Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leyndardómurinn á bak við hönnunina – MIAMI BAR

Leyndardómurinn á bak við hönnunina – MIAMI BAR
|||||||

Á fal­legum góð­viðr­is­degi heim­sóttum við nýjan lífs­stíls­stað í hjarta mið­borg­ar­innar, Miami Bar við Hverf­is­götu 33, sem mun verða opn­aður von bráðar. Einstök sjón blasti við þegar inn kom, alveg nýtt útlit á stað sem á sér engan líkan. Hönnunin, stíll­inn, mun­irnir, allt nýtt fyrir augað og upp­lifunin sömu­leiðis. Okkur lék for­vitni að vita allt um hönn­un­ina, inn­an­stokks­muni og hvað­eina sem fyrir augum bar. Við hittum þá Daníel Frey Atlason og Ivan Svan Corvasce og spjöll­uðum um til­urð stað­ar­ins og hug­mynda­fræð­ina sem liggur að baki.

Þeir félag­arnir, Ivan Svanur, Gunn­steinn Helgi, einn af eig­endum Miami Bar, og Martin Cabejšek, yfir­þjónn á Miami Bar, eru afar ánægðir með útkom­una á staðnum og hlakka til að taka á móti gestum.

Daníel Freyr hönn­uður er annar stofn­enda og eig­andi að hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Döðlur, sem hannar allt milli him­ins og jarðar; frá ljós­myndum, mynd­böndum, aug­lýs­ingum, inn­setn­ingum á lista­verkum, fatn­aði, hús­gögnum, hönnun á hót­elum, hostelum og eru núna að klára að hanna sitt fyrsta verk­smiðju­fram­leidda hús. Nafnið Döðlur kemur frá nöfn­unum Daníel og Hörður. Bak­grunnur Daníels og með­eig­anda hans Harðar kemur úr aug­lýs­inga­geir­anum. Það sem þeir gera að er að búa til hug­myndir, útfæra þær og hanna og koma þeim í fram­leiðslu. Starfs­fólkið hjá Döðlum er þekkt fyrir að vera dug­legt að fram­kvæma hina ótrú­leg­ustu hluti og koma frjóum og stórum hug­myndum á blað og fara alla leið, það er ekk­ert sem stoppar þau. Starfs­menn­irnir hjá Döðlum eru sex tals­ins.

Hönnunin á Miami Bar er nýjasta afurð Daníels og félaga hjá Döðlum og vel hefur tek­ist til. Miami Bar, lífs­stíls­bar, mun verða opn­aður á næst­unni og lofar góðu. Stað­ur­inn er á tveimur hæðum, fyrsta hæð og kjall­ari og ein­kenni stað­ar­ins er stíll­inn en hann er með sér­hönn­uðum og sér­smíð­uðum hús­gögnum. Stað­ur­inn er mjög fram­úr­stefnu­legur í módernískum stíl, lögun og stíll hús­gagn­anna vekur athygli, lit­irnir, formið, eins konar þrí­vídd­ar­hönnun, fangar augað. Einnig er þar að finna marga athygl­is­verða muni og ljósin vekja eft­ir­tekt.

Getur þú, Daníel, sagt okkur frá hönn­un­inni og hvaðan þið fenguð inn­blást­ur­inn?

„Í fyrsta lagi þurftum við að taka mið af hús­inu, en húsið er í svona póst­módernískum stíl og er frekar umdeilt hús. Í kringum húsið eru bygg­ingar eins og Þjóð­leik­húsið, danska sendi­ráðið, Þjóð­menn­ing­ar­húsið og ýmsar aðrar opin­berar bygg­ingar. Eina húsið sem er skylt þessu húsi er bíla­stæða­húsið ská á móti sem mér finnst líka fal­legt.Við þurftum svo­lítið að leggja höfuð í bleyti og það pass­aði ekki að hafa hvað sem er þegar inn er gengið gegnum dyrnar eins og skipu­lag rým­is­ins er. Við hefðum aldrei getað gert þarna svona týpískan bar, við­ar­klæddan með hip­ster-stemn­ingu eins og margir barir eru. Þá kvikn­aði sú hug­mynd að láta eins og það hafi alltaf verið staður þarna frá svona 1980, 80´s- tíma­bilið og fylgja því tíma­bili. Það var sú nálgun sem við tókum í upp­hafi. Kjall­ar­inn hafði sterkan svip frá Memphis Milanó-tíma­bil­inu sem einnig hafði sterk áhrif á Miami Vice-þætt­ina sem gerðir voru í Banda­ríkj­unum á sínum tíma. Eigendur stað­ar­ins höfðu mik­inn áhuga á að horfa til þess að hafa stað­inn í Miami Vice anda og 80´s-tíma­bilið í for­grunni og við unnum út frá því. Við drukkum í okkur Miam Vice-þætt­ina og horfðum á þá til að fá inn­blástur fyrir hönn­un­ina,“ segir Daníel og brosir.

Hugguleg stemn­ing.

Miami Vice- og Memphis Mílanó-stíllinn í forgrunni

„Þegar Miami Vice-þætt­irnir voru gerðir urðu ákveðin straum­hvörf í amer­ískri þátta­gerð varð­andi hönnun og útlit því fram­leið­endur þeirra tóku þá ákvörðun að gera flottasta sjón­varps­þátt sem gerður hafði verið í Banda­ríkj­unum og lögðu mikið undir. Yfir­hönn­uðir þátt­anna fóru til Mílanó til að ná sér í hug­myndir. Þar voru ungir hönn­uðir að stiga sín fyrstu skref eins og Armani. Þess vegna eru til dæmis aðal­leik­arnir ekki í sokkum, það kemur fram hönnun frá Armani á þessu tíma­bili. Tískan þá var að ganga ber­fættur í skónum, mokkasí­urnar voru móð­ins, tví­hnepptir jakkar og upp­brettar ermar, axlapúðar í tísku og pastellit­irnir áber­andi. Þetta bland­ast við Memphis Mílanó-tíma­bilið, en hús­gagna­hönn­uðir þátt­anna tóku inn þennan stíl í þætt­ina með stór­kost­legri útkomu. Miami Vice- þætt­irnir eru inn­blásnir af Memphis Mílanó-stílnum og kemur það sterkt inn í hönn­un­ina á Miami Bar. Eins og áður sagði þá koma pastellit­irnir sterkir inn, formin eru í anda Memphis Mílanó og allur fatn­aður starfs­fólks á staðnum er í anda Miami Vice-þátt­anna og hann­aður af okkur. Starfs­menn stað­ar­ins ganga í tví­hnepptum blazer-jökkum með axlapúðum, með upp­brettar ermar, brot í buxum og svo má lengi telja.

Brjóst­lamp­arnir eru hann­aðir af Studio Job og Venini, sér­stak­lega fyrir Miami Bar. Studio Job er einn virt­asti gler­fram­leið­andi í heim­inum.
Sæbláir hlýra­bolir koma sterkir inn sem og bleikir stutt­erma­bolir, allt í anda Miami Vice. Gaman er að segja frá því að Don Johnson einn af aðal­leik­ur­unum í Miami Vice ætl­aði ekki í fyrstu að taka að sér aðal­hlut­verk vegna þess að honum fannst fötin svo hall­æris­leg, tveimur árum eftir að þætt­irnir fóru í loftið þótt­ist hann hafa fundið upp þennan fata­stíl og mæti ávallt klæddur í Miami Vice-stílnum í við­töl, lét ekki sjá sig í sokkum og bar sig vel í jökk­unum með axlapúð­unum góðu,“ segir Daníel og hlær.

Daníel og félagar hjá Döðlum sáum um alla hönnun og útfærslu á hús­næð­inu, lita­val, lýs­ingu, hús­búnað, fatnað sem og útlit á graf­ískri hönnun lógó stað­ar­ins og vín- og kok­teilseðlum hans í sam­ráði við eig­endur. Hug­mynda­fræðin og nálg­unin kemur frá eig­endum stað­ar­ins. Blaða­manni finnst útkoman væg­ast sagt hin glæsi­leg­asta og telur lík­legt að þessi staður eigi engan sér líkan. Daníel segir að stað­ur­inn eigi sér enga fyr­ir­mynd úti í heimi. Hönnunin er þeirra hug­ar­fóstur þar sem óskir eig­enda eru hafðar í for­grunni, en þeir vildu hafa stað­inn í anda Miami Vice og vilja end­ur­vekja þessa stemn­ingu sem var á 80´s-tíma­bil­inu. „Ætlunin er að koma aftur með kok­teil­ana sem voru á þessum árum og end­ur­vekja upp­lifun­ina sem var á 80´s-tíma­bil­inu í nútímaformi,“ segir Daníel.

Módernískur skúlptúr

Lista­verkið, myndin, með fla­mengófugl­unum og kven­lík­am­anum er einnig nýtt verk hannað fyrir Miami Bar í sam­starfi við Döðlur og nýtur sín mjög vel á staðnum.

Módernískur skúlp­túr kemur sterkur inn við hönnun stað­ar­ins. Barinn vekur strax eft­ir­tekt þegar inn er komið á efri hæð­ina, sjón­hverf­ing sem verður í kubb­unum sem setur sterkan svip á stað­inn. Stað­ur­inn er teppa­lagður með skær­grænu teppi sem mjúkt er að ganga á og sófarnir eru í Memphis Mílanó-stíl, áklæðin mjúk og þægi­leg og öll form fanga augað.

Gestir geta eignast hluti sem þeir hafa áhuga á

Í kjall­ar­anum er borð­tenn­is­stofa sem ber nafnið Ping Pong og er búið að hanna sér­spaða og kúlur sem fólk mun geta keypt sér á heima­síðu stað­ar­ins. Einnig munu gestir geta keypt það sem þeim líst vel á, á heima­síðu stað­ar­ins hvort sem það er hús­gagn eða fatn­aður. Telja eig­endur að stað­ur­inn sé fyrsti sinni teg­undar til að vera með sína eigin hús­gagna- og fata­línu.

Barinn uppi og bar­inn niðri ásamt snyrti­borð­unum eru smíðuð hér­lendis en hús­gögnin í Póllandi. Daníel efast að það séu til margir staðir sem inni­halda jafn­marga hluti sem hann­aðir hafa verið sér­stak­lega fyrir þá eins og Miami Bar.

Ein sú besta vinnuaðstaða á landinu – Barinn á Miami Bar

Ivan Svan Corvasce er einn af eig­endum Miami Bars en Ivan Svanur hefur verið áber­andi í veit­inga- og næt­ur­líf­inu í Reykja­vík síð­ustu árin en hann hefur verið bar­þjónn á mörgum veit­inga­húsum sem bjóða upp á hágæða kok­teila í bland við góðan mat, unn­inn af ástúð úr hágæða hrá­efni. Einnig hefur hann tekið þátt í og unnið til verð­launa í keppnum í fag­inu bæði inn­an­lands sem utan. Hann tók við hinum svoköll­uðu Eagle Award sem er gefið á hverju ári til ungs bar­þjóns í Evrópu sem er tal­inn hafa skarað fram úr hjá Alþjóða­sam­bandi bar­þjóna.

Vinnu­að­staðan á Miami bar er ein sú besta á land­inu að sögn Ivans Svans og hönnuð af honum sjálfum. Ivan Svanur segir að mark­mið hönn­un­ar­innar sé það að bar­þjónn­inn á ekki að þurfa að hreyfa sig mikið og því er allt sem hann notar við hönd­ina. Barinn inni­heldur tvær stöðvar með mögu­leika á þeirri þriðju.

Ping Pong Club.

„Ef tveir til þrír bar­þjónar eiga að geta gert yfir fimm hund­ruð kok­teila á dag þarf skipu­lagið og sam­starfið á milli þeirra að vera eins nálægt því að vera full­komið og mögu­legt er,“ segir Ivan Svanur. En bar­þjónar stað­ar­ins hafa unnið saman í mörg ár og þekkja stíl og hreyf­ingar hverra ann­arra í þaula.

Segðu okkur aðeins frá því sem í boði verður, kok­teil­unum og öðru skemmti­legu?

„Þegar fyrsta hug­myndin að Miami kom var það strax ljóst hver stefnan í drykkja­fram­boði stað­ar­ins yrði, að gera kok­teila sem sam­svara þema stað­ar­ins, drykki sem allir þekkja og voru á öllum helstu kok­teil­börum Miami á níunda ára­tugnum. Drykkirnir urðu að klassík, gleymd­ust svo með tím­anum og urðu seinna taldir hall­æris­legir. Við á Miami ákváðum að end­ur­lífga þessa drykki á okkar eigin hátt úr hrá­efni í hæsta gæða­flokki. Við kynnum því með stolti, klass­íska kok­teil­seð­il­inn okkar,“ segir Ivan Svanur og brosir breitt.

Sköpunargáfan fær að njóta sín í botn

„Bar­þjón­arnir okkar bjóða einnig upp á „signat­ure“-seðil þar sem sköp­un­ar­gáfa þeirra fær að njóta sín í botn. Sá seð­ill breyt­ist þrisvar til fjórum sinnum á ári og breyt­ist þá einnig þema mat­seð­ils­ins. Ekkert er til sparað í fram­setn­ingu á drykkj­unum og eru þeir bragð­miklir og krefj­andi. Skoða má seð­il­inn okkar á www.miamihverfisgata.com.

Hvert er leynd­ar­málið bak við kok­teil­ana ykkar?

„Hráefnið og vinnu­brögðin eru leynd­ar­málið. Það auð­veldar manni lífið rosa­lega mikið að nota hrá­efni í hæsta gæða­flokki. Hvort sem við erum að tala um ferskt hrá­efni eins og ávexti, blóm og jurtir, áfeng hrá­efni eða blöndu af þessu öllu. Allt það hrá­efni sem við notum er sér­valið af yfir­bar­þjón­inum Martin sem vinnur svo úr þeim þau inni­halds­efni sem fara í drykk­ina. Við stoppum aldrei. Alla daga lítum við yfir lag­er­inn, líkjörana, saf­ana og sírópin og hugsum hvernig við getum gert betur,“ segir Ivan Svanur og leggur mikla áherslu á hversu miklu máli hrá­efnið skiptir.

„Vinnu­brögð, skipta öllu máli. Þegar góður bar­þjónn býr til drykk er hann með alla ein­beit­ingu sína á því sem hann er að skapa. Ástríða fyrir sköpun drykkj­ar­ins finnst í áferð, bragði og lykt, þó svo að við tökum ekki alltaf eftir því.“

Ivan Svanur er ein­beittur, vandar til verka og blandar kok­teil­ana af hjart­ans list.

Hvaða kokteill er líklegastur til að verða vinsælastur?

„Ég bind miklar vonir við Sex on the Beach. Enda einn hall­æris­leg­asti drykkur allra tíma og er það því gott mark­mið. Að taka eitt­hvað svo hrika­lega hall­æris­legt og gera það það vel að fólk panti drykk­inn sama hvað nafnið á honum er. Svo er hann líka gott dæmi um það hver stefnan okkar er.“

Venjulegur Sex on the Beach inniheldur:

vodka
ferskju­líkjör
app­el­sínusafa
trönu­berja­safa

Í okkar Sex on the Beach á Miami bar er:

vodka
Martini Bianco sem legið hefur með app­el­sínu­berki og rósa­blöðum
ferskjupúrra
ferskur límónu­safi
ferskur ananas­safi
hús­gert trönu­berja­síróp
fersk ferskja
rósa­vatn

Hver er mark­hóp­ur­inn sem þið eruð að höfða til á Miami Bar?

„Allir eru vel­komnir, mark­mið stað­ar­ins er að gleðja fólk. Ein ástæða þess að stað­ur­inn er svona rosa­lega lit­ríkur er sú að á meðan að fólk er hjá okkur viljum við að það gleymi öllu öðru, lifi algjör­lega í núinu og gleðj­ist með okkur.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti