Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Við forðumst okkur sjálf og deyfum með mörgum leiðum“

Kamilla Ingi­bergs­dóttir jóga­kenn­ari hefur í tæp tvö ár boðið upp á hug­leiðslu- og slök­un­ar­stundir með hreinu kakói frá Gvatemala. Þar býður hún fólki upp á að tengja sig inn á við, minnka áreitið í kringum sig og hávað­ann frá hugs­unum til að hlusta betur á það sem það virki­lega vill og þarf.

„Við forðumst okkur sjálf og deyfum með mörgum leiðum“
|
„Ég hef farið mjög mikið til Gvatemala und­an­farin ár og varið tíma við Atitlan-vatnið en þar hefur mynd­ast sam­fé­lag jóga­iðk­enda og and­lega þenkj­andi fólks alls staðar að.

„Þessar stundir hafa reynst fólki vel til að hvíl­ast, losa um streitu og þreytu og gera eitt­hvað bara fyrir sig. Stundum gleymum við að hlúa að okkur sjálfum í amstri dags­ins og þá sér­stak­lega and­legu hlið­inni,“ segir Kamilla. „Innri vinna er ein­hver sú mesta erf­ið­is­vinna sem til er og í mörgum til­fellum erum við frekar til í forð­ast hana til að þurfa ekki að mæta okkur sjálfum, horfa inn á við og gera eitt­hvað í því sem við sjáum eða finnum. Við forð­umst okkur sjálf og deyfum með svo mörgum leiðum, til dæmis með áfengi, vímu­efnum, kyn­lífi, símunum okkar, sjón­varp­inu, mat, versl­un­ar­ferðum og svo fram­vegis.“

Stundaránægja og blekking

Sjálf hefur hún verið að gera til­raunir á sjálfri sér síð­ustu ár og skoða hvað hún setur ork­una sína í og hvernig hún velur að verja tíma sínum. „Ég átt­aði mig til dæmis á því fyrir rúmum tveimur árum að áfengi gerði ekki neitt fyrir mig heldur dró frekar úr mér þrótt, kjark og gleði og fékk mig til að efast um sjálfa mig. Þá þurfti ég að spyrja mig af hverju ég væri að þessu og þegar ég fann ekki gild svör ákvað ég að hætta að drekka.

„Ég átt­aði mig til dæmis á því fyrir rúmum tveimur árum að áfengi gerði ekki neitt fyrir mig heldur dró frekar úr mér þrótt, kjark og gleði og fékk mig til að efast um sjálfa mig.“

Oft gerum við eitt­hvað bara vegna þess að allir aðrir gera það þrátt fyrir að það gefi okkur ekki neitt. Þá er gott að taka stöð­una. Það gerði ég og hef síðan yfir­fært þetta á nán­ast öll svið lífs míns. Mér finnst mik­il­vægt að skoða reglu­lega hvað það er sem nærir mig og hvað dregur úr mér,“ segir hún og bætir við að það sem við gerum til að deyfa okkur eða fjar­lægj­ast okkur sjálf veiti okkur oft stundará­nægju. „En eins og orðið gefur til kynna varir hún stutt. Þetta er kannski leið til að láta okkur líða betur en svo virkar hún ekki, er bara blekk­ing, og hvað þá? Þurfum við þá kannski meira eða þurfum við að skoða aðrar og var­an­legri leiðir til að líða betur? Fyrir mig hefur það verið hug­leiðsla, holl­ari lífs­venjur og gagn­rýnin skoðun á það sem ég geri, bæði út á við og inn á við.“

Andleg hreinsun, hvíld og uppgötvun

Kamilla segir að kakó­hug­leiðsl­urnar hafi fljót­lega undið upp á sig og núna býður hún upp á fjöl­breytta tíma eins og kakó nidra- og kakó vinyasa-jóga­tíma. „Ég flyt líka inn kakó frá Gvatemala og skipu­legg jóga- og kakó­ferðir þangað. Ég hef farið mjög mikið til Gvatemala und­an­farin ár og varið tíma við Atitlan-vatnið en þar hefur mynd­ast sam­fé­lag jóga­iðk­enda og and­lega þenkj­andi fólks alls staðar að. Ég fór með fyrsta hóp­inn í jan­úar og nú er ég farin að kynna næstu ferðir en síð­ast komust færri að en vildu. Ferðinar sem farnar verða í jan­úar og febr­úar á næsta ári bjóða upp á jóga, hug­leiðslu, and­lega og lík­am­lega hreinsun með rými fyrir hvíld og upp­götvun. Þetta er ferð fyrir ævin­týra­gjarnar mann­eskjur sem vilja líka líta inn á við og vinna í sér. Svo skemmir ekki að þetta er einn fal­leg­asti staður sem ég hef komið á yfir ævina og ég hef ferð­ast mikið. Það er eitt­hvað svo töfr­andi við Gvatemala og þess vegna fer ég þangað oft en þar hef ég líka gert miklar upp­götv­anir um sjálfa mig sem hafa hjálpað mér að gera stærri breyt­ingar í líf­inu í hvert skipti sem ég kem aftur heim.“

Allar upp­lýs­ingar um Kamillu, við­burði og ferð­ina til Gvatemala má finna á kako.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti