Trúir ekki á neitt yfirnáttúrulegt
Hvísl hrafn­anna sló í gegn.

Nú er þriðja bókin um Önnu og félaga hennar í Ravnsted komin út í Danmörku og önnur bókin í bóka­flokknum nýkomin út á íslensku. Malene var einn gesta á bók­mennta­há­tíð­inni Mýrinni á dög­unum. Hún er yfir sig hrifin af Íslandi sem hún hefur fram að þessu aðal­lega kynnst í gegnum Snorra Eddu sem, eins og les­endur hennar vita, er stór hluti af inn­blæstri hennar til að skapa þann heim sem Hvísl hrafn­anna skilar til okkar. Malene hefur skrifað frá því að hún man eftir sér en hún seg­ist aldrei hafa stefnt að því að verða rit­höf­undur í fullu starfi. Skrifin hafi bara verið fyrir hana sjálfa og seinni árin sem hvíld frá ábyrgð­ar­fullu og krefj­andi starfi í danska fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hún var sem sé starf­andi hag­fræð­ingur þar á meðan hún skrif­aði fyrstu bók­ina.

Hvísl hrafn­anna, 2. bók.

„Ég ætl­aði að verða mynd­list­ar­maður,“ segir hún og hlær. „Ég var alltaf teikn­andi, málandi og skrif­andi sem barn og sá fyrir mér að vinna fyrir mér með mynd­list­inni þegar ég yrði full­orðin. Ég sótti þrisvar um í mynd­list­ar­skóla sem ung­lingur en fékk alltaf höfnun og það end­aði með því að ég fór í ljós­mæðra­nám. Eftir að hafa stundað það í eitt ár, meðal ann­ars verið í starfs­námi á stórum spít­ala í Kaup­manna­höfn og tekið á móti barni eftir að hafa vakað í 48 tíma sá ég að þetta starf var allt of mikið álag fyrir mig, hætti í nám­inu og fór í hag­fræði. Ég lagði áherslu á efna­hags­mál þró­un­ar­land­anna í nám­inu og ætl­aði að vinna fyrir þau, láta gott af mér leiða, skil­urðu, en þegar ég útskrif­að­ist var efna­hag­skreppan skollin á og slík störf ekki í boði þannig að þegar mér bauðst starf í fjár­mála­ráðu­neyt­inu þáði ég það auð­vitað. Þar vann ég í tvö og hálft ár í sam­skipta­deild­inni, stjórn­aði alls konar her­ferðum fyrir rík­is­stjórn­ina og lærði alveg óskap­lega mikið.“

„Ég var alltaf teikn­andi, málandi og skrif­andi sem barn og sá fyrir mér að vinna fyrir mér með mynd­list­inni þegar ég yrði full­orðin.“

Hún vann að fyrstu bók­inni í leynum í tvö ár áður en henni var nán­ast þröngvað til að senda hand­ritið til útgef­anda eftir að móðir hennar hafði kom­ist að leynd­ar­mál­inu fyrir slysni.

„Ég sendi hand­ritið til Gyld­en­dal eftir að mamma suð­aði í mér,“ segir hún og grettir sig. „Ég átti svo sem ekki von á að það yrði gefið út en ég við­ur­kenni að þegar liðnir voru fjórir mán­uðir án þess að ég fengi nokk­urt svar var ég orðin dálítið pirruð. Þeir gætu nú að minnsta kosti sent höfn­un­ar­bréf. Það væru nú lág­marks­mannasiðir.“

Það kom henni því algjör­lega í opna skjöldu þegar svar­bréfið barst loks­ins og þar bauð Gyld­en­dal henni ekki bara útgáfu­samn­ing um fyrstu bók­ina heldur þriggja bóka samn­ing.

Ýtar­legra við­tal við Malene má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

„Ég var algjör­lega sann­færð um að þetta væru mis­tök,“ segir hún ein­læg. „Þeir hlytu að hafa ruglað mér saman við ein­hvern annan höf­und. Ég var skjálf­andi á bein­unum þegar ég fór í fyrsta við­talið hjá rit­stjór­anum mínum, hrædd um að hún upp­götv­aði mis­tökin og fleygði mér á dyr. Það var ekki fyrr en hún nefndi nafnið á einum karakt­ernum í bók­inni sem ég fór að anda léttar. Bókin varð síðan met­sölu­bók, sem ég held ekki að neinn hafi búist við, og nú er ég rit­höf­undur í fullu starfi.“

Malene veit ekki hvað hún ætlar að skrifa næst en hún er með þrjú verk­efni í vinnslu.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina