Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Í tvö og hálft ár upplifði ég vanlíðan og óvissu“

„Í tvö og hálft ár upplifði ég vanlíðan og óvissu“

„Ég byrj­aði að finna fyrir þrá­hyggju- og árátturöskun þegar ég byrja í lög­fræði árið 2012. Ég fór að hafa skrítnar áhyggjur. Áhyggjur af því að valda öðrum óvart skaða, að ég myndi til dæmis valda slysi. Það sem ger­ist með þrá­hyggju- og árátturöskun er að rök­hugs­unin, röddin sem róar mann og segir: „Engar áhyggjur þú ert ekki að fara valda neinum skaða,“ virkar ekki nógu vel,“ segir Iðunn Garð­ars­dóttir, aðstoð­ar­kona heil­brigð­is­ráð­herra.

Iðunn greind­ist með þrá­hyggju- og árátturöskun, einnig þekkt sem OCD, vorið 2014. Hún er ein af þeim sem sem taka þátt í her­ferð­inni #HUGUÐ á vegum geð­fræðslu­fé­lags­ins Hugrún, og opnar sig um lífið með OCD á vef­síðu her­ferð­ar­innar.

Þarf að róa sig endurtekið

Iðunn segir að í sínu til­felli hafi þrá­hugs­anir haft áhrif á dag­lega lífið, en þrá­hyggja og áratta er meðal ann­ars kvíða­röskun þar sem fólk fær áleitnar hugs­anir, hvatir eða ímyndir sem valda kvíða.

„Það kemur upp ein­hver hugsun, stundum mjög galin hugsun, sem ég fest­ist í. Hún veldur kvíða sem maður bregst við með áráttu­hegðun. Til dæmis sú hugsun að ég gæti valdið bílslysi, þá þarf ég í ein­hvern tíma að róa mig end­ur­tekið og sann­færa mig með mót­hugs­unum og að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur. Ég muni ekki valda bílslysi því ég fer var­lega í umferð­inni, ég hef verið með bíl­próf í mörg ár og svo fram­vegis. Þetta segi ég mér, með því að hugsa ákveðnar hugs­anir end­ur­tekið, þar til ég næ að fram­kalla ákveðna til­finn­ingu sem segir mér að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur. Til­finn­ingin er eins­konar ofur­léttir, sem ég veit núna að kall­ast just right feeling og er ein­kenn­andi fyrir OCD,“ segir Iðunn.

Grunaði ekki að um OCD væri að ræða

Margir tengja OCD við þrá­hyggju­hegðun þar sem við­kom­andi þarf að end­ur­taka vissar athafnir til að draga úr kvíða eða afstýra mögu­legri hættu, til dæmis með því að ganga oft yfir þrösk­uld áður en gengið er inní hús. Iðunn segir að hún finni fyrir því að ein­hverjar rang­hug­myndir séu uppi um sjúk­dóm­inn.

„Mig grun­aði aldrei að um OCD væri að ræða. Ég þekkti aðeins til staðalí­mynd­ar­innar af OCD og þau ein­kenni pössuðu ekki mínum. Ég þurfti aldrei að gera eitt­hvað ákveðið oft, eins og að þvo hendur, slökkva ljósin tíu sinnum eða hafa allt í röð og reglu. Það eru miklar fyr­ir­fram­gefnar skoð­anir um OCD og margir sem halda þetta snú­ist um að sím­inn megi ekki vera skakkur á borð­inu eða að maður þurfi að vera mjög skipu­lagður,“ segir Iðunn og heldur áfram:

„Stærsta og erf­ið­asta skrefið var að við­ur­kenna fyrir sjálfri mér að ég gæti ekki tek­ist á við þetta ein. Ég var föst á því að vinna úr þessu sjálf. Í tvö og hálft ár upp­lifði ég van­líðan og óvissu um hvað væri að ger­ast.“

Vildi ekki ræða við neinn

Hún gerði sér grein fyrir því hvað amaði að þegar hún var að lesa sér til um geð­sjúk­dóma á net­inu.

„Ég var orðin áhyggju­full en á sama tíma vildi ég ekki ræða við neinn um ástandið. Það var blanda af skömm og hræðslu við við­brögð ann­arra. Ég var smeyk við afleið­ing­arnar og þrátt fyrir að vera þokka­lega vel upp­lýst um geð­heil­brigði var til­hugs­unin, um að segja frá, ótrú­lega erfið. Það var ekki fyrr en einn dag­inn sem ég var að lesa mér til um geð­sjúk­dóma á net­inu og kynnti mér þá OCD. Ég trúði ekki mínum eigin augum því þarna var nákvæm lýs­ing á mér. Ég man ég hágrét við lest­ur­inn og hafði aldrei verið jafn létt á ævinni. Þarna var mín grein­ing,“ segir hún, en í kjöl­farið leit­aði hún sér sál­fræði­hjálpar.

Iðunn Garð­ars­dóttir – #Huguð – 5/7 from Studio Holt on Vimeo.

„Ég var ótrú­lega heppin með sál­fræð­ing. Ég fór í gegnum hug­ræna atferl­is­með­ferð sem ég nýti mér í dag til þess að takast á við ein­kennin og ég hitti enn þá sál­fræð­ing­inn minn reglu­lega, sem hjálpar mjög mikið.“

Það var svo fyrir ári síðan að Iðunn ákvað að byrja á lyfjum vegna nýrra ein­kenna sjúk­dóms­ins.

„Áður en ég byrj­aði að taka lyfin hafði ég í svo­lít­inn tíma fundið fyrir ein­kennum sem voru ekki bara þrá­hyggju­hugs­anir. Ég var farin að þurfa að bregð­ast við kvíð­anum með því að þurfa að gera eitt­hvað ákveðið. Ég átti til dæmis orðið erfitt með lær­dóm því ég varð að lesa sömu setn­ing­arnar aftur og aftur. Það tók mig margar klukku­stundir að kom­ast í gegnum nokkrar síður. Lyfin slógu á ein­kennin og hafa hjálpað mér gríð­ar­lega mikið.“

Viðtalið í heild sinni má lesa á vef­síðu her­ferð­ar­innar #HUGUÐ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum