Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Svefnleysi og koffíndrykkja hafa slæm áhrif á sambandið

Svefnleysi og koffíndrykkja hafa slæm áhrif á sambandið
|||

Það getur valdið miklu álagi á fjöl­skyldu þegar börn glíma við svefnörð­ug­leika. Þetta veit Kristín Björg Krist­jáns­dóttir vel, en hún á þrjú börn, Dag Frey, 7 ára, Emilíu Mist, 5 ára og Krist­ó­fer Pétur, 7 mán­aða, sem öll hafa átt erfitt með svefn.

„Elsti strák­ur­inn minn var mikið maga­kveisu- og eyrna­bólgu­barn nærri því frá fæð­ingu og upp að sirka eins árs aldri. Þá tóku við night ter­r­ors, sem lýsti sér þannig að alltaf stuttu áður en hann átti að fara í djúpan svefn eða var mjög þreyttur fyrir svefn, öskr­aði hann úr sér lungun og það eina sem við gátum gert var að sussa og vera til staðar þar til þetta gekk yfir. Það var alltaf jafn­mikið sjokk að heyra þessi öskur og fengum við for­eldr­arnir lít­inn svefn,“ segir Kristín.

Vel valdar hreyfingar virkuðu

Kristín ásamt unnusta sínum, Tómasi Martin.

Dagur Freyr fékk þessar martraðir sem hann vakn­aði ekki af fram að þriggja ára aldri. Þegar hann var tæp­lega tveggja ára eign­að­ist hann systur, Emilíu Mist, sem átti einnig erfitt með svefn, þó hún glímdi ekki við night ter­r­ors.

„Það eina sem virk­aði þessa sirku fjóru tíma sem þau grétu og grétu á meðan maga­kveisukasti var á kvöldin voru vel valdar hreyf­ingar sem virki­lega létu mann líða eins og það væri verið að slíta af manni útlim­ina,“ segir Kristín og hlær.

Gengur brösulega að skipta nóttunum á milli

Kristín á eldri börnin tvö með fyrr­ver­andi manni sínum, en þau skildu árið 2015. Hún segir mikið álag hafa verið sett á sam­bandið vegna svefnörð­ug­leika barn­anna. Krist­ó­fer litla á hún með unnusta sínum í dag, Tómasi Martin, en Krist­ó­fer byrj­aði að sofa illa þegar hann var nokk­urra mán­aða gam­all.

„Ég þakka inni­lega fyrir að hann tók ekki upp á því fyrr að sofa illa því mað­ur­inn minn var virki­lega stress­aður að eign­ast sitt fyrsta barn. Hann var hræddur um að gera eitt­hvað vit­laust og kenndi sjálfum sér um ef hann náði ekki að róa hann. Svo kemur tann­taka á sama tíma og líka vaxta­kippir. Við reynum að skipta nótt­unum á milli okkar en það gengur brösu­lega,“ segir Kristín.

Sjá stundum ekki framtíð í sambandinu

Hún segir þetta ástand hafa haft slæm áhrif á sam­band þeirra.

„Það er svefn­leysið og koff­ín­drykkjan á móti sem hefur slæm áhrif á sam­bandið okkar. Það hafa komið tímar þar sem við sjáum ekki fram­tíð í sam­band­inu, að við myndum ekki gera neitt nema ríf­ast og vera ósam­mála um hlut­ina,“ segir Kristín en bætir við að hve þakk­lát hún er að eiga góðan stuðn­ings­að­ila í sínum manni.

„Við erum bæði í 100% vinnu til að ná endum saman og það bætir ekki úr skák. Við vinnum þó á sama stað og erum í sama teymi. Ég er svo þakk­lát fyrir það því ef eitt­hvað kemur uppá í vinn­unni höfum við hvort annað til að leita til og gerum gott úr öllu saman.“

Þunglynd og þorði ekki að sækja sér hjálp

Kristín seg­ist ekki hafa áttað sig á því að leita sér nægi­legrar hjálpar í heil­brigð­is­kerf­inu.

„Ég fékk enga lækn­is­hjálp varð­andi svefn­vanda­málin og kveis­urnar. Eldri tvö börnin fóru í rör og nef­kirtla­tökur um tveggja ára ald­ur­inn og fengu líka bak­flæð­is­lyf þegar þau voru yngri. Þau lyf hjálp­uðu aðeins, en ekki það mikið. Ég var orðin svo þung­lynd að ég þorði ekki að sækja mér neina hjálp og tækl­aði þetta bara, sem er alls ekki það sem ég hefði átt að gera,“ segir Kristín.

Samvinna mikilvæg á erfiðum tímum

En hvaða ráð hefur hún til for­eldra í sömu stöðu?

Hér eru Emilía Mist, Krist­ó­fer Pétur og Dagur Freyr um síð­ustu jól.

„Telja upp á 10, 20, 30, alveg sama hve margar tölur þarf þá er það svo góð byrjun til að ná að anda aðeins og hugsa rök­rétt. Þetta gengur yfir. Ekki festa sig á þeirri hugsun um hvenær þetta „ætti“ að ganga yfir. Svo lengi sem maður hefur trú á því að þetta gangi ein­hvern tím­ann yfir er maður kom­inn í betra hug­ar­far. Með pör skiptir gríð­ar­lega miklu máli að vinna saman, sam­vinna er svo mik­il­væg á erf­iðum tímum. Ég og mað­ur­inn minn náðum marg­falt betur saman þegar við fórum að vinna betur saman. Munið að engin spurn­ing er asna­leg og verið virki­lega dug­leg að tala saman og sam­stilla ykkur í hugs­unum og verkum,“ segir Kristín og bætir við að það sé nauð­syn­legt að hlusta á þarfir og líðan barns­ins.

„Ég veit að sam­fé­lagið stílar svo mikið inná að börn þurfi að vera í rútínu en það má eiga sig fyrir mitt leiti þegar barn­inu líður illa. Þá þarf það auka knús og með­höndlun og maður á tví­mæla­laust að veita því það. Því meira öryggi sem barnið finnur fyrir, því betra. Ég get alveg full­yrt að það hjálpar líka með að ná nánd við barnið og það mun alltaf innst inni vera þakk­látt fyrir allt sem mömm­urnar og pab­b­arnir gerðu,“ segir Kristín.

Ákall um hjálp er ekki uppgjöf

Hún er þakk­lát fyrir þann stuðn­ing frá sínum nán­ustu sem hún fékk og hvetur alla til að þora að biðja um hjálp.

„Alls ekki hugsa að það að fá hjálp sé galli eða upp­gjöf. Það er bara stundum nauð­syn­legt. Ef sú hjálp býðst, í guð­anna bænum nýtið ykkur hana, þó það sé ekki nema bara til að fara í göngutúr, fá tveggja tíma aukalúr yfir dag­inn eða bara sitja og horfa út um glugg­ann og hreinsa hug­ann. Ég hefði aldrei í líf­inu kom­ist í gegnum þetta allt saman ef ég hefði ekki nýtt alla þá hjálp sem mér bauðst.“

Svefn­vanda­mál barna eru algeng fyrstu ár ævinnar.

Svefnvandamál hrjá allt að 20% barna

Svefn­vanda­mál barna eru nokkuð algeng, og hrjá allt að 20% barna á fyrstu árunum. Svefn­vanda­mál barna hafa áhrif á svefn for­eldr­anna og þar með hæfni þeirra til að takast á við verk­efni og skyldur dag­legs lífs og þá jafn­framt svefn­vanda barns­ins. Þetta kemur fram á vefnum Heilsu­vera, sam­starfs­verk­efni Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Embættis land­læknis. Þar er einnig farið yfir ein­kenni svefn­vanda­mála, en þau geta verið eitt eða fleiri af eft­ir­far­andi:

  • Barn vaknar oft upp á nótt­unni og nær ekki að sofna sjálft aftur.
  • Barn á erfitt með að sofna á kvöldin, lengi að sofna eða þarf aðstoð. Börn sem geta farið að sofa sjálf að kvöldi, vekja síður for­eldra sína ef þau vakna að nóttu.
  • Vandamál tengd daglúrum, s.s. stuttir og óreglu­legir og of nálægt næt­ur­svefn­inum.

Eldri börn geta haft önnur ein­kenni svefn­vanda­mála. Algeng ein­kenni eftir 2-5 ára eru slæmir draumar eða martraðir og að geta ekki sofnað að kvöldi. Önnur ein­kenni eldri barna eru t.d. að ganga í svefni, pissa undir í svefni eða gnísta tönnum.

Þeir sem vilja lesa meira um svefn­vanda­mál barna geta kíkt inn á vef Heilsu­veru með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti