Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hefur sína kosti og galla að vinna með maka sínum

Parið Una Margrét Árna­dóttir og Örn Alex­ander Ámunda­son starfa bæði sem mynd­list­ar­menn. Þau opn­uðu nýverið sýn­ingu með víd­eó­verki sem þau unnu saman. Það hefur sína kosti og galla að vinna með maka sínum, að þeirra sögn.

Una Margrét og Örn Alex­ander opn­uðu nýverið sýn­ing­una Kossar í Harbin­ger. Sýningin er partur af sýn­inga­röð­inni „2 become 1“ þar sem sýn­ing­ar­stjór­arnir Steinunn Marta Önnu­dóttir og Halla Kristín Hann­es­dóttir hafa fengið til liðs við sig nokkur pör þar sem báðir aðilar eru starf­andi mynd­list­ar­menn.

Spurð út í hvernig sé að vinna með maka sínum, hverjir séu kostir og gallar þess segir Una Margrét: „Við höfum unnið saman í nokkur ár með­fram ein­stak­lings­vinnu. Þannig að við erum með smá­reynslu þegar kemur að sam­starfi. Helsti kost­ur­inn við að vera par sem vinnur saman er það að maður á auð­velt með að vera heið­ar­legur hvort við annað um hvort hug­myndir séu góðar eða lélegar. Og við getum verið í stöð­ugu sam­tali um verk­efnin sem við vinnum að hverju sinni. Hvort sem það er í stúd­íó­inu eða á meðan við burstum tenn­urnar. En það er kannski líka helsti gall­inn, því þá erum við í vinn­unni allan sól­ar­hring­inn. Verkin okkar þró­ast líka gjarnan út frá ein­hverju sem hefur byrjað sem einka­húmor eða bull okkar á milli. Þá áttum við okkur kannski allt í einu á því að við erum með eitt­hvað áhuga­vert í hönd­unum og höfum þá ómeð­vitað verið að vinna saman. Þannig að við erum í raun­inni alltaf að vinna saman, líka þegar við erum ekki að vinna saman.“

 Sammála um lang­flest

Una og Örn hafa verið lengi saman og urðu par löngu áður en þau lærðu mynd­list. Aðspurð hvort þau séu yfir­leitt með svip­aðan stíl og smekk þegar kemur að mynd­list segir Örn: „Smekkur okkar hefur lík­lega þró­ast svo­lítið í svip­aðar áttir. Við erum sam­mála um lang­flest en þó ekki allt.“

Á sýn­ing­unni Kossar er eitt verk. Um tíu mín­útna langt víd­eó­verk er að ræða. „Verkið ber sama heiti og sýn­ingin. Vídeóinu er varpað á einn vegg rým­is­ins. Aðrir veggir eru klæddir gráum tjöldum svo að við umbreyttum rým­inu tals­vert svo að verkið gæti notið sín sem best,“ segir Örn.

Una bætir við: „Í verk­inu má sjá okkur sitja hvort á sínum end­anum á sófa. Þar sjá­umst við kyssa okkur sjálf á munúð­ar­fullan hátt. Það er mikil nánd á milli okkar í víd­eó­inu þar sem við sitjum í sama sófa, en á sama tíma mikil fjar­lægð þar sem við kyssum ein­ungis okkur sjálf og virðum hvort annað að vettugi að öllu leyti. Við erum saman, en samt alveg í okkar eigin heimi.“

Þess má geta að sýn­ingin stendur til 3. nóv­em­ber. Harbin­ger er á Freyju­götu 1 og þar er opið þriðju­daga til föstu­daga frá 12-17 og laug­ar­daga frá 14-17.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti