Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Skrítið að vera tilnefndur til stærstu sjónvarpsverðlauna í heimi“

Vilius Petrikas, hjá íslenska fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Hero Productions, hefur verið til­nefndur til Emmy-verð­launa fyrir tökur á banda­ríska ferða­þætt­inum Ocean Treks.

„Skrítið að vera tilnefndur til stærstu sjónvarpsverðlauna í heimi“
||
Í þátt­unum Ocean Treks er þátta­stjórn­and­anum Jeff Corwin fylgt eftir á ferða­lagi hans um heims­ins höf þar sem hann kynnir við­komu­staði sína fyrir áhorf­endum.

„Þótt ég sé nú mik­ill vinnu­þjarkur og hugsa yfir­leitt stórt þá skal ég við­ur­kenna að ég sá þetta bara alls ekki fyrir, þetta kom rosa­lega á óvart,“ segir Vilius Petrikas, hjá íslenska fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Hero Productions, en hann hefur verið til­nefndur til Emmy-verð­launa (Emmy Daytime Awards) fyrir tökur (outstanding cinematography) á banda­ríska ferða­þætt­inum Ocean Treks.

Til­nefn­ing­unni deilir Vilius með þremur úr erlendu tökuliði sem kom hingað til lands í fyrra­sumar til að taka þátt­inn upp en þetta mun vera í fyrsta sinn sem íslenskur töku­maður kemur til álita í þessum flokki.

Vilius, sem hefur starfað við leik­stjórn, tökur, eft­ir­vinnslu og fleira á Íslandi frá því hann útskrif­að­ist úr kvik­mynda­skóla árið 2010, kveðst jafn­framt hafa orðið hrærður þegar hann fékk frétt­irnar. „Það er auð­vitað skrítið að vera til­nefndur til stærstu sjón­varps­verð­launa í heimi fyrir eitt­hvað sem maður fæst við dags­dag­lega. Að vinnan mín sé metin af svona virtri stofnun eins og The National Academy of Tel­evision Arts and Sciences í Banda­ríkj­unum, það er alveg magnað, svaka­legur heiður,“ segir hann glaður. „Ég hef áður fengið verð­laun á minni kvik­mynda­há­tíðum, en ekk­ert í lík­ingu við þetta!“

„Ég hef áður fengið verð­laun á minni kvik­mynda­há­tíðum, en ekk­ert í lík­ingu við þetta!“
Vilius Petrikas, hjá íslenska fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Hero Productions, hefur haft í nógu að snú­ast und­an­farið. Nýverið leik­stýrði hann til dæmis mynd­bandi fyrir sviss­neska popptvíeykið Sinplus sem hefur vakið athygli, auk þess að taka það upp og ann­ast efitr­vinnslu.

Þætt­irnir Ocean Treks eru fram­leiddir af banda­rísku sjón­varps­stöð­inni ABC og njóta vin­sælda vest­an­hafs en í þeim er hinum þekkta þátta­stjórn­anda Jeff Corwin fylgt eftir á ferða­lagi hans með úrvals skemmti­ferða­skipum um heims­ins höf þar sem hann kynnir við­komu­staði sína fyrir áhorf­endum.

Tveir þættir voru teknir upp á Íslandi, annar í Reykja­vík og hinn í grennd við Akureyri og hafði Vilius, fyrir hönd Hero Productions, alfarið umsjón með svoköll­uðum dróna­tökum eða loft­myndum við gerð þátt­anna. Þátt­ur­inn sem var tek­inn upp í Reykja­vík er sá sem Vilius og hinir þrír eru til­nefndir fyrir.

Spurður hvort til­nefn­ingin komi ekki til með að opna ein­hverjar dyr í brans­anum, brosir Vilius og segir að það eigi bara eftir að koma í ljós.
„Ég er nú bara aðal­lega að reyna að hugsa ekki of mikið um þetta og ein­beita mér frekar að vinn­unni. En auð­vitað er þetta manni viss hvatn­ing, það er alveg á hreinu.“

En ætlar hann að vera við­staddur sjálfa verð­launa­há­tíð­ina sem fer fram í New York þann 29. apríl.

„Ég veit það ekki enn þá, það er svo mikið að gera hjá Hero Productions um þessar mundir, nokkur stór verk­efni sem eru fram undan. En það væri alveg ynd­is­legt að geta það,“ við­ur­kennir hann og brosir.

Aðalmynd: Mynd tók Alvin Zogu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti