Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Gagnrýnin gekk nærri mér“

Margir þekkja Guðríði Torfa­dóttur, Gurrý, úr þátt­unum geysi­vin­sælu Biggest Loser. Hún segir óvægna gagn­rýni í tengslum við þátt­inn hafa vissu­lega tekið á en hennar eina mark­mið hafi alltaf verið að hjálpa öðrum í átt að betri heilsu.

„Gagnrýnin gekk nærri mér“

Gurrý byrj­aði upp­runa­lega að æfa, átján ára gömul, til að létta sig eftir fyrstu með­göngu hennar. Hún hefur stundað Bootcampt, Crossfit, jóga, lyft­ingar og flest það sem er í boði í heilsu­rækt. Hún hefur til dæmis nýlokið hand­stöðu­nám­skeiði. Hún segir fjöl­breytn­ina hafa haldið sér við efnið og þess vegna sé hún enn þá að, tutt­ugu og einu ári seinna.

Gurrí er með B.S.-gráðu í við­skipta­fræði en þegar henni lauk fór hún beint í ÍAK-einka­þjálf­ara­nám hjá Keili. Þar að auki er hún með jóga­kenn­ara­rétt­indi.

Hún vann með háskóla­námi í Bað­hús­inu við að þjálfa og ætl­aði að stunda það sem áhuga­mál en fann fljótt að sig lang­aði að sam­eina áhuga­málið og starfs­vett­vang. Þegar hún fékk vinnu hjá Sport­mönnum við að sjá um Reebok-vöru­merkið seg­ist hún hafa fundið hill­una sína. Á þessum tíma opn­aði Reebok-fit­ness heilsu­rækt­ar­stöð og hún naut þess að kenna þar sam­hliða því að vera fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í fjögur ár.

Ég er alltaf að læra eitt­hvað nýtt og þannig þrífst ég best.

Gurrý sagði skilið við Reebok í fyrra­haust og fór aftur í upp­runann, í  einka­þjálfun og að kenna fólki í gegnum fjar­þálfun­ina, gurry.is.

„Ég íhug­aði vel hvað ég vildi fara að vinna við og fann að ég þurfti að fara að gera eitt­hvað annað og læra nýja hluti. Í haust byrj­aði ég að vinna hjá Heilsu­hús­inu en þar sam­ein­ast aftur áhugi minn á heilsu og þörfin fyrir að vera í sölu- og mark­aðs­málum. Þar hefur líka opn­ast fyrir mér nýr heimur í fæðu­bót­ar­efnum en bæti­efni og vítamín hafa þró­ast rosa­lega og ég hafði ekki hug­mynd um hvað það er til mikið af góðum bæti­efnum sem geta hjálpað til með hollu matar­æði. Þannig að ég er alltaf að læra eitt­hvað nýtt og þannig þrífst ég best,“ segir Gurrý.

Óvægin gagnrýni

Talið berst að Biggest Loser þar sem Gurrý var ein tveggja þjálf­ara. Þætt­irnir fóru ekki var­hluta af gagn­rýni og Gurrý fékk að finna fyrir henni. Hún segir samt sem áður þætt­ina hafa verið eitt af skemmti­legri verk­efnum sem hún hefur tekið þátt í.

Sumir halda ég sé svo mik­ill nagli og meira að segja nánir vinir höfðu aldrei áhyggjur en ég er mann­leg.

„Starfs­fólkið hjá SagaFilm og kepp­endur gerðu þetta að mögn­uðu verk­efni sem  ég er mjög þakk­lát fyrir að fá að hafa fengið að vera með í. Það er líka draumur að fá að vinna með fólki sem er komið til að vinna 100% í sér og er til­búið til að taka sér frí frá vinnu, yfir­gefa fjöl­skyldu og vini og taka þetta alla leið. Þó svo að öllum hafi ekki tek­ist það þá eru þetta hetjur sem ég ber mikla virð­ingu fyrir. Það að opna líf sitt og erf­ið­leika sína fyrir alþjóð er ekki fyrir hvern sem er og það sem er best við þetta er að Biggest Loser var alveg raun­veru­legt og ekk­ert leikið. Svona er þetta. Svo fannst mér allt í kringum sjón­varps­vinn­una mjög skemmti­legt og gæti alveg hugsað mér að vinna aftur í sjón­varpi.“

En var ekki erfitt að sitja undir gagn­rýn­is­röddum?

„Ef ég hefði verið spurð að þessu fyrir tveimur árum þá hefði ég sagt nei en gagn­rýnin og umtalið var mikið í síð­ustu seríu og jú það var mjög erfitt og gekk nærri mér ef ég á að vera alveg heið­ar­leg í svari. Sumir halda ég sé svo mik­ill nagli og meira að segja nánir vinir höfðu aldrei áhyggjur en ég er mann­leg og þegar gagn­rýni er orðin að per­sónu­legum árásum þá er ekki hægt annað en að verða fyrir áhrifum á nei­kvæðan hátt.

Sumar gagn­rýn­is­raddir voru ekki mál­efna­legar á meðan aðrar voru það.

Fólk má hafa skoð­anir og ég virði það og Biggest Loser er umdeilt sem ég skil líka en sumar gagn­rýn­is­raddir voru ekki mál­efna­legar á meðan aðrar voru það. Ég tók þátt í Biggest Loser af einni ástæðu sem var að hjálpa fólki og ég sé ekki eftir neinu og myndi gera þetta allt aftur.“

Að borða hreinan mat og skipuleggja sig er lykill að árangri

Við spyrjum hvað hún ráð­leggur fólki að gera til að koma sér af til þess að lifa heil­brigð­ara líf­erni?

„Mitt besta ráð er að skipu­leggja sig vel og ákveða æfinga­tím­ann og helst hafa hann alltaf á sama tíma.“ Hún segir helstu mis­tökin vera að fólk ætli sér of mikið í einu og það endi oft ekki vel.
„Ég hef séð fólk ná góðum árangri með því að æfa tvisvar sinnum í viku. Hugsaðu þetta þannig að þú planar æfing­arnar svo að þú kom­ist alltaf, hlakkir til og þetta sé ekki kvöð. Það er betra að skipu­leggja tvær góðar æfingar í viku og mæta alltaf en að plana fjórum sinnum í viku og enda með því að skrópa eða kom­ast ekki og þannig fá sam­visku­bit eða ein­fald­lega gef­ast upp.

Maturinn er svo stór partur af þessu og ég er alltaf að kom­ast betur og betur að því að því ein­fald­ara sem mark­mið er, því betra. Taktu út gos í fjórar vikur og sjáðu hvað ger­ist, settu svo mark­mið að borða græn­meti í öll mál, hvað ger­ist þá o.s.frv.

Viðtalið við Gurrí er að finna í þriðja tölu­blaði Vikunnar.

Ef þú ætlar að græja þetta allt í einu, skrá þig í ketó, æfa sex sinnum í viku, henda öllu út – sykri, mjólk­ur­vörum, hveiti og ég veit ekki hvað og hvað þá þori ég að veðja þetta dugar í nokkrar vikur eða mesta lagi í nokkra mán­uði. Eitt sem mér finnst líka mik­il­vægt að benda á er að það þarf að halda helg­ar­dög­unum líka eðli­legum. Það virkar ekki neitt að vera harður við sig í fimm daga og leyfa sér svo allt í tvo. Þá er betra að halda tempói og prófa líka að tyggja mat­inn í botn, það eitt og sér svín­virkar,“ segir Gurrý í við­tali við Vikuna

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina