Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

,,Ég hef verið elskuð út af lífinu og hötuð til helvítis“

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir hefur staðið fremst í flokki #metoo bylt­ing­ar­innar.

,,Ég hef verið elskuð út af lífinu og hötuð til helvítis“
||||

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir segir árið 2017 hafa verið lyg­inni lík­ast, bæði fyrir sig per­sónu­lega sem og fyrir mál­stað­inn sem stendur hjarta hennar næst. Hún hefur barist ötul­lega gegn áreitni og ofbeldi sem hún segir alheims­vanda en vill um leið afskrímsla­væða umræð­una um ofbeld­is­menn.

,,Það var ólýs­an­legt að stíga á stokk og segja heim­inum sögu sem ég hélt á löngu tíma­bili að myndi sliga mig, sög­una af kyn­ferð­is­of­beld­inu sem fyrsti kær­asti minn beitti mig,“ segir Þórdís Elva. Fatnaður: Bolur frá Gallery Sautján. Sam­fest­ingur og leð­ur­jakki frá AndreA.

Þórdís Elva fædd­ist sömu nótt og Vigdís Finn­boga­dóttir var kjörin for­seti lýð­veld­is­ins, fyrst kvenna í heimi. Báðar hafa rutt konum braut í marg­vís­legum skiln­ingi en árið í ár markar tíma­mót í bar­áttu­málum kvenna á alþjóða­vísu. Bylt­ingin er hafin og þögnin rofin. Sárar frá­sagnir kvenna hafa litið dags­ins ljós en allar snúa þær að ofbeldi og áreitni af hendi karl­manna. Þórdís Elva er ein þeirra sem staðið hefur fremst í flokki #metoo bylt­ing­ar­innar. Fyrr á árinu gaf hún út bók um erf­iða reynslu og flutti í kjöl­farið fyr­ir­lestra um heim allan sem vakið hafa mikil við­brögð.

,,Einu við­burða­rík­asta ævi­ári mínu er að ljúka, en 2017 var lyg­inni lík­ast. Það var ólýs­an­legt að stíga á stokk og segja heim­inum sögu sem ég hélt á löngu tíma­bili að myndi sliga mig, sög­una af kyn­ferð­is­of­beld­inu sem fyrsti kær­asti minn beitti mig. Ekki nóg með að ég hafi rofið þögn­ina á heims­vísu, heldur gerði ég það með hann mér við hlið á TED-fyr­ir­lestr­ar­svið­inu. Við hefðum aldrei náð þeim áfanga ef að baki okkar lægi ekki tólf ára langt ábyrgð­ar­ferli þar sem ég skil­aði skömminni til hans og lýsti afleið­ing­unum sem verkn­að­ur­inn hafði á líf mitt og hann gekkst við honum. Eftir þessa lífs­reynslu er okkur báðum mikið í mun að upp­ræta ofbeldi og und­ir­strika mik­il­vægi sam­þykkis í öllum nánum sam­skiptum. Við skrif­uðum í sam­ein­ingu bók um reynslu okkar, Handan fyr­ir­gefn­ingar, sem kom út í Bret­landi, Banda­ríkj­unum, Póllandi, Svíþjóð, Íslandi, Ástralíu, Japan og Þýska­landi á þessu ári.

„Það var súr­r­eal­ískt að sitja skyndi­lega fyrir svörum á BBC, CBS, Times, NPR, USA Today, Spiegel og Marie Claire svo dæmi séu nefnd, að ræða hluti sem ég hefði ekki einu sinni þorað að hvísla að sjálfri mér fyrir nokkrum árum síðan.”

Fjöl­miðla­á­hug­inn var gíf­ur­legur, enda er þetta í fyrsta sinn sem þol­andi og ger­andi taka höndum saman um að segja sögu sína í þeirri von að hún gagn­ist öðrum. Það var súr­r­eal­ískt að sitja skyndi­lega fyrir svörum á BBC, CBS, Times, NPR, USA Today, Spiegel og Marie Claire svo dæmi séu nefnd, að ræða hluti sem ég hefði ekki einu sinni þorað að hvísla að sjálfri mér fyrir nokkrum árum síðan. Þótt meiri­hluti við­bragð­anna hafi verið þakk­læti og stuðn­ingur létu ein­stak­lingar, sem stóð mjög mikil ógn af þessu verk­efni, líka í sér heyra. Ég hef verið elskuð út af líf­inu og hötuð til hel­vítis af fólki um allan heim.

Mig óraði enn síður fyrir því að nokkrum mán­uðum seinna myndi #metoo bylt­ingin fanga heims­byggð­ina og að millj­ónir ann­arra þolenda myndu einnig rjúfa þögn­ina. Ég hef aldrei orðið orð­laus jafn­oft og á þessu ári. Það var sögu­legt í alla staði, bæði fyrir mig per­sónu­lega og fyrir mál­stað­inn sem stendur hjarta mínu næst.“

Finnum styrkinn í fjöldanum

Tildrög þess að Þórdís stofn­aði Facebook-síð­una #metoo, konur í sviðs­listum- og kvik­mynda­gerð, var vegna umfjöll­unar innan netheima um kvik­mynda­fram­leið­and­ann Harvey Weinstein og fram­komu hans gagn­vart fjölda kvenna innan afþrey­ing­ar­iðn­að­ar­ins þar vestra. „Mér varð hugsað til afþrey­ing­ar­iðn­að­ar­ins á Íslandi og fannst hæpið að við værum laus við þann alheims­vanda sem áreitni og ofbeldi er. Sem menntuð leik­kona, höf­undur þriggja stutt­mynda og níu leik­rita þykir mér mjög vænt um íslenska brans­ann og vil að hann sé sem upp­byggi­leg­astur fyrir alla. Í fyrstu varp­aði ég spurn­ing­unni fram í lok­uðum hópi kvenna í kvik­mynda- og sjón­varps­brans­anum á Íslandi. Við­brögðin voru feimn­is­leg og leiddu flest á þann veg hvort við ættum nokkuð að vera velta okkur upp úr svo­leiðis nei­kvæðni. Væri ekki best að halda fram veg­inn? Vissu­lega vil ég horfa fram á við en best væri að allir hefðu sama tæki­færi til að vaxa og dafna í starfs­um­hverfi sínu. Ljóst er að ef konur þurfa að eyða ómældri orku í að leiða hjá sér áreitni, nið­ur­lægj­andi athuga­semdir, káf, óvið­eig­andi fram­komu eða jafn­vel ofbeldi, þá njóta þær ekki sömu tæki­færi til að blómstra og starfs­systk­ini þeirra.”

Þórdís Elva er ein þeirra sem staðið hefur fremst í flokki #metoo bylt­ing­ar­innar. Fyrr á árinu gaf hún út bók um erf­iða reynslu og flutti í kjöl­farið fyr­ir­lestra um heim allan sem vakið hafa mikil við­brögð. Fatnaður og skart frá Hildi Yeoman.

Örfáum dögum síðar stigu stjórn­mála­konur fram og greindu frá upp­lif­unum sínum af áreiti og yfir­gangi sem þær hafa mátt þola. Inn­blásin af hug­rekki þeirra stofn­aði Þórdís Facebook-hóp­inn #metoo fyrir konur í sviðs­listum og kvik­mynda­gerð. Sól­ar­hring síðar voru fjögur hund­ruð konur komnar í hóp­inn og tveimur dögum eftir það höfðu þús­und konur skráð sig inn á síð­una. Frá­sagn­irnar streymdu inn og Þórdís fann að hún var ekki ein um aðdáun yfir kjarki stjórn­mála­kvenna. Fljót­lega var samin sú yfir­lýs­ing að ástandið yrði að breyt­ast til hins betra og eru und­ir­skrift­irnar nú tæp­lega sjö hund­ruð tals­ins.

„Þegar þögnin rofn­aði og sárar frá­sagnir litu dags­ins ljós fengu sumir algert áfall. Þetta er lít­ill bransi og margir líta á hann sem eins­konar stór­fjöl­skyldu sína. Það er alltaf sárt að kom­ast að því að ein­hver sem manni þykir vænt um hafi beitt, eða verið beittur, ofbeldi. Eðlilega verða sumir líka reiðir og heimta nöfn ger­enda. Hins vegar lýsir það tak­mörk­uðum skiln­ingi á lagaum­hverf­inu og gerir þá ósann­gjörnu kröfu til þolenda að þeir ber­skjaldi sig fyrir æru­meið­ing­ar­kæru. Margir þeirra hafa engar sann­anir í hönd­unum til að styrkja frá­sagnir sínar enda er langoft­ast um að ræða brot sem ger­ast í ein­rúmi án vitna. Það síð­asta sem þolendur þurfa á að halda er að neyð­ast til að greiða ger­endum sínum háar fjár­hæðir og lenda á saka­skrá fyrir að segja sann­leik­ann. Auk þess verður vandi af þess­ari stærð­argráðu ekki leystur með því einu að týna burt rotn­ustu eplin og halda að málið sé leyst. Við­horfið innan stétt­ar­innar í heild verður að breyt­ast því við höfum öll með einum eða öðrum hætti tekið þátt í and­rúms­loft­inu og þögg­un­inni sem ríkt hefur hingað til. Við höfum öll hlut­verki að gegna í að breyta því.”

Þórdís segir að með umræð­unni hafi orðið vatna­skil meðal kvenna í sviðs­listum og kvik­mynda­brans­anum. „Við breyttum ekki Weinsteinunum á meðal okkar með því einu að svipta hul­unni af ofbeldi og áreitni sem við höfum sætt. Hins vegar breyttum við okkur sjálfum. Við erum kjark­meiri eftir þetta, því við vitum að við erum ekki einar lengur. Við vitum hvers við erum megn­ugar og við finnum styrk­inn í fjöld­anum.”

„Ljóst er að ef konur þurfa að eyða ómældri orku í að leiða hjá sér áreitni, nið­ur­lægj­andi athuga­semdir, káf, óvið­eig­andi fram­komu eða jafn­vel ofbeldi, þá njóta þær ekki sömu tæki­færi til að blómstra og starfs­systk­ini þeirra.”

Svarið vefst ögn fyrir Þórdísi þegar hún þegar hún er spurð hvort sög­urnar hafi verið fleiri eða verri en hún átti von á. „Ég vissi fyrir fram að ofbeldi er bæði útbreitt og falið. Það kom mér hins vegar á óvart hversu mik­ill van­máttur birt­ist í sumum frá­sagn­anna, því áreitnin var stundum á vit­orði margra en eng­inn gerði neitt. Ég vona að í fram­tíð­inni heyri slík með­virkni sög­unni til.

Ég varð líka slegin yfir frá­sögnum nem­enda úr ýmsum mennta­stofn­unum. Miðað við vitn­is­burð þeirra við­gengst ólíð­andi hegðun, m.a. að kenn­arar mis­beiti valdi sínu í kyn­ferð­is­legum til­gangi. Sem betur fer hafa stjórn­endur í bæði Lista­há­skóla Íslands og Kvik­mynda­skól­anum lýst yfir að nú verði farið í átak til að betrumbæta umhverfi nem­enda og starfs­fólks. Ég vona að því verði fylgt vel eftir, því betur má ef duga skal af frá­sögn­unum að dæma.

Fæddist nóttina sem Vigdís varð forseti

Þórdís hefur nú verið búsett í Svíþjóð síð­ast­liðin tvö ár en ástæða fyrir dvöl hennar er fram­halds­nám sem maður hennar sótti í upp­lýs­inga­ör­yggi við Stokk­hólms­há­skóla. Eftir útskrift nú í sumar bauðst honum starf og segir Þórdís fjöl­skyld­una lík­lega muni ílengj­ast í Stokk­hólmi. „Svíar hafa tekið okkur afar vel. Sonur okkar blómstrar í skól­anum og ég er svo heppin að geta sinnt starfi mínu nær hvar í heim­inum sem er. Fyrr í vik­unni var mér sem dæmi boðið að halda hátíð­ar­ræðu fyrir sam­tök sem Silvía drottn­ing stofn­aði gegn kyn­ferð­is­of­beldi á börnum. Við drottn­ingin áttum gott spjall um mik­il­vægi #metoo hreyf­ing­ar­innar sem hún álítur afskap­lega mik­il­væga. Þá þótti henni snið­ugt að heyra að ég væri fædd sömu nótt og Vigdís Finn­boga­dóttir var kjörin for­seti lýð­veld­is­ins, fyrst kvenna í heimi. Hún bað fyrir bestu kveðjum til frú Vigdísar, sem mér var bæði ljúft og skylt að skila. Að lokum var tekin ljós­mynd af okkur og fyrir til­viljun hékk mynd­list­ar­verk á veggnum fyrir aftan okkur sem sýnir krepptan hnefa á lofti en það hefur löngum verið tákn kven­rétt­inda­bar­átt­unnar. Mér fannst það skemmti­lega tákn­rænt.”

Þórdís hefur nú gefið út tvær bækur um ofbeldi en segir þær ger­ó­líkar, bæði hvað efn­is­tök og úrvinnslu varðar. Hún segir bæk­urnar eins og ólík systk­ini sem búi yfir ólíkum þörfum og mis­mun­andi karakt­erum.

Þórdís segir mik­il­vægt að eyða öllum rang­hug­myndum í umræð­unni um ger­and­ann sem „skrímsli“, þ.e. brenglaða, vopn­aða, grímu­klædda sadist­ann í húsa­sund­inu sem ræðst á grun­lausar konur. ,,Stað­reyndin er sú að þessar rang­hug­myndir gagn­ast ofbeld­is­mönnum sem passa ekki inn í þessa stað­al­mynd og dregur úr lík­unum á að þolendum þeirra sé trúað. Tökum Brock Turner sem dæmi en hann er banda­rískur íþrótta­maður sem var sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot. Þegar hann var sak­felldur upp­hófst kór­söng­ur­inn um að hann væri nú svo góður sund­maður, þetta gæti ekki stað­ist. Um Bill Cosby var sagt að hann væri svo indæll karakter og góður leik­ari, þetta gæti ekki verið satt. Þannig vinnur hug­myndin um að ger­endur hljóti að vera skrímsli gegn trú­verð­ug­leika þolenda, stuðlar að þöggun og er skað­leg mála­flokknum í heild.

Margir bera jafn­framt fyrir sig þau rök að kurt­eisi sé oft mistúlkuð sem við­reynsla en ef þú þekkir ekki mun­inn á því að reyna við fólk og áreita það kyn­ferð­is­lega eða beita ofbeldi, þá skaltu hætta að “reyna við” fólk hið snarasta. Ég hlust­aði á sænskan útvarps­þátt um dag­inn þar sem þátta­stjórn­and­inn ávarp­aði karl­kyns hlust­endur. Hann benti á að konur upp­lifa stundum sams­konar óör­yggi og valda­mis­ræmi gagn­vart ókunn­ugum körlum og karlar upp­lifa gagn­vart öðrum körlum sem eru stærri, sterk­ari eða ofar í virð­ing­ar­stig­anum en þeir sjálfir. Þátta­stjórn­and­inn mælti með að karlar, sem skilja ekki hvernig konum líður í sam­skiptum við ókunn­uga karl­menn, ímynd­uðu sér að þeir væru nýlentir í fang­elsi. Ef ókunn­ugur sam­fangi myndi segja eitt­hvað kyn­ferð­is­legt við þá eða káfa á þeim, þá yrðu þeir lík­lega skelk­aðir og þætti það afar óþægi­legt. Ef ókunn­ugi sam­fang­inn sýndi þeim hins vegar vin­sam­legan áhuga og spjall­aði við þá kurt­eis­is­lega þá væri það hins vegar hið besta mál. Mér fannst þetta merki­leg sam­lík­ing og ég vona að hún gagn­ist þeim sem eiga erfitt með að setja sig í spor ann­arra.”

Forréttindum fylgir ábyrgð

Þórdís hefur nú gefið út tvær bækur um ofbeldi en segir þær ger­ó­líkar, bæði hvað efn­is­tök og úrvinnslu varðar. Hún segir bæk­urnar eins og ólík systk­ini sem búi yfir ólíkum þörfum og mis­mun­andi karakt­erum. „Bækurnar mínar, Á manna­máli og Handan fyr­ir­gefn­ingar, eru eins og svart og hvítt. Á manna­máli heltók mig, en upp­runa­lega kveikjan að þeirri bók var gríð­ar­leg reiði sem ég upp­lifði í kjöl­far sýknu­dóms í nauðg­un­ar­máli sem átti sér stað á Hótel Sögu árið 2007. Ég ætl­aði að skrifa harð­ort mót­mæla­bréf í blöðin sem óx síðan og varð að þrjú hund­ruð blað­síðna fræði­bók um það sem betur má fara í kyn­ferð­is­brota­málum á Íslandi. Ég var hálf­manísk þegar ég skrif­aði hana, sat sól­ar­hringum saman og hamr­aði á tölv­una þangað til fjöl­skyldu­með­limir mínir skip­uðu mér að fara út og fá mér ferskt loft. Hún er því eins­konar frumöskur. Handan fyr­ir­gefn­ingar er allt öðru­vísi verk, enda sjálfsævi­saga

„Við breyttum ekki Weinsteinunum á meðal okkar með því einu að svipta hul­unni af ofbeldi og áreitni sem við höfum sætt. Hins vegar breyttum við okkur sjálfum. Við erum kjark­meiri eftir þetta, því við vitum að við erum ekki einar, lengur. Við vitum hvers við erum megn­ugar og við finnum styrk­inn í fjöld­anum.”

sem lýsir per­sónu­legu ferða­lagi mínu úr myrkri og von­leysi inn í dásam­lega birtu og styrk. Hún var tutt­ugu ár í fæð­ingu er skrifuð af kær­leik til allra sem hafa ein­hvern tíma þjáðst í ein­rúmi, sem hafa elskað ein­hvern sem særði þá djúpt, sem langar til að losna úr viðjum þagn­ar­innar og sigr­ast á eigin ótta. Þótt ég hefði háleitar hug­sjónir vissi ég að bók­inni yrði lík­lega mis­vel tekið og kveið við­brögð­unum. Ég gleymi aldrei fögn­uð­inum sem hrísl­að­ist um mig þegar gagn­rýn­andi Sunday Times sagði að hún gæti breytt lífi fólks. Það er ólýs­an­leg til­finn­ing þegar fólk skilur mark­miðið sem maður leggur upp með.”

Viðbrögð fólks við fyr­ir­lestrum Þórdísar Elvu á TED sam­kom­unni hafa verið gríð­ar­leg og segir hún varla líða sá dagur sem henni ber­ist ekki skila­boð frá fólki víðs vegar úr heim­inum. „Fyr­ir­lest­ur­inn hefur fengið rúm­lega fjórar millj­ónir í áhorf og við­brögðin eftir því. Ég held að við, sem mann­kyn, stöndum á tíma­mótum. Hingað til hafa ofbeld­is­mál verið sveipuð myrkri og ger­endur verið útmál­aðir sem myrkra­verur og skrímsli. Hins vegar sýna rann­sóknir að yfir­gnæf­andi meiri­hluti ger­enda eru ást­vinir okkar, skóla­fé­lagar, fjöl­skyldu­með­limir, sam­starfs­fólk og makar. Að mínu mati verðum við að geta tekið á þessum málum án þess að stýr­ast af heift og for­dæm­ingu, því slíkt skaðar í raun þolendur og

Þórdís segir mik­il­vægt að eyða öllum rang­hug­myndum í umræð­unni um ger­and­ann sem „skrímsli“, þ.e. brenglaða, vopn­aða, grímu­klædda sadist­ann í húsa­sund­inu sem ræðst á grun­lausar konur. Fatnaður: Skart, kjóll og klútur frá Hildi Yeoman. Leð­ur­jakki frá AndreA.

stuðlar að meiri þöggun. Mér verður alltaf minn­is­stæð stúlka sem sagði mér að hún hefði verið mis­notuð af bróður sínum. Á meðan á því stóð hafði hún íhugað að segja frá og hugs­aði dæmið til enda. Hún hefði alveg getað sætt sig við að hann færi í fang­elsi í ein­hver ár fyrir það sem hann gerði henni en hún gat ekki lifað með til­hugs­un­inni um að hann yrði kall­aður skrímsli rest­ina af ævinni og hat­aður af öllum í smá­bænum sem þau bjuggu í. Af þeim sökum sagði hún sagði engum frá og það gerði honum kleift að mis­nota hana í fimm ár í við­bót. Þessi saga er lýsandi dæmi um hvernig skrímsla­væð­ing og hatur bitnar á þeim sem síst skyldi og hversu mik­il­vægt það er að við hefjum okkur upp fyrir það, sama hversu freist­andi það er að hata og útskúfa þeim sem beita ofbeldi.”

Það er óhætt að segja að með frá­sögnum sínum og fyr­ir­lestrum hafi Þórdís Elva skapað sinn eigin starfs­feril og segir hún að úr nægu sé að taka í náinni fram­tíð. „Ég á alltaf erfitt með að svara því við hvað ég vinni því ég hef feng­ist við svo ólíka hluti á lífs­leið­inni. Ég hef gert kvik­myndir og leik­rit, verið frétta- og blaða­kona, skrifað bækur, leik­stýrt og haldið fyr­ir­lestra, svo dæmi séu nefnd. Þegar upp er staðið má kannski segja að ég hafi atvinnu af því að segja sögur. Stundum sann­sögu­legar, stundum skáld­aðar og ég not­ast við ólíka miðla til að koma þeim á fram­færi. Á kom­andi mán­uðum mun leið mín liggja til Dan­merkur, Frakk­lands, Ítalíu og Banda­ríkj­anna þar sem ég mun flytja fyr­ir­lestra. Ég nýt gríð­ar­legra for­rétt­inda að geta rætt opin­skátt um reynslu mína og skoð­anir, því víða er þolendum refsað, þeir neyddir í hjóna­band eða jafn­vel myrtir fyrir að segja sögu sína. En for­rétt­indum fylgir líka ábyrgð og ég geri mitt besta til að standa undir henni.”

Texti: Íris Hauks­dóttir
Myndir: Aldís Páls­dóttir
Myndband: Óskar Páll Sveins­son
Förðun: Hrafn­hildur Björk Run­ólfs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti