Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íslenskar konur bíða enn eftir skaðabótum vegna PIP-brjóstapúða

Rúmlega tvö hund­ruð íslenskar konur unnu hóp­máls­sókn á hendur þýsku fyr­ir­tæki í PIP-brjóstapúða­mál­inu í fyrra. Aðeins hluti skaða­bóta hefur skilað sér. Lögmaður kvenn­anna segir allt að tvö ár í mála­lyktir.

Íslenskar konur bíða enn eftir skaðabótum vegna PIP-brjóstapúða
|
Saga Ýrr Jóns­dóttir, lög­maður kvenn­anna.

Um 200 íslenskar konur sem höfðu betur í skaða­bóta­máli fyrir frönskum dóms­stólum gegn þýska eft­ir­lits­fyr­ir­tæk­inu TÜV Rhein­land í PIP-síli­kon­púða­mál­inu svo­kall­aða bíða enn eftir að fá megnið af þeim bótum sem þeim voru dæmdar í fyrra. Hluti bót­anna var greiddur í fyrra­haust. Lögmaður TÜV Rhein­land áfrýj­aði mál­inu og er útlit fyrir að end­an­leg nið­ur­staða í mál­inu geti dreg­ist í eitt til tvö ár til við­bótar við þau ár sem málið hefur tekið.

„Eins og staðan er í dag, miðað við það sem á undan er gengið, geri ég ekki ráð fyrir end­an­legri nið­ur­stöðu fyrr en eftir um tvö ár. Ef end­an­leg nið­ur­staða kemur fyrr, er það auð­vitað frá­bært en aðal­at­riðið er að hún verði íslenskum konum í hag,“ segir Saga Ýrr Jóns­dóttir, lög­maður kvenn­anna.

Aðeins fengið brot af bótum
Talið er að um 300.000 konur í 65 lönd¬um um allan heim hafi fengið gall­aða brjósta¬púða frá franska fyr­ir­tæk­inu Poly Implant Prost­hése (PIP). Þar á meðal voru um 400 íslenskar konur sem fengu púð­ana á árunum 2000 til 2010. Sextán þús­und konur létu fjar­lægja púð­ana eftir að upp komst að iðn­að­ar­síli­kon var notað við gerð þeirra og hafði þá þegar valdið hluta þeirra heilsutjóni.
Um mitt ár 2015 hófst aðal­með­ferð í máli um 9.000 kvenna og 204 frá Íslandi gegn TÜV Rhein¬land en fyr­ir­tækið veitti PIP vottun um að púð­arnir stæð­ust evr­ópskar kröfur. Í dómi gegn fyr­ir­tæk­inu kom fram að fyr­ir­tækið hafi van­rækt skyldur sínar um eft­ir­lit og árverkni. Þetta er stærsta dóms­mál í franskri rétt­ar­sögu og er því hvergi nærri lokið.
Með­al­bætur sem hver kona átti að fá nam um tveimur millj­ónum króna. Konurnar fengu ein­ungis brot af dæmdum bótum í fyrra eða um 3.000 evrur, jafn­virði 386 þús­und íslenskra króna. Frá inn­borg­un­inni voru dregnar 500 evrur í máls­kostnað og stærsti hluti íslenskra kvenna lét að auki draga 500 evrur í mats­kostnað. Fengu kon­urnar því til sín milli 2.000 og 2.500 evrur eða 250.000 – 313.000 krónur hver.

„Eins og staðan er í dag, miðað við það sem á undan er gengið, geri ég ekki ráð fyrir end­an­legri nið­ur­stöðu fyrr en eftir um tvö ár.“

Biðin orsakast af umfangi máls­ins
Saga segir bið­ina skýr­ast af umfangi máls­ins en vekur athygli á því hversu frá­brugðnir franskir dóm­stólar eru þeim íslensku. „Rétt­ar­kerfið í Frakk­landi er mjög ólíkt því sem maður þekkir hér og maður verður að aðlaga sig að því. En það verður einnig að hafa hug­fast að ferlið í þessu máli er án efa frá­brugðið hefð­bund­inni máls­með­ferð í Frakk­landi vegna umfangs þess. Þetta getur reynt á þol­in­mæð­ina hjá íslenskum konum sem eru aðilar að mál­inu, eðli­lega, og auð­vitað hjá okkur lög­mönn­unum,“ segir hún og bætir við að mál­inu hafi verið frestað mjög oft hjá frönskum dóm­stólum. Lög­fræð­ingar hafi ítrekað farið í dóms­húsið til að vera við­staddir dóms­upp­sögu en fengið þær upp­lýs­ingar að mál­inu hafi verið frestað. Alveg þar til dómur var á end­anum kveð­inn upp.

PIP-brjóstpúðamálið í hnotskurn

2010

Mars: Frönsk stofnun sem hefur eft­ir­lit með lækn­inga­tækjum bannar mark­aðs­setn­ingu, dreif­ingu, útflutn­ing og notkun á síli­kon­brjóstapúðum sem franska fyr­ir­tækið Poly Implant Prost­hése fram­leiðir. Ástæðan eru ýmis frá­vik, svo sem leki úr púð­unum.

Apríl: Tilkynnt að fram­leið­andi brjóstapúð­anna hafi notað iðn­að­ar­síli­kon, annað en vottað hefur verið við fram­leiðslu­ferlið.

2011

Desember: Franska eft­ir­lits­stofn­unin segir grun leika á að PIP-púð­arnir teng­ist auknum líkum á krabba­meini. Það er dregið til baka nokkrum dögum síðar. Lyfja­stofnun á Íslandi greinir frá því að hún fylgist með mál­inu. Frönsk heil­brigð­is­yf­ir­völd gefa út til­mæli um að konur með PIP-brjóstapúða láti fjar­lægja þá í for­varn­ar­skyni.

2012

Febrúar: Vís­inda­nefnd Evr­ópu­ráðs­ins segir PIP-púð­ana inni­halda iðn­að­ar­síli­kon og vís­bend­ingar um að þeir rofni frekar en brjóstapúðar ann­arra fram­leið­enda. Vel­ferð­ar­ráðu­neyti og Embætti land­læknis mæla með því að öllum konum með PIP-brjóstapúða verði boðið að láta fjar­lægja þá, hvort sem þeir væru rofnir eða heilir.

2013

Nóvember: Úrskurðað að TUV Rhein­land hafi van­rækt skyldur sínar. Dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki víða um heim fara í mál við TUV og krefj­ast millj­arða í bætur.

Desember: Jean-Clau­de Mas, stofn­andi og eig­andi PIP-brjósta­búða­fram­leið­and­ans, dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi fyr­ir svik og til greiðslu sektar. Fjórir fram­kvæmda­stjórar PIP eru líka fundnir sekir um svik og hljóta dóma.

2015

Júlí: Aðal­með­ferð hefst í und­ir­rétti í Frakk­landi í máli um 9.000 kvenna gegn TÜV Rhein­land.

 2017

Janúar: Und­ir­réttur dæmir kon­unum bætur.

Sept­em­ber: Konurnar fá inn­borgun bóta upp á 3.000 evrur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti