Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Reykjavík látin axla byrðar nágrannanna

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri var í veik­inda­leyfi á sama tíma og hart var sótt að honum vegna bragga­máls­ins. Hann segir vondan brag á umræð­unni um störf borg­ar­innar en er stað­ráð­inn í að sitja út kjör­tíma­bilið sem að hans sögn mun ein­kenn­ast að mik­illi upp­bygg­ingu.

Reykjavík látin axla byrðar nágrannanna
||

Óhætt er að segja að mikið hafi gengið á fyrstu mán­uði nýs meiri­hluta sem kynntur var í júní. Gustað hefur um Orku­veitu Reykja­víkur eftir að fram­kvæmda­stjóri Orku Nátt­úr­unnar var sak­aður um óæski­lega hegðun gagn­vart und­ir­mönnum og einni þeirra sem kvart­aði undan hegðun hans var sagt upp. Þá kom í ljós að tveir aðrir starfs­menn höfðu orðið upp­vísir af sam­bæri­legri hegðun, innan og utan veggja fyr­ir­tæk­is­ins. Á haust­mán­uðum var svo ljóstrað upp um yfir­gengi­lega fram­úr­keyrslu við end­ur­upp­bygg­ingu bragga í Naut­hóls­vík. Ofan á allt saman hefur Dagur glímt við erfið veik­indi en hann greindi frá því í júlí að hann glímdi við svo­kall­aða fylgi­gigt í kjöl­far sýk­ingar. Um miðjan októ­ber fór hann í veik­inda­leyfi vegna þessa. „Gigtin var greind fljótt og vel og ég er á ansi mik­illi ónæm­is­bælandi með­ferð til að halda henni niðri og fannst það hafa gengið býsna vel. En hin hliðin á því að vera ónæm­is­bældur er að maður er útsett­ari fyrir sýk­ingum og ég hafði verið var­aður við því. En maður býst samt kannski aldrei við því að fá þær og fyrir nokkrum vikum tók sig upp sam­bæri­leg sýk­ing og ég fékk síð­asta vetur. Hún var hins vegar greind fljótt og vel og ég fékk við­eig­andi með­ferð en þurfti að taka tíma til að jafna mig. Þannig að þetta er ákveð­inn línu­dans en ég bý að því að eiga frá­bæra fjöl­skyldu og frá­bært sam­starfs­fólk sem steig bara inn í þau verk­efni sem voru í gangi og leysti það mjög vel af hendi. Nú er ég kom­inn aftur á ról, kannski tek því aðeins rólegar,“ segir Dagur sem hefur not­ast við staf á ferðum sínum. „Ég er að reyna að losa mig við staf­inn, nota hann á lengri göngu­ferðum en hvorki í vinnu né heima og von­ast til að losna við hann fljót­lega.“

Upphlaup út af stóru og smáu

Veikindi Dags urðu að póli­tísku deilu­máli eftir að odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði óþægi­legt að hann gæti ekki tekið þátt í umræðum um bragga­málið og fékk hann miklar skammir í hatt­inn frá sam­herjum Dags. Sjálfur kaus Dagur að svara ekki fyrir málið. „Ég óskaði eftir ákveð­inni til­lits­semi í sumar og það sem mér finnst standa upp úr er að ég mæti hvar­vetna hlýju og stuðn­ingi og nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust í póli­tík­inni. Þær und­an­tekn­ingar sem þar eru finnst mér dæma sig sjálfar og ég ætla ekk­ert að bregð­ast við því.“

Þegar ljóst var hvernig borg­ar­stjórn var skipuð sagð­ist Dagur von­ast til þess að þeir ósiðir sem tíðk­uð­ust á Alþingi bær­ust ekki inn í ráð­húsið. Aðspurður hvernig til hafi tek­ist á þessum fyrstu mán­uðum kjör­tíma­bils­ins svarar Dagur því til að núver­andi minni­hluti sé óvægn­ari en sá sem áður var: „Mér finnst vondur bragur á upp­hlaupum út af stóru og smáu. Það er nán­ast sama hvað er, það eru notuð alveg gríð­ar­lega stór orð. Ég kveinka mér ekki undan því þegar þeim er beint að mér en mér finnst miklu verra þegar það er verið að hafa almennt verka­fólk sem er að vinna hjá borg­inni að háði og spotti með því að birta myndir því á Facebook og gera það að athlægi.“ Eitt slíkt til­felli var þegar Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, birti á Facebook-síðu sinni mynd af starfs­mönnum borg­ar­innar að vökva blóm í rign­ingu. „Mér finnst þetta í raun vera að fara yfir ein­hver mörk sem við eigum ekki að venj­ast hér í borg­inni. Fólk sem er kjörnir full­trúar og er komið í valda­stöðu verður ein­fald­lega að sjá sóma sinn í því að umgang­ast það vald af hóf­semi og virð­ingu fyrir öðru fólki.“

„Ég kveinka mér ekki undan því þegar þeim er beint að mér en mér finnst miklu verra þegar það er verið að hafa almennt verka­fólk sem er að vinna hjá borg­inni að háði og spotti með því að birta myndir því á Facebook og gera það að athlægi.“

Senda skýr skilaboð um borgarlínu

„Ég myndi segja að þessi vetur gæti orðið vetur hinna stóru verk­efna,“ segir Dagur þegar hann er spurður út í fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir árið 2019 sem hann kynnti í vik­unni.  Er gert ráð fyrir að afgangur á rekstri borg­ar­innar nemi 3,6 millj­örðum króna. Á sama tíma var fjár­má­l­á­ætlun næstu ára lögð fram. „Þar er af mörgu að taka og í mínum huga erum við að sigla inn í kjör­tíma­bil sem mun ein­kenn­ast af miklum fjár­fest­ingum fyrir fólk og lífs­gæðin í borg­inni, fyrir hverfin og þjón­ustu við börn og ung­linga. Rekstur borg­ar­innar gengur mjög vel og töl­urnar eru mjög sterkar.“ Fyrst nefnir Dagur fimm millj­arða króna fjár­fest­ingu í leik­skóla­málum á næstu árum þar sem mark­miðið er að brúa bilið á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. „Við erum að fjölga leik­skóla­deildum, fjölga ung­barna­deildum sér­stak­lega og byggja nýja leik­skóla. Á rekstr­ar­hlið­inni sjáum við fram á að geta tekið inn yngri börn í skrefum. Þarna erum við að klára leik­skóla­bylt­ing­una sem var sett af stað í borg­inni fyrir 20 árum.“ Þá nefnir Dagur stór verk­efni í efri byggðum borg­ar­innar – bolta­hús við Egils­höll í Graf­ar­vogi, bygg­ingu Dals­skóla í Úlf­arsár­dal ásamt menn­ing­ar­mið­stöð og sund­laug og knatt­hús og íþrótta­hús í Mjódd.

„Rekstur borg­ar­innar gengur mjög vel og töl­urnar eru mjög sterkar.“

Stóra málið er þó vafa­laust hin umdeilda borg­ar­lína en í fyrsta skipti eru fjár­munir eyrna­merktir því verk­efni í fjár­fest­inga­á­ætlun, fimm millj­arðar nánar til­tekið. Það er þó ekki fugl í hendi því enn á eftir að semja við ríkið um fjár­mögnun verk­efn­is­ins. „Þó að þetta séu ekki end­an­legar tölur þá vildum við sýna að borgin hefur afl til þess að standa fyrir sínum hluta á þessu stóra verk­efni sem skiptir rosa­legu máli ef að tafa­tím­inn í umferð­inni á ekki að aukast enn meira. Ríkið þarf auð­vitað að standa við sinn hlut en við höfum sagt að við séum til­búin til þess að leggja út fyrir borg­ar­lín­unni í ein­hver ár gegn öruggum samn­ingi um að rík­is­fram­lagið komi í réttu hlut­falli á móti vegna þess að ef maður horfir á morg­un­um­ferð­ina og síð­deg­is­um­ferð­ina í borg­inni þá er aug­ljóst að það þarf að grípa til fjár­fest­inga og rót­tækra aðgerða.“ Þótt borg­ar­línu sé ekki að finna í drögum að fimm ára sam­göngu­á­ætlun rík­is­ins seg­ist Dagur bjart­sýnn á að verk­efnið fái fram­gang, enda liggi fyrir vilja­yf­ir­lýs­ing milli rík­is­ins og þeirra sveit­ar­fé­laga sem koma að verk­efn­inu. „Nýfram­komin loft­lags­á­ætlun stjórn­valda ætti að styrkja í raun þennan mál­stað og þetta verk­efni. Það er algjör­lega ljóst að Ísland getur ekki náð þeim mark­miðum sem sett eru varð­andi sam­göngur ef ekki koma til breyttar ferða­venjur, þar með talið borg­ar­lína. Það er margt sem helst í hendur um að það ætti að vera hægt að ná breiðri póli­tískri sam­stöðu og breiðri sam­stöðu milli ríkis og sveit­ar­fé­laga.“

Aðra stóra sam­göngu­fram­kvæmd er þó að finna í sam­göngu­á­ætlun og er það stokkur á Miklu­braut. Dagur segir það mikið fagn­að­ar­efni þótt sú fram­kvæmd sé ein­ungis fjár­mögnuð að hluta. „Hún er sett í stokk á öðru tíma­bili sam­göngu­á­ætl­unar. Mér finnd­ist mjög spenn­andi að skoða leiðir til þess að flýta því í tengslum við borg­ar­línu­fram­kvæmd­ina en það er auð­vitað praktískt úrlausn­ar­efni. Þetta er líka flókin fram­kvæmd, það þarf að fara í umhverf­is­mat og útfæra hvernig við ætlum að haga umferð­inni á fram­kvæmda­tím­anum. En aðal­at­riðið er að Mikla­braut fari í stokk. Stóra myndin í sam­göngu­mál­unum er sú að við þurfum að gera það að betri og í raun fram­úr­skar­andi kosti fyrir alla sem vilja fara til og frá vinnu eða skóla með almenn­ings­sam­göngum, að geta gert það fljótt og vel. Að borg­ar­línan fái for­gang í umferð­inni, að þú vitir að þetta skili þér hratt og örugg­lega, að tíðnin sé meiri, að stöðv­arnar séu vist­legri og þetta sé bara fram­úr­skar­andi upp­lifun í alla staði.“

Til að takast á við miklar umferð­ar­teppur á álags­tímum segir Dagur að hægt sé að ráð­ast í til­teknar aðgerðir. „Það eru ákveðnir hlutir sem hægt er að gera í ljósa­stýr­ingu og það á að gera það strax. Það eru líka ákveðnir hlutir sem hægt er að gera varð­andi til­tekna flösku­hálsa sem hægt er að gera strax“. Um mis­læg gatna­mót segir Dagur að gef­inn sé upp bolti með það í útjaðri borg­ar­innar í tengslum við áform um tvö­földun veg­anna út úr borg­inni. „En það er alveg ljóst að inni í miðri byggð þar sem eru íbúða­hverfi, þar á hrað­brauta­skipu­lag ekk­ert heima.“

Ekki meiri peningur í braggann

Dagur segir fjár­hags­á­ætl­un­ina bera þess merki að fjár­hags­leg staða borg­ar­innar sé sterk en stærsta mál kjör­tíma­bils­ins hefur þó snúið að óábyrgri fjár­mála­stjórn í kringum bragga­málið. Þótt málið hafi á tíðum verið far­sa­kennt, sam­an­ber 750 þús­und króna reikn­ing fyrir dönsk strá sem líta út eins og íslenskt mel­gresi, þá er 250 millj­óna króna fram­úr­keyrsla lítið gam­an­mál. Fram­kvæmdum er ólokið en Dagur segir að af hálfu Reykja­vík­ur­borgar verði ekki meiri pen­ingar settir í bragg­ann. „Bragga­fjár­fest­ing­unni er lokið og nú verður Háskól­inn í Reykja­vík leigu­sali og ann­ast starf­sem­ina þar. Við þurfum auð­vitað að ljúka frá­gangi máls­ins við Háskól­ann í Reykja­vík en hugs­unin var sú að leigu­greiðslur háskól­ans myndu standa undir þess­ari fram­kvæmd. Það er alveg ljóst og var ljóst síð­ast­liðið sumar að af því að fram­kvæmdin fór fram úr áætlun þá mun hluti þess lenda á Reykja­vík­ur­borg og hluti þess á Háskól­anum í Reykja­vík. Þessari fram­kvæmd á að vera lokið.“

„Bragga­fjár­fest­ing­unni er lokið og nú verður Háskól­inn í Reykja­vík leigu­sali og ann­ast starf­sem­ina þar.“

Dagur segir að þessi mikla fram­úr­keyrsla hafi orðið honum ljós þegar við­auki við fjár­fest­inga­á­ætlun hafi verið lagður fram í sumar. Hann hafi þá vakið athygli borg­ar­ráðs á mál­inu og kallað eftir skýr­ingum. „Allur meiri­hlut­inn hefur verið alveg skýr í því að það þurfi að fara yfir þetta mál og kom­ast til botns í því og við höfum kallað eftir til­lögum frá innri end­ur­skoðun um það sem þarf að bæta úr. Við þurfum að tryggja að ferl­arnir hjá okkur og leik­regl­urnar séu þannig að það dragi úr áhættu eins og hægt er í fjár­fest­ingu og fram­kvæmdum. Við vitum það að opin­berar fram­kvæmdir og fram­kvæmdir á vegum einka­að­ila hafa til­hneig­ingu til að fara fram úr og það er áhætta í því öllu og umgjörðin hjá okkur þarf að vera þannig að það sé dregið úr þeirri áhættu eins og nokkur kostur er.“ Bendir Dagur í því sam­hengi á að bæði Perlan og Ráðhús Reykja­víkur hafi farið langt fram úr áætl­unum. „Í sam­tíma­heim­ildum sagði að Perlan hefði dugað til þess að byggja 27 leik­skóla. Ráðhúsið eitt og sér voru 33 braggar í fram­úr­keyrslu.“

Dagur sagð­ist á dög­unum ekki munu segja af sér vegna máls­ins en aðspurður um hvernig póli­tísk ábyrgð á mál­inu komi til með að líta út svarar hann: „Við ákváðum að setja þetta mál til skoð­unar, meðal ann­ars vegna þess að það hafði verið spurt ýmissa spurn­inga varð­andi það. Ég held að innri end­ur­skoðun sé réttur aðili til að fara yfir það mál og fella dóma um það og ég ætla ekki að kveða upp dóma um það fyrr en þeirri skoðun er lokið.“

Erum að uppskera í húsnæðismálunum

Gríð­ar­legar hækk­anir á hús­næð­is­mark­aði hafa sett marga í erf­iða stöðu, ekki síst leigj­endur, fyrstu kaup­endur og þá sem hafa minna á milli hand­anna. Fyrir þessa hópa er ástandið afleitt og hús­næð­is­málin verða eitt helsta málið í kom­andi kjara­samn­ingum. Dagur segir að nú sé verið að sigla inn í tíma­bil upp­skeru í hús­næð­is­málum. „Það sem við erum að sjá núna að á hverju ári koma inn á mark­að­inn hund­ruð íbúða sem eru í bygg­ingu á vegum óhagn­að­ar­drif­inna félaga sem eru ætl­aðar fólki með lægri laun, stúd­entum, eldri borg­urum og þeim sem vilja búsetu­rétt. Þetta mun hafa veru­leg og vax­andi áhrif inn á hús­næð­is­mark­að­inn til þess að tempra hækk­anir á leigu og stuðla að miklu heil­brigð­ari hús­næð­is­mark­aði og þeirri fjöl­breytni sem þarf.“ Á sama tíma séu að byggj­ast upp ný svæði með íbúðum á sölu­mark­aði – Voga­byggð, Hlíð­ar­endi, Gufunes, Kirkju­sandur, stækkun Bryggju­hverfis svo og nýtt hverfi í Skerja­firði þar sem 700 íbúðir fara af stað í fyrsta áfanga. „Þannig að við munum sjá miklar og jákvæðar breyt­ingar á hús­næð­is­mark­aði, bæði aukið fram­boð fyrir þá sem vilja kaupa en líka örugga lang­tíma­leigu á við­ráð­an­legu verði fyrir þá sem hafa minna á milli hand­anna eða eru stúd­entar.“

En koma þessar fram­kvæmdir ekki of seint í ljósi þess ástands sem ríkir á mark­að­inum?

„Við töldum, kannski með röngu vegna margs konar yfir­lýs­inga um alls konar lausnir í ein­inga­húsum, nýjar lausnir í bygg­inga­að­ferðum og svo fram­vegis, að það kæmu í gegnum hinn almenna hús­næð­is­markað lausnir sem myndu mæta ungu fólki og nýjum kaup­endum. Að mínu mati og það var okkar nið­ur­staða í fyrra að þessar lausnir höfðu bara látið á sér standa þrátt fyrir alla umræð­una. Mark­að­ur­inn var ekki að mæta ungu fólki og þess vegna steig borgin fram.“ Þar vísar Dagur í verk­efni sem kynnt var á dög­unum og fólst í hug­mynda­sam­keppni þar sem öllum gafst kostur á að koma með hug­myndir að upp­bygg­ingu ódýrs hús­næðis fyrir ungt fólk og fyrstu kaup­endur. Borgin leggur til lóðir á völdum stöðum í borg­inni sem valdir sam­starfs­að­ilar munu þróa og byggja upp að gefnum ákveðnum skil­yrðum. „Þarna er borgin að ein­hverju leyti að fara út fyrir hlut­verk sitt en við lítum þannig á að borg þarf að hafa heil­brigðan og fjöl­breyttan hús­næð­is­markað og við viljum beita okkur fyrir nýsköpun og tempra þessar rosa­legu verð­hækk­anir sem hafa orðið.“

Mynd / Hákon Davíð

Eitt af þeim félögum sem valin voru til verks­ins var Heima­vellir. Það vakti litla lukku meðal for­manns VR sem sagði Heima­velli gróða­fyr­ir­tæki sem beri ekki hag leigj­enda fyrir brjósti. Dagur bendir á móti á að Reykja­vík­ur­borg hafi verið leið­andi í sam­starfi við óhagn­að­ar­drifin félög. „Það hefur eng­inn og ekk­ert sveit­ar­fé­lag á Íslandi unnið nánar í sam­vinnu við verka­lýðs­hreyf­ing­una en Reykja­vík­ur­borg. Við vorum í lið­inni viku að úthluta lóð fyrir 99 íbúðir uppi í Árbæ við Bæj­ar­háls­inn til Bjargs. Þar með eru úthlut­anir til Bjargs orðnar um 700. Við höfum síðan átt í mjög jákvæðum sam­skiptum við for­mann VR sem vill til við­bótar við þessar íbúðir á vegum Bjargs, sem eru fyrir lægst laun­aða hóp­inn, fara í verk­efni þar sem VR byggir leigu­í­búðir sem verði fyrir alla félags­menn VR, ótekju­tengt. Við erum mjög jákvæð fyrir því.“

Reykjavík axlar byrðar nágrannanna

Dagur seg­ist finna fyrir því að rík­ari kröfur eru gerðar til Reykja­vík­ur­borgar en ann­arra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Aðspurður hvort hann upp­lifi það þannig að borgin sé að taka á sig byrðar nágranna­sveit­ar­fé­lag­anna svarar hann: „Að hluta til. Ég hef kallað eftir því í mörg ár að önnur sveit­ar­fé­lög geri meira í hús­næð­is­mál­unum. Mér finnst ekk­ert eðli­legt við það að Reykja­vík­ur­borg sé að vinna að upp­bygg­ingu þús­und íbúða í sam­vinnu við verka­lýðs­hreyf­ing­una og sum stór og öflug sveit­ar­fé­lög hafa ekki lagt fram lóð fyrir eina ein­ustu íbúð í sama verk­efni. Það er nákvæm­lega það sama þegar kemur að stúd­enta­í­búðum og að mörgu leyti þegar kemur að íbúðum fyrir aldr­aða og búsetu­réttar­í­búðir. Við erum með yfir þrjú þús­und íbúðir í bygg­ingu í sam­ráði við óhagn­að­ar­drifin félög þá eru verk­efni ann­arra sveit­ar­fé­laga bara í mýflugu­mynd.“ Dagur segir þetta var­huga­verða þróun með til­liti til þró­unar sam­fé­lags­gerð­ar­innar. Hætta sé á að ríkt fólk verði aðgreint frá hinum tekju­lægri. „Við verðum að vera með eitt sam­fé­lag, með félags­lega blöndun alls staðar. Það er heldur ekki gott fyrir fólk með meira á milli hand­anna að það verði til ein­hver eins­leit hverfi fyrir ríkt fólk. Því að dæmin erlendis þar sem svona þróun hefur fengið að vera óáreitt eru ömur­leg. Þetta er verri nið­ur­staða fyrir alla.“

„Ég hef kallað eftir því í mörg ár að önnur sveit­ar­fé­lög geri meira í hús­næð­is­mál­unum.“

Dagur segir að þetta eigi að ein­hverju leyti við um aðra þjón­ustu þar sem borgin njóti ekki alltaf sann­mælis. Það skýri meðal ann­ars hvers vegna Reykja­vík­ur­borg fái lak­ari ein­kunn í þjón­ustukönn­unum en nágranna­sveit­ar­fé­lögin. „Fólk klórar sér svo­lítið í hausnum yfir því að menn­ing­ar­mál fái miklu hærri ein­kunn en Reykja­vík í sveit­ar­fé­lögum þar sem öllum ber saman um að menn­ingu er alls ekki sinnt. Jafnvel í sumum góðum nágranna­sveit­ar­fé­lögum þar sem að fólk bara fer í Hörpu og Borg­ar­leik­húsið til að sinna sinni menn­ing­ar­neyslu. Þetta hefur eitt­hvað með það að gera að eftir því sem borgin verður stærri, þá upp­lifir það fjar­lægð­ina við stjórn­endur meiri og þú gefur þínu nærum­hverfi aðra ein­kunn.“ Þessar kann­anir sýni til dæmis að skól­arnir fái verstu ein­kunn­ina hjá þeim sem eru ekki að nota þá. „En ef þú ert með börn í skól­anum þá eykst ánægjan og svo þegar þú ert spurður um þinn skóla þá er ánægjan komin um eða yfir 90% og 95% í leik­skól­anum. Þannig að þetta er líka spurn­ingin á hvað áttu að horfa. Áttu að horfa á þjón­ustukönnun þar sem er verið að spyrja for­eldra út í skól­ann sem börnin þeirra eru í og ánægjan mælist jafn­vel 95% sem er gríð­ar­lega hátt, eða áttu að leggja aðal­á­herslu á kann­anir sem eru í raun­inni ein­hvers konar ímynd­arkann­anir þar sem er verið að stórum hluta verið að spyrja fólk sem er ekki að nota við­kom­andi þjón­ustu?“

Hafnartorg fengið ósanngjarna gagnrýni

Um þessar mundir stendur yfir mikil upp­bygg­ing í mið­borg­inni. Hótel er að rísa við Hörpu og Hafn­ar­torgið langt komið. Dagur segir loks­ins komið að því að mið­borgin snúi vörn í sókn. „Mið­borgin hefur átt undir högg að sækja eig­in­lega alveg frá því Kringlan var byggð. Borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar var linnu­laus umræða um það að annað hvert bil við Lauga­veg­inn væri autt. Núna er sleg­ist um plássin í hlið­ar­göt­unum.“  Upp­bygg­ing mið­borg­ar­innar er þó ekki óum­deild og segir Dagur það eðli­legt enda þyki öllum vænt um mið­borg­ina. En upp­bygg­ing Hljóma­lindar- og Hjarta­torgs­reit­anna, Hafn­ar­strætis, Exeter-hót­els­ins og Fisk­hall­ar­innar í Tryggva­götu sýni svo ekki verður um villst að mið­borgin sé að þró­ast í rétta átt. „Það sem hefur verið hvað umdeild­ast er Hafn­ar­torgið og það má alveg deila um arki­tektúr en ég er sann­færður um að þær versl­anir, veit­inga­staðir, íbúðir, skrif­stofur og mann­líf sem þarna kemur mun verða alveg ótrú­leg vítamín­sprauta. Við fáum magn­aðar göngu­götur, bæði frá Aust­ur­velli og út að Hörpu en líka í fram­haldi af Hverf­is­götu að Kola­port­inu og þeirri starf­semi. Síðan þegar við sjáum húsin klár­ast norðan við Geirs­göt­una erum við allt í einu komin með íbúðir og veit­inga­staði út að höfn­inni eins og við þekkjum frá Nyhavn í Kaup­manna­höfn og Aker­brygge í Ósló. Ég er ótrú­lega stoltur af þessum breyt­ingum á borg­inni og ég held að að fólk sem hefur lýst áhyggjum af þessu eigi að halda aðeins í sér þangað til þetta verður komið í end­an­lega mynd.“

Þú nefndir bygg­ing­arnar á Hafn­ar­torgi, finnst þér þær per­sónu­lega vel heppn­aðar?

„Mér finnst þær hafa legið undir mjög ósann­gjarnri gagn­rýni. Þær hafa auð­vitað mjög ákveð­inn stíl. Mér hefur alltaf þótt það mjög eft­ir­minni­legt þegar Pétur Ármanns­son arki­tekt var spurður út í hvort honum fynd­ist Harpan fal­leg dag­inn sem hún var opnuð. Hann sagði eitt­hvað á þá leið: „Spurðu mig eftir fimm ár“. Fimm árum eftir opnun Hörpu held ég að allir séu sam­mála um að hún sé ótrú­lega vel heppnuð bygg­ing. Þannig að ég held að ég svari því eins og Pétur, spurðu mig eftir fimm ár eftir að starf­semin hefur verið í gangi og þessi hús hafa fengið að sanna sig, ekki bara sem hús með vinnupöllum heldur hús með starf­semi og hús sem smita af lífi og þrótti út í borg­ar­lífið.“

Mynd / Hákon Davíð

Stór hluti borg­ar­línu­verk­efn­is­ins teng­ist upp­bygg­ingu sam­göngu­mið­stöðvar á BSÍ-reitnum. Þar sér Dagur fyrir sér að auk borg­ar­lín­unnar þjón­usti hún alla helstu sam­göngu­þjón­ustu, svo sem stræt­is­vagna utan af landi og rútur með ferða­menn. „Þarna ertu í návígi við alla stærstu vinnu­staði lands­ins; Land­spít­al­ann, háskól­ana báða og þetta er í raun flat­lendi þannig að ef þú kemur með borg­ar­línu, strætó eða rútu og skiptir yfir á hjól, þá ertu í raun bara staddur í Danmörku með það flat­lendi sem Vatns­mýrin og Kvosin er. Það er meira að segja hægt að sjá fyrir sér að við verðum með litlar raf­skutlur sem myndu fara á milli þess­ara vinnu­staða frá þessu sam­göngu­hjarta.“

Ætlar að klára kjörtímabilið

Þrátt fyrir að hafa setið sam­fleytt í borg­ar­stjórn síðan 2002 og ítrekað verðið orð­aður við for­mennsku í Sam­fylk­ing­unni er ekk­ert far­ar­snið á Degi úr borg­inni. Þvert á móti virð­ist hann vera að fjar­lægj­ast lands­málin. Hann seg­ist stað­ráð­inn í að sitja út kjör­tíma­bilið enda af nógu að taka. „Ég er borg­ar­stjóri í Reykja­vík og hef beitt kröftum mínum í borg­inni vegna þess að mér finnst borgin skipta gríð­ar­legu máli fyrir fram­tíð þessa lands. Borg­ar­hag­kerfið ásamt ferða­þjón­ust­unni dró vagn­inn í hag­vexti, auknum lífs­kjörum, fjár­fest­ingu og svo fram­vegis á árunum eftir hrun og borgin mun líka gegna algjöru lyk­il­hlut­verki við að koma jafn­vægi á hús­næð­is­mark­að­inn og byggja upp atvinnu­líf fram­tíðar. Þar er ein­fald­lega hjartað mitt, borg­ar­málin finnst mér lang­mest spenn­andi vett­vang­ur­inn í íslenskri póli­tík og ótrú­lega van­metin varð­andi mik­il­vægi.“

„Ég er borg­ar­stjóri í Reykja­vík og hef beitt kröftum mínum í borg­inni vegna þess að mér finnst borgin skipta gríð­ar­legu máli fyrir fram­tíð þessa lands.“

Verður borg­ar­stjóra­emb­ættið þitt síð­asta trún­að­ar­hlut­verk fyrir Sam­fylk­ing­una?

„Ég held að maður eigi bara að spara stór orð um ein­hverja fjar­læga fram­tíð. Þetta kjör­tíma­bil er að byrja, við erum í nýjum kraft­miklum meiri­hluta sem hefur ákveðið að takast á við mjög stór verk­efni og á meðan svo er held ég að kröftum mínum sé hvergi varið betur en hér. Síðan er líka bara hitt, að þótt maður hafi gefið sig að stjórn­málum í ein­hvern tíma og ákveður að segja það gott á þeim vett­vangi, þá er ekki sjálf­gefið að maður haldi áfram í stjórn­málum á ein­hverjum öðrum vett­vangi. Ég gæti þess vegna snúið mér að lækn­is­fræði eða hverju öðru sem að höndum bæri.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti