Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kjörkuð, kraftmikil og ósérhlífin

Auður Guð­jóns­dóttir skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur er löngu landskunn fyrir ein­arð­lega og sleitu­lausa bar­áttu sína í þágu þeirra sem orðið hafa fyrir mænu­skaða. Dóttir hennar, Hrafn­hildur Thorodd­sen, slas­að­ist í umferð­ar­slysi árið 1989 og hefur síðan notað hjóla­stól. Árið 2007 stofn­aði Auður Mænu­skaða­stofnun Íslands þar sem hún er stjórn­ar­for­maður.

Kjörkuð, kraftmikil og ósérhlífin

Auður hefur verið óþreyt­andi í bar­átt­unni fyrir því að upp­lýs­ingum um mænu­skaða sé safnað saman þannig að nýt­ast megi í leit­inni að lækn­ingu. Tak­markið er gagna­grunnur sem gæti, ef allt gengur að óskum, nýst mænu­sköð­uðum á heims­vísu.

Orðið eld­hugi er það fyrsta sem kemur upp í hug­ann þegar ég hlusta á Auði og virði hana fyrir mér. Hún er sann­kall­aður eld­hugi sem býr yfir þeim glæstu eig­in­leikum að vera óvenju­lega  kjörkuð, kraft­mikil og ósér­hlífin mann­eskja. Ég spyr Auði fyrst út í gagna­bank­ann.

„Upp­haf­legi gagna­bank­inn var stofn­aður á vegum Mænu­skaða­stofn­unar og fjár­magn­aður af heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Þar var safnað saman upp­lýs­ingum um til­rauna­með­ferðir sem voru þýddar á fimm tungu­mál og ég held ég fari rétt með þegar ég segi að það hafi verið komnar fjöru­tíu og sex millj­ónir heim­sókna inn á þennan banka. Þarna var einn banda­rískur starfs­maður, en eftir hrun varð sífellt erf­ið­ara að fá pen­inga og á end­anum gat ég ekki orðið borgað honum fyrir vinn­una við að setja inn upp­lýs­ingar. Þannig að þessi gagna­banki gat ekki vaxið meira og leita varð nýrra leiða.“

Eftir hrun varð sífellt erf­ið­ara að fá pen­inga og á end­anum gat ég ekki orðið borgað honum fyrir vinn­una við að setja inn upp­lýs­ingar.

En nú bein­ist athyglin að því að koma á enn öfl­ugri gagna­banka eftir opnun hins sam­nor­ræna gagna­grunns?

„Já, einmitt, en svo ég reki aðeins sög­una þá sam­þykkti Alþingi árið 2014 aðgerðir í þágu lækn­ingu á mænu­skaða en áður hafði farið fram vinna hjá Norð­ur­landa­ráði við að reyna að fá Norð­ur­löndin til sam­eina þekk­ingu sína í mál­efnum mænu­skað­aðra. Siv Frið­leifs­dóttir bar þessa til­lögu fyrst fram á þingi Norð­ur­landa­ráðs árið 2009. Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, fylgdi þessu svo fast og örugg­lega eftir.

Á end­anum hafð­ist þetta eftir tals­verða þrauta­göngu, ekki síst fyrir það að Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bland­aði sér í málið, sem lauk  árið 2013. Verk­efn­inu um sam­skrán­ingu á með­ferð við mænu­skaða er stýrt frá  St. Olavs-sjúkra­hús­inu í Þránd­heimi og það er fjár­magnað af Norð­mönnum.“

Eitt af því sem þú hefur nefnt, Auður, er að Kín­verjar og Ind­verjar hafi verið að þróa lækn­ingar við mænu­skaða sem hafa skilað vissum árangri, en læknar á Vest­ur­löndum vilji ekki við­ur­kenna?

„Já, það eru því miður miklir for­dómar hjá mörgum læknum á Vest­ur­löndum gagn­vart lækn­ingum ann­ars staðar í heim­inum. Hér kemur líka til afar hörð bar­átta lækna og stofn­ana um rann­sókn­ar­styrki og heiður. Og ef menn hafa ekki ensku að móð­ur­máli þá eru þeir síður teknir alvar­lega.“

Hvað er þá til ráða? Það stendur ekki á svar­inu hjá Auði sem alltaf hugsar málið lengra, stór­huga og fram­sýn. „Þarna gegna Sam­ein­uðu þjóð­irnar lyk­il­hlut­verki. Með því að styðja stofnun gagna­banka sem allar þjóðir heims tækju þátt í væru Sam­ein­uðu þjóð­irnar að brúa bilið yfir gjána sem er á milli vest­ur­heims og ann­arra heims­hluta varð­andi lækn­ingu við mænu­skaða. Þannig væri hægt að nýta alla þá þekk­ingu á mænu­skaða sem hefur safn­ast upp í hinum ýmsu löndum.

Ástæðan fyrir því að það gengur hægt að finna lækn­ingu við mænu­skaða er einmitt sú að í lækna­vís­ind­unum er í raun lítið vitað um tauga­kerfi manns­ins.

Í þessu sam­bandi er gaman að geta sagt frá því að í ræðu sinni á nýaf­stöðnu Alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna hvatti Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra þjóðir heims til auk­ins sam­starfs á tauga­vís­inda­sviði. Með því að fá Sam­ein­uðu þjóð­irnar til liðs við mál­stað­inn er verið að auka gíf­ur­lega mögu­leika á lækn­ingu við mænu­skaða sem er aðkallandi lýð­heilsu­mál á heims­vísu. Það er t.d. ekki á almennu vit­orði að mænu­sköð­uðum fer fjölg­andi í heim­inum.

Magnað við­tal við Auði Guð­jóns­dóttur er í nýj­ustu Vikunni.

Að ekki sé minnst á alla þá jákvæðu mögu­leika sem meiri upp­lýs­ingar um tauga­kerfið gætu þýtt fyrir svo ótal marga aðra sjúk­dóma, þar sem tauga­kerfið er í brennid­epli. Svo sem ýmsa geð­ræna kvilla eða geð­sjúk­dóma. Ástæðan fyrir því að það gengur hægt að finna lækn­ingu við mænu­skaða er einmitt sú að í lækna­vís­ind­unum er í raun lítið vitað um tauga­kerfi manns­ins sem er svo gíf­ur­lega flókið,“ segir Auður Guð­jóns­dóttir en magnað við­tal við hana er í nýj­ustu Vikunni.

Texti / Svala Arn­ar­dóttir
Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina