Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðni Már nýtur lífsins í sólinni

Guðni Már Henn­ings­son er fluttur til Tenerife, þar sem kaffið kólnar ekki í boll­anum þótt það standi nokkrar mín­útur á borði og hann segir að sér hafi ekki liðið betur í fjörutiu ár.

Guðni Már nýtur lífsins í sólinni

Það vakti tölu­verða athygli þegar útvarps­mað­ur­inn ást­sæli, Guðni Már Henn­ings­son, kvaddi hlust­endur sína fyrir tæpu ári síðan og kom sér fyrir á Tenerife. Þar nýtur hann þess að drekka kaffið sitt í sól­inni, sinnir kalli lista­gyðj­unnar og spjallar við heima­menn af sinni ein­stöku snilld. Snæ­fríður Inga­dóttir hitti Guðna á upp­á­halds­kaffi­hús­inu hans og for­vitn­að­ist um líf hans í dag.

„Jú það voru margir hissa þegar ég sagði upp á Rás 2 en ég var bara búinn að fá nóg. Aldurinn var far­inn að segja til sín og eftir 24 ára starf var þetta bara orðið gott,“ segir Guðni þar sem hann situr á upp­á­halds­kaffi­hús­inu sínu, La Paz við Römbluna í Santa Cruz de Tenerife. Þetta er úti­kaffi­hús og hingað mætir hann dag­lega og stundum oft á dag ef þannig liggur á honum.

Dvölin á Tenerife hefur greini­lega gert honum gott því hann er nær óþekkj­an­legur þar sem hann situr mörgum kílóum létt­ari, sól­brúnn á stutt­erma­bol undir sígrænum krónum Römblutrjánna.

Aldurinn var far­inn að segja til sín og eftir 24 ára starf var þetta bara orðið gott.

„Ég er mjög sáttur við þessa ákvörðun. Ég hef flutt hátt í 50 sinnum á ævinni, bjó til að mynda tvö ár í Svíþjóð, svo ég er ekki hræddur við breyt­ingar. Hér er ynd­is­legt mann­líf og veðr­átta, og alltaf eitt­hvað nýtt að upp­götva á hverjum degi. Svo er líka ótrú­lega gott að þurfa ekki lengur að fylgj­ast með þessu þung­lyndi, svindli og svínarí heima á Íslandi.“

Að flytja á sól­rík­ari slóðir var hins vegar eng­inn lang­þráður draumur hjá Guðna heldur seg­ist hann hafa verið til­neyddur. „Það kom ekk­ert annað til greina en að flytja. Eftir að ég skildi við seinni eig­in­konu mína árið 2017 þá hafði ég ein­fald­lega ekki efni á því að búa á Íslandi á örorku­bótum. Bæturnar dugðu ekki fyrir leigu og lífs­nauð­synjum.“

Viðtalið við Guðna Má er að finna í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Guðni seg­ist fyrst hafa verið á leið­inni til Tor­revi­eja en góð­vinur hans benti honum á að lofts­lagið á Tenerife væri betra og ráð­lagði honum að fara frekar þangað. Og Guðni hlýddi þrátt fyrir að vita lítið sem ekk­ert um borg­ina Santa Cruz, eða Tenerife yfir­höfuð. En hann segir nánar frá þessu nýja lífi í sól­inni og mörgu er hann fékk að reyna í starfi sínu í útvarp­inu, meðal ann­ars heim­boðum frá ein­mana konum, í 2. tbl. Vikunnar.

Texti / Snæ­fríður Inga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina