Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Már hefur ítrekað sagt okkur sek

Seðla­bank­inn haft „ótrú­legt“ hug­mynda­flug í að búa til glæpi, segir for­stjóri Samherja.

Már hefur ítrekað sagt okkur sek

Atburða­rás sem hófst 27. mars 2012 lauk í síð­ustu viku með sýknu­dómi Samherja í Hæsta­rétti. Seðla­banki Íslands skipu­lagði og fram­kvæmdi hús­leit á starfs­stöðvum Samherja árið 2012 og í kjöl­farið lýsti banka­stjóri SÍ því yfir að grunur léki á tug­millj­arða und­an­skotum á gjald­eyri á vegum fyr­ir­tæk­is­ins, en á þessum tíma voru gjald­eyr­is­höft á Íslandi og skila­skylda á gjald­eyri. Á þeim tæp­lega sjö árum sem liðin eru hefur komið í ljós að ekk­ert var hæft í ásök­unum bank­ans og smám saman hefur mála­rekstur bank­ans rýrnað í roð­inu, þar til nú, að Samherji hefur verið sýkn­aður af öllum ákærum.

„Ég bjóst ekki við neinu öðru,“ segir Þor­steinn Már Bald­urs­son um nið­ur­stöðu Hæsta­réttar.

Um upp­haf máls­ins segir hann að frétta­stofu RÚV hafi verið gert aðvart um hús­leit­ina áður en hún fór fram. „Fjöl­miðlar eru boð­aðir á stað­inn áður en hús­leit­ar­menn koma til. Þarna eru mættir sjón­varps­menn frá RÚV bæði í Reykja­vík og Akureyri, þeir hafa þurft að taka kvöld­vél­ina, þá send til­kynn­ing um hús­leit­ina um allan heim bæði á íslensku og ensku. Þá var send frétta­til­kynn­ing um kæru áður en kæran var send Sér­stökum sak­sókn­ara.“

Þor­steinn Már undr­ast þrá­kelkni stjórn­enda Seðla­bank­ans í mál­inu. „Manni leið alltaf [eins og] að [Seðla­bank­ann] vant­aði bara eitt­hvað til að mál­inu lyki ekki.“ Kæru­efnin fengu öll efn­is­lega með­ferð hjá Sér­stökum sak­sókn­ara. Ekkert kom fram við skoðun Sérstaks sak­sókn­ara sem benti til vís­vit­andi und­an­skota Samherja.

„Við höfðum rekið sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi til fjölda ára. Við höfðum selt afurðir fyrir erlend fyr­ir­tæki, en þegar gjald­eyr­is­lögin komu urðum við að taka pen­ing­ana heim, við vorum til dæmis að selja grá­lúðu fyrir þýskan tog­ara, en auð­vitað á þýska fyr­ir­tækið afla­verð­mætið, en við vorum að taka fast hlut­fall fyrir að selja fisk­inn. Þá urðum við að taka pen­ing­ana heim, en svo að sjálf­sögðu að skila honum til Þýska­lands.[…] Sér­stakur sak­sókn­ari fjall­aði um fisk­verð, gjald­miðla­skil og svo fram­vegis og komst að þeirri nið­ur­stöðu að allt væri í standi, þá fann [Már] upp á þessu,“ segir Þor­steinn Már um til­raunir Seðla­bank­ans til að halda lífi í mál­inu, þrátt fyrir að sak­sókn­ari sæi ekki ástæðu til ákæru.

„Már er búinn að segja ítrekað í fjöl­miðlum að við séum sek,“ segir Þor­steinn Már og telur að það sé lög­brot af hálfu valda­mik­ils emb­ætt­is­manns að fella þennan dóm gagn­vart sak­lausu fólki.

Bankinn hefur ótak­mark­aða pen­inga til að verja sig og hefur haft ótrú­legt hug­mynda­flug í að búa til á okkur glæpi.

Hann álítur Seðla­bank­ann hafa hrak­ist vígi úr vígi á þessum árum sem liðin eru frá hús­leit­inni. „Það er svo oft sem kemur fram skýr ásetn­ingur hjá Seðla­bank­anum. Eins og þegar þeir segj­ast hafa fundið gögn sem stað­festi und­ir­verð­lagn­ingu. Málið sner­ist um fjórtán sölur á sjó­frystum flökum, fjórar til Póllands og tíu til tengds aðila í Bret­landi. Það vill svo til að allar söl­urnar til Englands eru á hærra verði en til Póllands. Það eina sem þú sérð út úr þessu er að þeir blönd­uðu saman pundum og evrum.“

Hann seg­ist ekki vera einn í Samherja. „Það vinna mörg hund­ruð manns hjá fyr­ir­tæk­inu. Það er búið að kæra þónokkra ein­stak­linga, fólk verður að skilja að það að vera með stöðu sak­born­ings í mörg ár, með banka­stjór­ann gap­andi hægri vinstri – það er mjög þung­bært.“

Spurður að því hvort mál­inu sé lokið segir Þor­steinn Már: „Bankinn hefur ótak­mark­aða pen­inga til að verja sig og hefur haft ótrú­legt hug­mynda­flug í að búa til á okkur glæpi. Fyrir mér þá verður þessu máli að ljúka. Því verður aldrei lokið nema að Már Guð­munds­son víki. Hann er búinn að brjóta svo illa af sér í opin­beru starfi.“

Texti / Sig­mundur Ernir Rún­ars­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti