Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Er ekkert rosalega hrifin af reglum

Margrét Seema Takyar er einn efni­leg­asti leik­stjóri lands­ins. Hún hefur búið í New York síð­ustu 15 ár, og 4 ár þar undan í London en hefur nú verið með annan fót­inn á Íslandi síð­ustu ár og unnið að ýmsum spenn­andi verk­efnum. Meðal ann­ars leik­stýrði hún þátta­röð­inni Trúnó, en sería tvö fer í loftið í lok jan­úar.

Er ekkert rosalega hrifin af reglum

Margrét Seema, sem er hálf­ind­versk, hefur búið erlendis meiri­hluta ævi sinnar en hefur að eigin sögn ávallt verið mjög stolt af því að vera íslensk. Hún er nú komin með fast heim­il­is­fang hér á landi sem hún segir hafa verið stórt skref.

„Það voru í raun örlögin sem réðu því að ég ákvað að vera meira heima. Ég ætl­aði bara koma í stutt stopp til að end­ur­nýja banda­ríska atvinnu­leyfið mitt og fá einn ein­faldan stimpil í pass­ann. En í miðju því ferli var Trump val­inn for­seti og allt kerfið fór á haus. Ég í raun fest­ist hérna á Íslandi í næstum níu mán­uði. Þá gripu örlögin í taumana, ég varð ást­fangin af manni og ég ákvað að taka séns á því ævin­týri og sé ekki eftir neinu. Finnst hann enn þá jafn­mikið æði og mér fannst þegar ég hitti hann fyrst. En New York er í raun enn þá heima að mörgu leyti.

En í miðju því ferli var Trump val­inn for­seti og allt kerfið fór á haus.

Ég er enn þá þar um 40% af árinu, enda bæði með sterkt tengsla­net og vin­áttu sem heldur manni þar. Síðustu ár hef ég unnið við kvik­mynda­töku, ljós­myndun, skriftir og leik­stjórn á Íslandi, í Banda­ríkj­unum og verið mikið í Asíu, Afríku og eitt­hvað í Japan líka. Ég er mikil flökku­sál þannig að þessi vinna og lífs­stíll sem fylgir henni hefur átt mjög vel við mig. New York er borg þar sem mér hefur alltaf liðið vel enda tekur hún mjög vel á móti flökku­sálum eins og mér, þannig að það að kveðja hana fyrir fullt og allt er ekk­ert á döf­inni.“

Mydn / Hallur Karlsson

Get ekki hugsað mér að gera neitt annað

Aðspurð hvernig það hafi komið til að hún leidd­ist út í leik­stjórn seg­ist Margrét Seema alltaf hafa viljað segja sögur og verið heilluð af hegðun fólks, að setja fólk í aðstæður þar sem raun­veru­leiki og fantasía bland­ast saman.

„Ég sé oft heim­inn í gegnum auga ljós­mynd­ar­ans þar sem lýs­ing, hreyf­ing, litir og skrýtnar aðstæður eru í aðal­hlut­verki í bland við sögu sem mig langar að segja. Þessi sam­setn­ing leiddi mig ein­hvern veg­inn í starfið mitt í dag. Auðvitað er þetta stundum kæf­andi raun­veru­leiki en líka oft ótrú­lega gef­andi og þessu fylgir í raun jafn­mikil leik­gleði sem og hug­ar­angur, en mér finnst það þess virði enda get ég eig­in­lega ekki hugsað mér að gera neitt annað.

Ég fór hins vegar alls kyns króka­leiðir áður en ég fann mig í kvik­mynda­form­inu og próf­aði mig áfram með ýmis list­form í gegnum árin, dans, ljós­myndun, skrif, leik­hús og lýs­ingu. Það hefur algjör­lega mótað mig og haft áhrif bæði á minn stíl, vinnu og hvernig ég nálg­ast leik­stjórn og kvik­mynda­töku.“

Ég hef stundum heyrt að ég búi yfir ákveðnum sjarma sem getur bæði komið að notum en líka komið mér í vand­ræði.
Viðtalið við Margréti Seemu má finna í 2. tölu­blaði Vikunnar.

Aðspurð hvort henni finn­ist kvik­mynda­iðn­að­ur­inn karllægur bransi, svarar Margrét Seema að heim­ur­inn sé almennt karllægur alveg sama hvaða bransa eða starfi maður gegni.

„Mér hefur hins vegar alltaf fund­ist þeir lista­menn sem búa til sjón­varps­s­er­íur, kvik­myndir og bækur hafi frá­bær tæki­færi að búa einmitt til sögur og per­sónur sem hrista upp þess­ari töl­fræði og búa til nýtt sam­tal.  Og auð­vitað eru margir, bæði konur og menn í kvik­mynda­brans­anum sem mark­visst vinna að því að bæði bæta jafn­réttið bak við vél­ina og fyrir framan hana. Ég hef líka oft­ast reynt að sjá þetta einmitt sem tæki­færi að hugsa út fyrir ákveð­inn ramma til að verða betri í mínu.

Ég er ekk­ert rosa­lega hrifin af reglum, sér­stak­lega reglum sem eru gerðar til að halda óbreyttu ástandi. Ég hef stundum heyrt að ég búi yfir ákveðnum sjarma sem getur bæði komið að notum en líka komið mér í vand­ræði, en þetta tvennt eru örugg­lega stórar ástæður fyrir því að ég geri það sem ég geri í dag,“ segir Margrét Seema Takyar.

Viðtalið við Margréti má lesa í heild sinni í 2. tölu­blaði Vikunnar.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina