Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stöðugt fleiri ofbeldismál koma til kasta lögreglu

Stöðugt fleiri ofbeldismál koma til kasta lögreglu
|

Lög­reglan skil­greinir ofbeld­is­verk gegn konum mun betur í dag en áður. Rannveig Þór­is­dóttir hjá upp­lýs­inga­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir fleiri þolendur ofbeldis þora að stíga fram nú en áður.

Sextán ein­stak­lingar fengu neyð­ar­hnapp hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­asta ári vegna hættu á ofbeldi gegn þeim. Þetta er næstum 80% aukn­ing frá árinu 2015 þegar ein­stak­lingar í níu málum fengu neyð­ar­hnappa. Á sama tíma hefur lög­reglan þurft að hafa afskipti af miklu fleiri málum sem tengj­ast heim­il­is­of­beldi en áður. Þau voru um 20 að með­al­tali á mán­uði árið 2014 en eru nú um 60 á mán­uði.

Rannveig Þór­is­dóttir hjá upp­lýs­inga­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir ekki víst að ofbeld­is­verkum hafi endi­lega fjölgað. Ýmsir þættir skýri að fleiri ofbeld­is­mál eru skráð í bókum lög­reglu nú en áður og fleiri fái neyð­ar­hnappa.

„Í langan tíma var litið á heim­il­is­of­beldi sem fjöl­skyldu­vanda­mál sem lög­reglan átti ekki að skipta sér af. En það er ekk­ert sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri,“ segir Rannveig og bendir á að breytt verk­lag lög­reglu hafi skilað þessum árangri.
Rannveig.

Stærstu breyt­ing­arnar voru gerðar árið 2015 þegar Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir tók við sem lög­reglu­stjóri hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Síðan þá hefur lög­reglan horfið frá því að vera valda­stofnun yfir í að verða þjón­ustu­stofnun fyrir almenn­ing. Þessu fylgdu ýmsar áherslu­breyt­ingar, m.a. sú að skil­greina heim­il­is­of­beldi sem við­fangs­efni lög­reglu og skrá brotin sem sem koma upp.

„Það var búið að reyna ýmis­legt en gengið illa. Eftir að Sigríður kom inn þá förum við í fullum her­klæðum á vett­vang og rann­sökum málin sem koma upp,“ segir Rannveig og tekur fram að breytt verk­lag feli í sér að nálg­ast ofbeld­is­mál með öðrum hætti en áður. Nú er tekið fastar á þeim, þeim fylgt eftir, málin skráð betur og þolendum tryggð betri máls­með­ferð. „Við höfum lyft grettistaki um allt land því þetta nýja verk­lag lög­regl­unnar hefur leitt til þess að nálg­un­ar­bann og neyð­ar­hnappar hafa verið not­aðir í meiri mæli en áður.“

Misbrestur í skráningu

Rannveig segir mis­brest hafa verið á skrán­ingu mál­anna áður og minnir á að mál eins og heim­il­is­of­beldi hafi áður ekki verið hugsað sem lög­reglu­mál. „Ég veit ekki hversu sam­an­burð­ar­hæfar töl­urnar eru því við vorum ekki að skrá málin með mark­vissum hætti. Segja má að við höfum van­skráð þetta áður og því sé málum ekki endi­lega að fjölga,“ segir Rannveig og bætir við að eftir því sem umfjöllun um ofbeld­is­verk eykst og fleiri stígi fram og greini frá ofbeld­is­verkum því frekar leiti fólk til lög­reglu.

Eins og áður sagði voru 20 mál tengd heim­il­is­of­beldi skráð í bækur Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2014. Nú fjórum árum síðar eru málin þrefalt fleiri eða 60 að með­al­tali á mán­uði.

Spurð að því hvað þurfi til að lög­regla láti ein­stak­ling fá neyð­ar­hnapp segir Rannveig að það sé metið í hverju til­viki fyrir sig. Oft sé um að ræða aðstæður þar sem ótt­ast er að ein­stak­lingur geti verið í hættu.

„Frá því við breyttum verk­lag­inu sem snerta ofbeldi á heim­ilum þá hefur verið stöðug aukn­ing ofbeld­is­mála hjá okkur,“ segir Rannveig.

Fjöldi mála þar sem þurft hefur að láta þolanda fá neyðarhnapp

2015: 9 mál
2016: 11 mál
2017: 16 mál

Dæmi um það þegar einstaklingur fær neyðarhnapp

Hildur Þor­steins­dóttir lýsti í ítar­legu við­tali við DV í vor hræði­legu ofbeldi sem fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar hafði beitt hana bæði á meðan sam­búð stóð og í eft­ir­mála skiln­aðar. Eftir að hún sleit sam­band­inu sótti ofbeld­is­mað­ur­inn svo að henni að Hildur fékk neyð­ar­hnapp hjá lög­reglu og varð hún að beita honum þegar henni fannst sér ógnað. Neyð­ar­hnapp­inn gekk hún með í sex mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti