Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Að fylgja íslam er besta ákvörðun lífs míns“

Eftir mikið flakk um heim­inn og rót­leysi ílengd­ist Birta Árdal Berg­steins­dóttir í Marokkó. Hún heill­að­ist af íslamskri trú og ákvað eftir mikla sjálfs­skoðun að taka upp trúna. Hún gift­ist síðar marokkóskum manni, þau eiga þriggja ára tví­bura­dætur og eiga von á öðrum tví­burum í júlí. Mannlíf hitti Birtu á dög­unum ræddi meðal ann­ars um trúna og for­dómana í garð múslima.

„Að fylgja íslam er besta ákvörðun lífs míns“
|||||
Birta Árdal Berg­steins­dóttir heill­að­ist af íslamskri trú eftir að hafa upp­lifað rót­leysi í lífi sínu. Í ein­lægu við­tali ræðir hún umskiptin og for­dómana í garð múslima.

Birta er 27 ára, fædd í Reykja­vík og upp­alin að mestu í Reykja­hverf­inu í Mos­fellsbæ í nátt­úru­feg­urð­inni við Varmána. Sumrum varði hún í sveit­inni hjá ömmu sinni og afa í Rangár­þingi ytra. Hún byrj­aði að full­nægja ferða­þránni eftir að hún útskrif­að­ist úr Mennta­skól­anum við Sund og sú þrá jókst með hverju árinu sem leið. Árið sem hún ætl­aði að taka sér pásu frá skóla varð að tveimur, síðan þremur og svo fram­vegis. Síðan leiddi lífið hana á aðrar brautir en hún hefði nokkurn tíma getað séð fyrir.

„Ég byrj­aði að ferð­ast um Suð­austur-Asíu, Malasíu og Indónesíu. Það sem stóð upp úr í þessum ferðum voru langar göngur um regn­skóga í leit að öpum og langar lesta­ferðir. Í kjöl­farið skellti ég mér til Mexíkó með vin­konu minni sem hafði verið þar sem skiptinemi þremur árum áður, þar vorum við ein­ungis í kringum spænsku­mæl­andi fólk og ég æfði mig í því að sem ég átti síðan eftir að gera mjög mikið af í seinni tíð, að vera umkringd fólki sem skildi mig ekki og ég skildi ekki. Einu sam­skiptin voru lík­ams­tján­ing og haug­ur­inn allur af brosum. En vegna þessa lærði ég á met­tíma virki­lega mikið í tungu­mál­inu. Eftir Mexíkó byrj­aði ég í FÍH en ent­ist bara í rúma önn þar sem heim­ur­inn tog­aði enn of mikið. Ég tók skyndi­á­kvörðun á gamlárs­kvöld og skaust til Gambíu með frænku minni. Við ferð­uð­umst þaðan yfir til Ginea Bissau í gegnum Senegal. Þar kynnt­ist ég strák frá Sviss sem ég elti svo til Marokkó. Ég varð síðan ást­fangn­ari af Marokkó en nýja kærast­anum og ílengd­ist þar og kláraði þriggja mán­aða vísað algjör­lega á kúp­unni, fór heim og vann í einni bíó­mynd eins og ég gerði gjarnan á milli þess sem ég flakk­aði og var horfin strax aftur út en þá til Berlínar í tón­list­ar­hug­leið­ingum. Flakkaði svo um Þýska­land á putt­anum. Endaði í Sviss hjá góðum fyrr­ver­andi vini mínum sem ég hafði kynnst í Senegal og flaug síðan eftir það frá Ítalíu til Marokkó.

„Vissu­lega hef ég fengið aðra athygli úti á götu eftir að ég byrj­aði að bera slæð­una en ég myndi ekki lýsa því sem for­dómum, fólk er for­vitið og finnst sér­stak­lega skrítið að sjá blá­eygða stelpu bera ein­kenn­is­merki múslima.“

Á þessum síð­ari hluta flakks­ins míns var ég farin að vera virki­lega rót­laus og var eins og ein­hvers­konar ferða­fík­ill. Í hvert skipti sem ég lagði af stað á nýjar slóðir var eins og ég væri að sprauta mig með heróíni en þegar ég var komin á leið­ar­enda féll ég aftur niður á ein­hvern frekar dimman stað. Þegar ég snéri aftur til Marokkó var ég búin að átta mig á þessum vanda og sá það að ég þyrfti nauð­syn­lega að hætta að flýja sjálfa mig og byrja að líta í eigin barm og kryfja vanda­málin.“

Horfðist í augu við eigin for­dóma
Þessi dvöl Birtu í Marokkó var full sjálfs­skoð­unar og heims­skoð­unar í góðum hópi vina, leit­andi fólk alls staðar að úr heim­inum. „Við sátum dag eftir dag og krufum alheims­vanda­málin, ástæð­urnar fyrir því að hlut­irnir væru eins og þeir væru, siða­reglur okkar mis­mun­andi sam­fé­laga, af hverju við erum hér, boð og bönn og hræsni trú­fé­laga og trú­ar­leið­toga. Ég hafði aldrei verið veru­lega trúuð og alla tíð mjög gagn­rýnin á trú­ar­brögð, ég sá aðeins það slæma sem þau leiddu af sér. Stríð og kúgun, fáfræði og aft­ur­halds­semi. En smám saman fór ég að breyta skoð­unum mínum. Ég fór að sjá að öll þessi stríð eru ekki upp­runnin af trú heldur græðgi og kúg­unin, fáfræðin og aft­ur­halds­semin eru vissu­lega þættir af manna­völdum. Af slæmum eig­in­leikum mann­skepn­unnar.

Birta er langt gengin með sína aðra tví­bura.

Á þessum tíma fékk ég ein­hvers­konar upp­ljómun ef svo má kalla. Þarna spil­aði ferð­a­r­eynslan sterkt inn í þar sem röð atburða hafði leitt mig á stað­inn sem ég var á, ég hafði alltaf talað um til­vilj­anir en skyndi­lega trúði ég því engan veg­inn að þetta gætu mögu­lega verið til­vilj­anir heldur fór ég að trúa á ein­hvers­konar örlög. Ég sá allt í einu mjög skýrum augum að það væri eitt­hvert æðra afl, eitt­hvað sem er svo miklu stærra en allt sem við vitum og það gerði mig svo smáa og vanda­málin sam­fara því. Ekki að vanda­málin væru á bak og burt en þarna hóf ég mikið end­ur­mót­un­ar­ferli, mér leið eins og það hefði sprungið atóm­bomba í heil­anum á mér og allt var í kaos, ég þurfti að taka skrefin rólega og raða öllu upp á nýtt. Ég fór að kynna mér og læra meira um upp­runa þess­ara trú­ar­bragða sem ég hafði áður bara séð yfir­borðið á, vegna þess að ég hafði ekki tíma eða löngun til að kafa dýpra. Það sem ég fann voru end­ur­tekn­ingar, enda­lausar end­ur­tekn­ingar. Ég fór að sann­fær­ast um það að öll þessi trú­ar­brögð væru upp­runnin af sama kjarn­anum, sama ljós­inu. Skilaboð á mis­mun­andi tímum sem hafa stað­ist tím­ans tönn og mann­anna verk mis­vel. Ég hafði aldrei hugsað mér á þessum tíma að skil­greina mig sem þetta eða hitt, það kæmi engum við, en ég fór að hall­ast meira og meira í átt að íslam eftir því sem ég lærði meira, las og vissi um þessa veg­ferð.

Á þessum tíma var ég komin heim til Íslands og kom mér vel fyrir á sveitabæ fyrir sunnan og vann þar fyrir mat og hús­næði á meðan ég end­ur­skipu­lagði heila­búið og kaf­aði í fræðin. Ég var með mikla þörf fyrir að ein­angra mig um tíma og grand­skoða allt hug­ar­ferlið. Íslam voru líka þau trú­ar­brögð sem komu mér hvað mest á óvart, mýtum var snúið á hvolf, einni á fætur annarri og ég átt­aði mig á að ég hafði verið mjög for­dóma­full, í garð múslima sér­stak­lega, en ekki vitað neitt um hvað málið sner­ist. Ég sem áleit mig svo umburð­ar­lynda og með opinn hug. Það kom sá punktur að ég gat ekki neitað því að ég væri í raun og veru orðin múslimi hvort sem mér lík­aði skil­grein­ingin betur eða verr. Þetta varð allt svo ljóst þegar ég vissi hinna sönnu þýð­ingu á arab­íska orð­inu „íslam“ sem þýðir bara „frið­sæl upp­gjöf fyrir almætt­inu“ og orðið „mu-slim“ er komið af sömu rót­inni „SLM“ og er ein­föld per­sónu­gerð orðs­ins íslam eða „sá sem gefur sig frið­sam­lega fyrir almætt­inu“. Þetta var allt of ein­falt fyrir rest. Íslam studdi líka fylli­lega sann­fær­ingu mína um að allar trú­ar­leiðir hefðu verið í upp­hafi ein og sömu skila­boðin komin frá sama afl­inu en sann­kvæmt íslam er Múhameð síð­asti stóri spá­mað­ur­inn og nýj­ustu frétt­irnar. Það kom mér líka oft, og kemur mér enn, í opna skjöldu þegar ég fræð­ist meira um Kóraninn, krafta­verk, dýpt tungu­máls­ins og leynd­ar­mál þess­arar bókar.

„Það er næstum því algilt að fólk haldi að ég hafi þurft að taka upp múslima­trú af því að ég er í dag gift manni frá Marokkó. Oft þegar ég skýri fyrir fólki að svo sé nú ekki þá finn ég að fólk er samt skept­ískt.“

Þegar ég ákveð að til­einka mér þessa lífs­leið þá trúði ég því ekki enn að Kóraninn væri óbreyttur frá því að Múhameð fram­flutti skila­boðin, mér þótti það mjög hæpið, en í dag þá trúi ég því og hefur engin náð að sann­færa mig um annað. Það spil­aði líka mikið inn í þegar ég fór að kynn­ast þessum manni betur, Múhameð. Því meira sem ég las og heyrði af sögu hans, eig­in­leikum og skap­gerð fór ég að sann­fær­ast um að þetta hefði að sönnu verið virki­lega magn­aður maður og að lokum að hann væri spá­maður, útval­inn sendi­boði. Ég veit að ef ég hefði ákveðið að sleppa því að ger­ast múslimi, vegna þess að ég vissi hvað biði mín í sam­fé­lagi mínu, þá væri ég virki­lega að blekkja sjálfa mig. Ég tók þessa erf­iðu ákvörðun, ákvað að fylgja hjart­anu og hef aldrei ég efast síðan. Að fylgja íslam er besta ákvörðun lífs míns. Samt er ég enn með opin hug og gæti hver sem er reynt að sann­færa mig. Ég er til í að hlusta. En mér leið­ist alltaf svo orðið „trú­ar­brögð“. Ég lít á allar and­legar veg­ferðir sem leið­ar­vísa í átt til sama ljóss­ins. Ég hef mín rök fyrir því að fylgja íslam en ég mun ekki þröngva henni upp á neinn og ég virði alla þá sem til­einka líf sitt leit að ljós­inu.“

Birta ásamt dætrum sínum, Maryam Maíu og Iman Nóru, í ævin­týra­ver­öld­inni sem versl­unin þeirra Nús/Nús er.

Slæðan vekur for­vitni
Hún segir að við­brögðin frá fjöl­skyldu og vinum hafi að að mestu leyti verið góð. „Flestir voru undr­andi til að byrja með en í hvert sinn sem ég fékk tæki­færi til að setj­ast niður með fólk­inu mínu og útskýra hvað íslam er fyrir mér og hvernig þessi ákvörðun mun koma til með að breyta mér eða lífi mínu þá upp­lifði ég í lang­flestum til­fellum mik­inn stuðn­ing og nægan skiln­ing til þess að þau gætu sam­glaðst mér í ham­ingju minni. Ég get ekki sagt að ég per­sónu­lega hafi orðið fyrir miklum for­dómum en mest tek ég inn á mig ef ljót orð­ræða er í fjöl­miðlum eða þegar ég les skoð­anir fólks sem eru mjög anti-íslam. Vissu­lega hef ég fengið aðra athygli úti á götu eftir að ég byrj­aði að bera slæð­una en ég myndi ekki lýsa því sem for­dómum, fólk er for­vitið og finnst sér­stak­lega skrítið að sjá blá­eygða stelpu bera ein­kenn­is­merki múslima. Það er næstum því algilt að fólk haldi að ég hafi þurft að taka upp múslima­trú af því að ég er í dag gift manni frá Marokkó. Oft þegar ég skýri fyrir fólki að svo sé nú ekki þá finn ég að fólk er samt skept­ískt.“

Birta segir að þekk­ing­ar­leysið um trúna sé marg­þætt og það sem aðal­lega þurfi að beina athygl­inni að sé að við megum ekki dæma íslam út frá hvernig múslimar hagi sér, heldur sé rétt­ara að dæma múslima út frá íslam. „En þá þarf maður vissu­lega fyrst að vita hvað íslam er í raun og veru í grunn­inn. Eftir að Múhameð var uppi hafa mynd­ast ótelj­andi greinar af rót íslams en það sem þeir hafa allir sam­eig­in­legt er Kóraninn og sú trú að Guð sé einn. Málið með Kóraninn er að hann hefur verið túlk­aður á svo ótrú­lega margan máta og enn í dag er hann túlk­aður upp á nýtt í sam­ræmi við nýjan tíð­ar­anda en fólk er oft ekki sam­mála.“

Bænin eins­konar íhugun
Líf Birtu breytt­ist á margan hátt eftir að hún gerð­ist múslimi en allar breyt­ingar voru fyrir henni til hins betra. „Ég var hvort eð er hætt að drekka þegar ég gerð­ist múslimi og íslam færði mér góða ástæðu til þess að halda því við. Ég fór að lifa reglu­bundn­ara lífi og það færði mér svo mikla full­nægju og jöfnuð. Ég var orðin virki­lega þreytt á því að reyna að fylla tómið í brjóst­inu mínu meðal ann­ars með því að vera ást­fangin af ein­hverjum strák og ég lok­aði algjör­lega á það að reyna að finna mér ást­mann fyrst um sinn sem var virki­lega góð til­breyt­ing.

Helsti mun­ur­inn á kristni og íslam er að við trúum því að Jesú hafi verið næst­síð­asti sendi­boð­inn en ekki sá síð­asti, við trúum því líka að hann hafi verið maður en ekki guð og sonur guðs. Það er aðal­lega hin heilaga þrenn­ing í grunn­trú þess­ara trú­ar­hefða sem skilur okkur að. En flest eigum við sam­eig­in­legt í gildum og þess­ari lífs­leið, þess­ari beinu braut sem okkur ber að feta. Jesús er mikið elsk­aður af múslimum rétt eins og Múhameð.“

„Við ölum börnin okkar upp eftir siða­reglum íslams en hvað þau gera eftir að þau fara úr okkar umsjón er ekki í okkar höndum.“

Birta tekur sér tíma nokkrum sinnum yfir dag­inn til að biðja. „Þegar ég próf­aði fyrst að biðja þá fann ég hvað það færði mér mik­inn jöfnuð. Að stoppa í dags­ins amstri, minna sig á upp­runann og end­inn, jarð­tengja sig, minna sig á það að amstrið er ekki allt, ekki það sem skiptir mestu máli. Ég byrj­aði á því að biðja bara þegar það hent­aði mér, einu sinni, tvisvar á dag, kannski á morgn­ana og kvöldin. Einn dag­inn ákvað ég að bara prófa að biðja allar fimm bæn­irnar og á réttum tíma. Ég hef ekki enn hætt því frá þess­ari fyrstu til­raun.

Líf Birtu breytt­ist á margan hátt eftir að hún gerð­ist múslimi en allar breyt­ingar voru fyrir henni til hins betra.

Þetta hjálp­aði mér svo mikið og síðan er þetta enn eitt skrefið í íslam til þess að gefa sig allan og það að gefa mig fyrir almætt­inu færði mér mesta frið sem ég hef nokkru sinni haft eða getað ímyndað mér. Þetta kallar vissu­lega á aga en það er partur af gjöf­unum sem fylgja, vegna þess að agað sjálf er sátt­ara sjálf. Þessar fimm rútínu­bænir eru ein af fimm grunn­stoðum íslams og bænin sjálf er kannski ekki eins og flestir halda. Þetta er ekki „góði guð, fyr­ir­gefðu mér þetta, takk fyrir þetta, hjálp­aðu mér með þetta“. Það er vissu­lega líka partur af bænum múslima en salah, sem bók­staf­lega þýðir teng­ing, sem við fram­kvæmum á vissum tímum yfir dag­inn með höf­uðið í átt til Mekka er meira eins og eins­konar hug­leiðsla, jarð­teng­ing, áminn­ing þar sem lík­ami og hugur koma saman og fram­kvæma rútínu sem við köllum til­beiðslu á allah, guð, almætt­inu. Þessari rútínu hefur oft verið líkt við grunn­rútínu í jóga. Ég trúi því algjör­lega að það sé teng­ing þarna á milli. Ekki út af því að Múhameð fór til Indlands og lærði af ein­hverjum gúrú, heldur vegna þess að þetta er allt komið af sama kjarn­anum, sama upp­runanum, sama ljós­inu. Sagt er að eng­inn staður sé nær guði en þegar þú ert í sujud, eða með höf­uðið í jörð­inni. Í þess­ari höf­uð­stöðu ertu einnig að lækka hug­vitið fyrir brjóst­vit­inu sem allir hefðu sann­ar­lega gott af því að gera fimm sinnum á dag,“ segir hún og brosir.

Höfðu þekkst lengi áður en þau tóku saman
Birta kynnt­ist eig­in­manni sínum, Othman, í byrjun árs 2013 í Essaouira í Marokkó. Þau eiga þriggja ára tví­bura­dætur og í júlí er von á öðrum tví­burum í heim­inn. „Othman var að reka hostel sem ég kom á fyrst sem gestur en ílengd­ist síðan á og vann þar fyrir mat og hús­næði í tæpa þrjá mán­uði. Á þessum stað mynd­að­ist sterkur vina­kjarni Marokk­ó­búa og krakka alls staðar frá sem að ein­hverra hluta vegna vildu ekk­ert fara heim. Othman var einn í þessum hópi og kær vinur minn í tvö ár áður en að við fórum að ræða þá hug­mynd að sam­eina sálir okkar. Við giftum okkur í byrjun árs 2015 og stelp­urnar fædd­ust í nóv­em­ber sama ár. Við ræddum lengi vel hvort við værum hvort fyrir annað og tókum ákvörð­un­ina um að vera saman ekki létt­væga. Fyrir okkur var gift­ingin eitt­hvað sem kom aðeins okkur við, lof­orð milli tveggja ein­stak­linga frammi fyrir guði. Þó svo að við höfum vissu­lega þurft að ganga í gegnum heilan haug af papp­írs­vinnu og „búrókrasíu“ í Marokkó til þess að fá lof­orðið gilt á papp­írum. Við höfum ekki enn þá haldið veislu,“ segir Birta.

„Ég vissi að ég gekk með tví­bura áður en ég fór í sónar því til stað­fest­ingar. Það var bara ein­hver til­finn­ing og magnað hvað maður er fær um þegar lík­ami og sál eru í sátt og teng­inu. Ég vissi það líka núna að ég gekk ekki með eitt barn, ég fór til læknis í Marokkó og sagði við hann að ég væri til hans komin svo hann gæti sagt mér hvort þetta væru tvö eða þrjú börn. Hann hló við og leiddi mig beint inn í sónar og sagði mér að þetta væru tvö. Ég hló og hló. Fyrri með­gangan gekk með ein­dæmum vel og ég fastaði meira að segja í rama­dan komin fimm mán­uði á leið í 35-48°C hita í hjá fjöl­skyldu Othman í Beni Mellal. Það var mögnuð lífs­reynsla.“

Ala börnin upp í íslam
Birta eign­að­ist dæt­urnar á Íslandi, fjöl­skyldan er búsett hér­lendis en ferð­ast mikið til Marokkó. „Ég tala íslensku við dæt­urnar og Othman marokkóska arab­ísku. Það gengur bara mjög vel og ótrú­legt hversu fljótar þær eru að átta sig á þessu og skipta á milli. Síðan tölum við Othman mikið saman á ensku þannig að þær heyra hana mikið og ef við myndum flytja til Marokkó end­an­lega þá yrði ekki hjá því kom­ist að læra frönsku líka og jafn­vel ber­ber. Ég hef engar áhyggjur af þeim, þessi tungu­mála­súpa mun hagn­ast þeim í fram­tíð­inni.

Við ölum börnin okkar upp eftir siða­reglum íslams en hvað þau gera eftir að þau fara úr okkar umsjón er ekki í okkar höndum. Við munum sleppa tök­unum á þeim þegar þau verða fær um að taka sínar eigin ákvarð­anir. Það er hins vegar á okkar herðum að kenna þeim gagn­rýna hugsun og það sem við getum áður en þau verða „full­orðin“ en ekki að byrja að predika á versta tíma þegar þau vilja fara eigin leiðir á ung­lings­ár­unum.“

„Við ölum börnin okkar upp eftir siða­reglum íslams en hvað þau gera eftir að þau fara úr okkar umsjón er ekki í okkar höndum.“

Selja vörur „beint frá bónda“
Birta og Othman reka versl­un­ina Nús/Nús á Funa­höfða 17a ásamt for­eldrum Birtu. Þar fæst marg­vís­legur marokkóskur varn­ingur „beint frá bónda“. „Við áttum lítið af ver­ald­legum eignum þegar stelp­urnar okkar komu í heim­inn en treystum því að allt myndi ganga upp. Okkur lang­aði að flytja inn marokkóska vöru til Íslands, bæði vegna gæð­anna í hand­verk­inu í Marokkó og vegna þess að það var ekk­ert þessu líkt á Íslandi. Þegar stelp­urnar voru sex mán­aða höfðum við sann­fært mömmu og pabba um að vera með okkur í þess­ari fjár­fest­ingu og við lögðum af stað í ferða­lag, litla fjöl­skyldan, með stelp­urnar á bak­inu. Við fórum á milli borga í Marokkó og þræddum göt­urnar í med­ín­unum eða gömlu bæj­unum þar sem engir bílar kom­ast að, alltaf með skvís­urnar á bak­inu eða framan á okkur. Síðan bara stopp­uðum við reglu­lega til þess að gefa brjóst og hvíla okkur. Þetta var ágætis raun og tók meira á en við áttum von á en hófst að lokum. Við leit­uð­umst eftir því að kom­ast að kjarn­anum í fram­leiðsl­unni, fundum hand­verks­fólkið og keyptum beint frá því í flestum til­vikum. Við byrj­uðum fyrst um sinn á því að selja í Kola­port­inu, með stelp­urnar ann­að­hvort á bak­inu eða í bast­körfum. Við­brögðin voru framar okkar björt­ustu vonum. En eftir þetta fyrsta sumar 2016 þá fórum við að vinna að því að gera litla búð í fast­eign sem mamma og pabbi eiga í iðn­að­ar­hverfi uppi á Höfða. Hönn­uð­ur­inn, mamma mín, Sigríður Þóra Árdal, sá um upp­setn­ingu og sölu­að­ferðir en við ein­beittum okkur að marokkóska hlut­anum þó svo að við hjálp­umst öll að. Pabbi, Berg­steinn Björg­úlfs­son, er yfir fjár­mál­unum. Núna er versl­unin opin alla virka daga frá 12-17 og 12-16 á laug­ar­dögum. Innan um bíla­parta­sölur og kerru­leigur er þessi hellir Ali Baba.“

Þau selja margs­konar hand­gerðar heim­il­is­vörur frá Marokkó og ein­staka gripi frá Malí og Senegal. Má þar nefna leir­tau, gólf­teppi, dúska­rúm­teppi og púða­ver, han­bel-ofin ull­arpúða­ver, sófa­borð, ýmsar vörur úr basti, bað­kör og vaska, leður- og ull­arp­ullur á gólfið, við­ar­bretti, -skálar og -áhöld og gamlar útskornar hurðir og kistla. „Síðan erum við einnig með nýja línu af hreinum olíum og frá Marokkó og Malí; 100% argan-olíu, kakt­us­fræolíu, shea butter og ghassoul-leir-maska svo að eitt­hvað sé nefnt. Allt 100% hreint hrá­efni og líf­rænt. Mamma hann­aði umbúð­irnar og línan gengur undir nafn­inu Arctic Moroccan. Við erum einnig að selja þessa línu auk ann­arra vara frá okkur í Systra­sam­lag­inu, Mamma veit best og Frú Laugu.

„Ég hafði aldrei verið mjög trúuð og alla tíð mjög gagn­rýnin á trú­ar­brögð, ég sá aðeins það slæma sem þau leiddu af sér. Stríð og kúgun, fáfræði og aft­ur­halds­semi.“

Nús/Nús þýðir hálfur/hálfur og merkir fyrir okkur Marokkó/Ísland og tví­burarnir okkar. Síðan var þetta eina orðið sem mamma kunni í arab­ísku þegar við vorum að leita að nafni. Þú pantar nús­nús á kaffi­húsi og færð kaffi með mjólk. Okkur fannst þetta ágætis lend­ing eftir miklar pæl­ingar.“

Fókusar á aðra þætti föst­unnar
Fram undan er föstu­mán­uð­ur­inn rama­dan sem byrjar um miðjan maí. „Við ætlum að fara á hús­bílnum okkar, sem við búum reyndar að mestu í, á flakk um landið og reyna að nýta töfra þessa mán­aðar til hins ýtrasta. Ég stefni ekki að því að fasta þetta árið þar sem ég er komin 32 vikur á leið. Ég mun fók­usa á aðra þætti föst­unnar en að neita mér um mat og drykk en fastan í þessum mán­uði snýst einnig um að leggja vinnu í að fín­pússa sjálfið – sjá hvað betur má fara, auka íhugun, bænir og sjálfs­skoðun.
Eftir rama­dan verður stutt í að þessi kríli láta sjá sig ins­haallah, eða ef guð lofar. Við erum ekki vön að plana fram­tíð­ina okkar mikið og þetta finnst mér feik­inóg planað. Síðan er bara að sjá hvað verður úr áætl­unum okkar. Það er vissu­lega ekki í okkar höndum,“ segir Birta að lokum.

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, National make up art­ist fyrir Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti