Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Við fjölskyldan erum öll með frekar svæsinn húmor“

Snjólaug Lúð­víks­dóttir hefur á und­an­förnum árum notið mik­illa vin­sælda sem uppi­stand­ari en hún leidd­ist út í list­ina fyrir til­stuðlan til­vist­ar­kreppu. Hún gerir að mestu leyti grín að sjálfri sér og eigin göllum enda segir hún hið ófull­komna yfir­leitt það fyndn­asta.

„Við fjölskyldan erum öll með frekar svæsinn húmor“

Sex ár eru nú síðan Snjólaug leidd­ist út í uppi­stand en til­drög þess voru að hennar sögn óbilandi athygl­is­sýki. „Ég var alltaf þessi krakki sem setti upp sýn­ingar í stof­unni og píndi for­eldra mína til að horfa við­stöðu­laust á mig. En í stórum hópi er ég frekar feimin þó að ég sé alltaf fljót að detta í trúð­inn meðal vina og ætt­ingja, þar soga ég athygl­ina óspart að mér. Í uppi­stand­inu geri ég mest grín að sjálfri mér en passa á sama tíma að tala aldrei aðrar konur niður.

For­eldrar mínir skildu fyrir mörgum árum og hafa síðan þá eign­ast nýja maka og börn svo í dag á ég um þrjú hund­ruð systk­ini.

Ég fjalla um hvernig það sé að vera ein­hleyp og barn­laus í vina­hóp þar sem allir hinir eru meira og minna ráð­settir með börn og heim­ili. Konur í minni stöðu tengja við þetta og það finnst mér skemmti­legt. Ég geri líka óspart grín að for­eldrum mínum en pabbi er til að mynda með yngri konu sem ég djóka mikið með og dreg þau gjarnan inn í allt sem ég geri en þau sem betur fer hlæja manna hæst. Ég er heppin að hafa alist upp við mikið grín og við fjöl­skyldan erum öll með frekar svæs­inn húmor. For­eldrar mínir skildu fyrir mörgum árum og hafa síðan þá eign­ast nýja maka og börn svo í dag á ég um þrjú hund­ruð systk­ini, þetta er svona ekta íslenska flókna fjöl­skyldu­sy­stemið. Þau geta því ekk­ert sett sig á háan hest, þau hafa lifað, rétt eins og ég.“

Fylgir því frelsi að gera grín að Íslandi

Und­an­farin ár hefur Snjólaug ferð­ast með uppi­standið sitt utan land­stein­anna og heim­sótti til að mynda Eistland á dög­unum en hún kemur jafn­framt mikið fram í Edinborg og London.

„Fyrsta uppi­standið mitt var í London þar sem ég tal­aði í fjöru­tíu mín­útur á ensku. Hér heima hef ég líka haldið sér­stakar túrista­sýn­ingar svo ég er mark­visst að leita á þann markað líka. Upptökur frá þeim kvöldum sendi ég svo á aðila erlendis og kynni mig á þann hátt.“

Ég geri grín af Bláa lón­inu, álfatrúnni hér og stjörnu­merkj­unum okkar en rauður þráður.
Snjólaug Lúð­víks­dóttir prýðir for­síðu nýj­ustu Vikunnar.

Snjólaug segir tals­verðan mun að skemmta á íslensku eða ensku en hún seg­ist eðli máls­ins sam­kvæmt mun frjáls­ari á móð­ur­mál­inu. „Ég myndi segja að ég væri mun meira ég sjálf á íslensk­unni þar sem ég get bullað í kringum hlut­ina meðan enska uppi­standið lík­ist meira hand­riti þar sem ég fylgi form­inu algjör­lega eftir. En svo fylgir því líka ákveðið frelsi að gera grín að Íslandi, þannig opn­ast aðrar dyr. Ég geri grín af Bláa lón­inu, álfatrúnni hér og stjörnu­merkj­unum okkar en rauður þráður er aðal­lega hversu auð­trúa við Íslend­ingar erum, svo á móti geri ég grín að ferða­mönnum þegar uppi­standið fer fram á íslensku.“

Viðtalið við Snjó­laugu má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem kemur í versl­anir í dag.

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una